Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 4
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Aðalfundur BGS 2015 Icelandair Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 26. mars kl. 14:00 Kl. 14:00 – 15:30 Sérgreinafundir Almenn verkstæði og varahlutir Málningar- og réttingarverkstæði Sölusviðin Kl. 15:30 – 15:45 Kaffihlé Kl. 15:45 – 16:00 Setning fundar: Jón Trausti Ólafsson formaður BGS. Kl. 16:00 – 16:40 Erindi: Eyþór Eðvarðsson hjá Þekkingamiðlun. Kl. 16:40 – 17:30 Venjuleg aðalfundarstörf Dagskrá skv. 8. gr. laga BGS 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar skýrðir og bornir upp til samþykktar. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar. 5. Önnur mál. Stjórn BGS LANDBÚNAÐUR Riðuveiki hefur greinst á öðru búi í Skagafirði, en stutt er síðan riða greindist á nálægum bæ. Um er að ræða þriðja riðuveikitilfellið sem vitn- eskja fæst um á aðeins einum mánuði. Þá greindist riða á bæ á Vatnsnesi. Bæirnir í Skagafirði eru á þekktu riðusvæði. Þetta nýjasta tilfelli kemur því Matvælastofnun ekki á óvart. Ekki eru talin tengsl milli riðunnar á Vatns- nesi og þeirra sem nú koma upp í Skaga- firði. Héraðsdýralæknir Matvælastofn- unar vinnur nú að öflun faraldsfræði- legra upplýsinga og úttektar á búunum í Skagafirði til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Allt frá því að ákveðið var að hefja átak gegn riðuveiki, fyrir rúmlega 30 árum, með það að markmiði að útrýma veikinni hefur ráðherra ávallt fyrirskipað niður- skurð þegar riða hefur greinst og aðrar aðgerðir ekki komið til álita. Á níunda áratug síðustu aldar var skorið niður á tugum búa á hverju ári en mjög hefur dregið úr tíðni veikinnar og á undanförnum árum hefur hún aðeins greinst á stöku búum. - shá Héraðsdýralæknir vinnur að öflun upplýsinga til að meta umfang aðgerða í Skagafirði: Riðuveiki greinist á þriðja býlinu á mánuði RÉTTIR Á fáum vikum hefur riðuveiki greinst á þremur búum, einu á Vatnsnesi og tveimur í Skagafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun setti sérstaka tilkynningu á heimasíðu sína vegna umfjöll- unar í Fréttablaðinu um sölu Orasal (salicinium) á Íslandi. Í tilkynningunni kemur fram að varan Orasal, sem sögð er koma að gagni í meðferð sjúk- dóma, er ekki löglega markaðs- sett vara hér á landi og Lyfja- stofnun sé ekki kunnugt um að klínískar rannsóknir hafi verið gerðar á vörunni. Af framangreindum ástæðum vekur Lyfjastofnun athygli sjúk- linga á því að engar sannanir eru fyrir því að varan Orasal (salicinium) gagnist í lækninga- skyni. - kbg Lyfjastofnun um Orasal: Ekki lögleg markaðssetning LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari hefur fellt niður mál vegna hníf- stunguárásar á Hverfisgötu 23. nóvember síðastliðinn. Þá var Sebastian Andrzej Golab stunginn í hjartað. Þrír menn sátu upphaflega í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Tveir þeirra voru látnir lausir nokkrum vikum eftir árásina en einn mannanna sat í gæsluvarð- haldi þar til um miðjan febrúar. Skömmu síðar var honum tilkynnt um að málið hefði verið fellt niður. Helgi Magnús Gunnarsson vara- ríkissaksóknari segir að ekki hafi tekist að sýna fram á hver hafi veitt Sebastian stunguna. Því hafi málið verið fellt niður. - skh, vh Líkamsárás á Hverfisgötu: Enginn ákærður fyrir stunguna SÝRLAND Skólastarf er hafið á ný í Kúrdaborginni Kobane í Sýrlandi, rétt norður undir landamærum Tyrklands. Friður er kominn á eftir fjögurra mánaða linnulaus átök. Í janúar síðastliðnum tókst hersveitum Kúrda frá Írak, með aðstoð frá sýrlenskum uppreisnarmönnum, að hrekja vígasveitir Íslamska ríkisins frá Kobane. Eyðileggingin er gífurleg en nánast allir íbúar höfðu flúið bæinn. Margir hafa hins vegar snúið aftur ásamt börnum sínum. - gb Lífið í Kobane virðist vera að nálgast fyrra horf: Börnin komast í skólann aftur HLAUPIÐ Í SKÓLANN Hópur barna fer í gegnum gat á múrvegg til þess að komast í skólann fyrsta skóladaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA HEILBRIGÐISMÁL „Karlar þurfa að vera meðvitaðir um sjúkdómskenni og leita til læknis komi eitthvað upp á. Krabbamein meðal karla á ekki að vera feimnismál. Konur koma frekar í ristilspeglun en karlar. Þær eru vanar skimunarrannsókn- um, bæði vegna brjóstakrabbameins og leghálskrabbameins.