Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 18
| 2 11. mars 2015 | miðvikudagur
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
40,9% frá áramótum
BANK NORDIC
15,0% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
EIMSKIP
-2,5% frá áramótum
VÍS
-3,8% í síðustu viku
9
5
0
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS
Icelandair Group – Aðalfundur
FIMMTUDAGUR 12. MARS
Össur Hf – Aðalfundur
Tryggingamiðstöðin – Aðalfundur
Vátryggingafélag Íslands - Aðal-
fundur
VÍB - Fundur um breytt skattaum-
hverfi
FÖSTUDAGUR 13. MARS
Byggðastofnun – Ársuppgjör fyrir
árið 2014
MÁNUDAGUR 16. MARS
Hagstofan – Fiskafli í febrúar 2015
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS
Hagstofan – Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu
VÍB - Fundur um öryggi fjárfesta
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
Samtals söfnuðust um 205 millj-
ónir króna í Mottumars á árunum
2010 til 2014, eða í fi mm söfnunum.
Mest fékkst árið 2010 eða 50 millj-
ónir króna. Árið 2011 fengust 39
milljónir og 2012 og 2013 fengust
36 milljónir. Í fyrra söfnuðust svo
43,5 milljónir króna. Ragnheiður
Haraldsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélagsins, segir að Mottu-
mars sé svolítið sérstök söfnun.
„Bleiki mánuðurinn er alþjóð-
leg söfnun. Mottumars er okkar,“
segir Ragnheiður. Hún segir að
Mottumarsátakið hafi farið fram
í átta ár og það hafi tekið svolítinn
tíma að koma söfnuninni í gang.
„Það er svolítið erfi ðara að virkja
fólk í Mottumars en í Bleika mán-
uðinum. Það er sterkari hefð fyrir
Bleika mánuðinum og svo eins og
margir vita þá hafa konur meiri
áhuga á að leggja svona verkefn-
um lið,“ segir Ragnheiður. Þrátt
fyrir þetta hafi gengið vel með
Mottumars. „Á upphafsárunum
þurfti að leggja svolítið mikinn
kraft í að koma þessu af stað en
núna siglir þetta áfram í góðum
gír má segja,“ segir hún.
Ragnheiður segir að í stórum
dráttum megi segja að um það
bil 50 prósent af söfnunarfénu í
Mottumars renni til fræðslu- og
árveknistarfa. „Til vísindarann-
sókna eru því miður bara 10 pró-
sent,“ segir Ragnheiður og bætir
því við að 30 prósent renni til
ráðgjafarþjónustu Krabbameins-
félagsins sem rekur íbúðir hér í
bænum og þjónustuíbúðir úti um
landið og mikla ráðgjöf í húsnæði
Krabbameinsfélagsins.
„Við stefnum oftast að því að
halda beinum kostnaði við Mottu-
mars undir 10 prósentum,“ segir
hún. Ragnheiður segir að af þeim
43 milljónum sem söfnuðust í
fyrra hafi 27 milljónir safnast á
áheitasíðunni. „Við stefnum að því
að halda þessu svipuðu allavega
og erum svo sem ekkert svartsýn
á það. En erum alltaf bara þakk-
lát fyrir það sem við fáum og
miðum starfsemina við það sem
við höfum í höndunum,“ segir
Ragnheiður.
jonhakon@frettabladid.is
Yfir 200 milljónir
söfnuðust á 5 árum
Á fimm ára tímabili söfnuðust 205 milljónir í átakinu Mottumars.
Forstjóri Krabbameinsfélagsins segir Bleika mánuðinn þó sterkari
söfnun. Stærstur hluti fjárins rennur til fræðslu- og árveknistarfa.
HUGSAÐU UM EIGIN RASS Auglýsing Mottumars þetta árið hefur vakið mikla athygli.
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 115,00 10,6% 15,0%
Eimskipafélag Íslands 231,00 -2,5% -1,3%
Fjarskipti (Vodafone) 39,70 13,4% -1,0%
Hagar 44,05 8,9% -1,0%
HB Grandi 37,15 9,9% -0,8%
Icelandair Group 22,10 3,3% 1,8%
Marel 150,50 9,1% 1,0%
N1 28,75 23,9% 5,1%
Nýherji 7,30 40,9% 0,8%
Reginn 14,85 9,6% 1,7%
Sjóvá 13,55 13,4% 4,2%
Tryggingamiðstöðin 28,25 7,4% 1,1%
Vátryggingafélag Íslands 9,04 -0,1% -3,8%
Össur 443,00 22,7% 4,2%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.394,27 6,4% 0,5%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 25,90 14,6% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,85 0,0% 0,0
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
#BYLGJANBYLGJAN989
ÞORGEIR, KRISTÓFER OG BRAGI
OG MÁLEFNI LÍÐANDI STUNDAR
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 16:00 - 18:30VIRKA DAGA
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
SEX OG HÁLFU ÁRI eftir að bankarnir
þrír féllu er samfélagið ekki búið að
vinna sig út úr hruninu og því þrota-
búsástandi sem fylgdi í kjölfarið.
Slita bú gömlu bankanna eru óupp-
gerð og hillir ekki einu sinni undir
uppgjör. Slitastjórn Glitnis hefur
t.a.m. sett sér rekstraráætlun fram
til ársins 2019, sem bendir til að á
þeim bænum búast menn við að sitja
við kjötkatlana í mörg ár enn.
TALAÐ ER UM að afl étta fjármagns-
höftum en ljóst er að þeim verður
ekki afl étt nema að hluta á meðan
krónan er okkar mynt. Lífeyrissjóð-
irnir eru lokaðir inni í haftakerfi
eins og aðrir. Afl eiðingarnar af
því geta orðið geigvænlegar.
Fjárfestingarþörf lífeyrissjóð-
anna nemur u.þ.b. 120-150
milljörðum á ári og í höftum
fá þeir ekki að fjárfesta annars stað-
ar en á Íslandi.
SEÐLABANKINN hefur búið til hjá-
leiðir fyrir sjóðina. Þannig var Ice-
landair á síðasta ári heimilað að gefa
út skuldabréf í erlendri mynt til að
selja fyrir krónur hér innanlands.
Þessi bréf verða endurgreidd í gjald-
eyri og jafngilda því erlendri fjár-
festingu hjá kaupendum, sem eru
fyrst og fremst íslensku lífeyrissjóð-
irnir. Svona einstakar hjáleiðir duga
hins vegar ekki lífeyrissjóðunum.
Umhverfi ð í heild sinni verður að
vera viðunandi.
MEGNIÐ AF FJÁRFESTINGUM lífeyris-
sjóðanna fer því inn á íslenska mark-
aðinn. Þessa sér merki á miklum
hækkunum á hlutabréfamarkaði og
fasteignamarkaði. Þó þarf ekki að
efa að lífeyrissjóðirnir fara eins var-
lega í fjárfestingar hér innanlands
og kostur er. Stjórnendum þeirra er
ljós sú hætta sem sjóðunum stafar
af ofhitnun íslensks verðbréfamark-
aðar.
Í HÖFTUM geta lífeyrissjóðir og aðrir
fjárfestar ekki stundað eðlilega
áhættudreifi ngu á eignasafni sínu.
Til lengdar hefur slíkt neikvæð áhrif
á ávöxtun þeirra og þar með þjóðar-
hag. Ljóst er að lífeyrissjóðirnir geta
ekki hámarkað ávöxtun sína til lengri
tíma og lágmarkað áhættu nema
allar fjármagnshömlur hverfi , sem
mun ekki gerast á meðan íslenska
krónan er gjaldmiðill þjóðarinnar.
Lífeyrissjóðirnir þurfa á því að halda
að Ísland verði hluti af stóru mynt-
svæði.
RÍKISSTJÓRNIN vill halda í krónuna.
Þetta er fátæktarstefna sem dreg-
ur úr lífskjörum fólks og skerð-
ir afkomu fyrirtækja annarra en
útfl utningsfyrirtækja, sem hvort eð
er hafa sínar tekjur, og skuldir eru í
erlendri mynt. Venjuleg atvinnufyrir-
tæki og almenningur í landinu eiga
ekki sama láni að fagna.
SÉUM VIÐ ÍSLENDINGAR sáttir við
að vera annars fl okks dugar krón-
an okkur vel áfram en ef við viljum
komast í fyrsta fl okk verðum við að
losa okkur undan krónunni og gerast
þátttakendur í stærra myntsvæði.
Þetta er ekki fl ókið.
Fyrsti eða annar flokkur?
1
0
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
7
-3
4
E
8
1
4
1
7
-3
3
A
C
1
4
1
7
-3
2
7
0
1
4
1
7
-3
1
3
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K