“ Þetta segir Ásgerður Sverrisdóttir krabba- meinslæknir. Hún getur þess að ristilkrabba- mein sé þriðja algengasta krabba- meinið hér á landi meðal karla á eftir blöðruhálskirtilskrabbameini og lungnakrabbameini. „Það grein- ast rúmlega 50 karlar á ári með ristilkrabbamein og 25 karlar deyja árlega af völdum þessa krabba- meins.“ Aukning á nýgengi krabbameina, þar á meðal ristilkrabbameina, hefur verið stöðug undanfarna áratugi, að sögn Ásgerðar. „Þetta er talið tengjast umhverfisþáttum og lífsstíl að töluverðu leyti. Þá er meðal annars átt við mataræði, ofþyngd, hreyfingarleysi og áfengis- neyslu.“ Einkenni ristilkrabbameins geta verið breyttar hægðavenjur, eins og til dæmis hægðatregða og niður- gangur til skiptis. „Það getur komið blóð með hægðum og fólk getur verið með blóðskort ef það er að tapa blóði frá meltingarveginum. Einkennin geta verið af almennum toga, eins og þreyta, þrekleysi eða þyngdartap,“ greinir Ásgerður frá. Hún bendir á að ekki sé mælt með skimun fyrir blöðruhálskrabba- meini. Að koma á skimun fyrir ristil- krabbameini fyrir þá sem eru eldri en fimmtugir sé hins vegar mikil- vægt. „Ristilskimun er gerð í þeim tilgangi að finna frumubreytingar, eða sepa, áður en þær eru orðnar að krabbameini og komnar dýpra í vef- inn. Með ristilskimun er jafnframt hægt að finna krabbamein sem ekki er komið langt á veg og þá verður auðveldara að lækna það.“ Skipulögð skimun hefur víða verið innleidd, að sögn Ásgerðar. „Skipulögð skimun hefur verið inn- leidd í Bretlandi á síðustu árum og á Norður löndum er verið að inn- leiða skimun en hún er þó ekki orðin alhliða. Almennt séð er fólk sammála um að skimun skili árangri. Það er frekar deilt um aðferðir skimunar.“ Það er mat Ásgerðar að nauðsynlegt sé að taka ákvörðun um skimun fyrir ristilkrabbameini hér á landi. „Það þarf að ákveða í hvaða formi hún á að vera þannig að hún uppfylli allar kröfur góðrar skimunar. Það ætti að vera hægt að innleiða skimun hér nokkrum mánuðum eftir að ákvörð- un hefur verið tekin.“ ibs@frettabladid.is Krabbamein karla sé ekki feimnismál Ristilkrabbamein er þriðja algengasta krabbameinið meðal karla á Íslandi. Kon- ur koma frekar í ristilspeglun en karlar. Nauðsynlegt er að koma á skipulagðri skimun hér á landi, segir Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir. Á LAND- SPÍTALANUM Ásgerður Sverrisdóttir krabbameins- læknir segir nauðsynlegt að koma á skipulagðri skimun fyrir ristilkrabba- meini fyrir 50 ára og eldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● Fyrir ristilspeglun þarf að hreinsa ristilinn með lyfjum eftir fyrirmælum læknis. ● Gefin eru lyf fyrir rannsóknina sem verka bæði róandi og verkjastillandi. ● Við rannsóknina er legið á vinstri hlið. Langt sveigjanlegt speglunartæki er sett upp í endaþarm og þrætt upp í ristilinn sem oft er langur og bugðóttur. Til að koma tækinu þessa erfiðu leið þarf að dæla inn lofti. Þetta veldur samdráttarverkjum og þrýstingi sem auðvelt er að ráða bót á sé lækni sagt frá því. ● Rannsóknin tekur 30 til 60 mínútur eða lengur ef slímhúðarsepar eru fjarlægðir. Heimild: Heilbrigðisstofnun Suðurlands Hvernig fer ristilspeglun fram? SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ 620 voru í Félagi íslenskra hljómlistarmanna árið 2013, en 392 voru í Félagi tón- skálda og textahöfunda, 154 í Félagi íslenskra tónlistarmanna og 70 í Tónskáldafélagi Íslands. Samtals voru því 1.226 manns í þessum fjórum félögum þetta ár, og hafði fjölgað lítillega frá árinu 2010 þegar 1.116 manns voru félagar í þeim. Heimild: Hagstofa Íslands Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá UMHLEYPINGAR verða áfram á landinu. Það kólnar heldur í dag og má búast við éljum sunnan og vestan til. Á morgun verður dálítil snjókoma eða slydda víða um land og vaxandi vindur með slyddu eða rigningu á suðaustanverðu landinu síðdegis. -2° 12 m/s -1° 14 m/s -1° 10 m/s 2° 12 m/s Strekkingur suðaustan- lands og vaxandi vindur þar um kvöldið. Stormur gengur norðaustur yfi r landið. Gildistími korta er um hádegi 13° 28° 6° 13° 16° 6° 10° 8° 8° 21° 11° 19° 25° 13° 16° 9° 9° 9° -1° 6 m/s 3° 5 m/s 1° 4 m/s 0° 6 m/s -1° 8 m/s -1° 10 m/s -7° 7 m/s 0° 3° -1° -2° 3° 3° 2° 0° 0° -2° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 7 -1 7 4 8 1 4 1 7 -1 6 0 C 1 4 1 7 -1 4 D 0 1 4 1 7 -1 3 9 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.