Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 24
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Jónas Stefánsson, margmiðlunarfræðingur og leiðsögumaður, og unnusta hans Arna Benný Harðardóttir íþróttafræðingur elska að ferðast og gera mikið af því. Nýlega fóru þau í „road-trip“ suður alla vesturströnd Bandaríkjanna og gistu flestar nætur í bílnum sem þau voru með á leigu. „Við gistum tvær nætur á hótelum, annars vorum við bara í bílnum þannig að við vorum ekki bundin af neinum gististöðum á ferð okkar sem var eins lít- ið skipulögð og hægt var,“ segir Jónas. „Við vorum búin að ákveða leiðina sem við ætluðum okkur að fara en annað ekki. Við lentum í Seattle, keyrðum svo eftir ströndinni til San Diego, fórum svo aðeins inn í landið í gegnum Las Vegas og Utah og svo upp eftir aftur til Seattle. Ef við höfðum mikið að skoða þá keyrðum við styttra þann daginn en ef það var minna að skoða þá keyrðum við lengra. Þetta var sextán daga löng ferð sem var í alla staði frábær.“ Parið stundar jaðarsport af miklum krafti og Jónas segir þau eiga allt of mikið af áhugamálum en auk þess að vera á brettum af öllu tagi, vélsleðum og mótorhjólum er Arna á kafi í fótbolta og Jónas á skíðum. Þau hafa líka verið dugleg að ferðast sam- an en þau fóru í lengri útgáfu af Bandaríkjaferðinni þegar þau ferðuðust um Evrópu í bíl í þrjá mánuði. „Síðustu vetur höfum við farið í skíðaferðir en núna langaði okkur að gera eitthvað nýtt. Okkur langaði að komast í sól og hita og geta sörfað þannig að við ákváðum að skella okkur í þessa ferð. Við sáum marga fallega staði og þegar við vorum komin syðst í Kaliforníu þá reyndum við að komast eins mikið í sjóinn og við gátum til að komast í góðar öldur.“ Jónas segir ekki hægt að nefna neitt eitt sem hafi staðið upp úr í ferð þeirra en segir það hafa verið magnað að keyra alla strandlengjuna. „Frá Oregon niður að Kaliforníu var landslagið ótrúlega fjölbreytt og það breyttist á klukkutíma fresti fyrir framan okkur. Það var líka gaman að skoða borg- irnar og þar stóð San Francisco upp úr sem falleg og skemmtileg borg en Las Vegas er bara frum- skógur út af fyrir sig. Að sjálfsögðu skoðuðum við líka Miklagljúfur og svo hefðum við getað eytt miklu meiri tíma í Utah en við gerðum því þar er mikið af þjóðgörðum sem vert er að skoða. Við fórum í einn slíkan, Arches National Park, sem er alveg fáránlega flottur,“ segir Jónas greinilega hrifinn. ■ liljabjork@365.is REYNA AÐ HAFA GAMAN AF LÍFINU GIST Í BÍLNUM Jónas Stefánsson og Arna Benný Harðardóttir keyrðu með- fram vesturströnd Bandaríkjanna frá Seattle til San Diego og svo aftur til baka með viðkomu í Las Vegas og Utah. Ferðin var eins lítið skipulögð og hægt var. SÓLARLAG Í MIKLAGLJÚFRI Arna dáist að fegurð sólarlagsins í gljúfrinu mikla í Arizona. LOMBARD STREET Arna geysist niður götuna þekktu í San Francisco á hjólabretti. Á BRETTINU Jónas tekur mikið af flottum myndum og notar þá bæði GoPro- og Canon-vélar frá Pedromyndum á Akureyri. FRELSI Brunað í gegnum eyðimörkina. Jónas og Arna grípa í brettin við hvert tækifæri. Á STRÖNDINNI Þau Jónas og Arna stunda allar tegundir brettaiðkunar. Í Kaliforníu reyndu þau að komast sem mest í sjó- inn á brimbretti. AÐSENDAR MYNDIR Þórunn G. Þórarinsdóttir heilsuráðgjafi hefur náð betri heilsu með notkun Bio-Kult Original. „Forsagan er þannig að ég var mjög veik í mörg ár. Ég ákvað að taka málin í mínar hendur og breytti mataræðinu alveg en náði samt ekki alveg fullri heilsu. Ég hóf þá að kynna mér hvað góðir gerlar geta gert fyrir heilsuna. Ég fann eftir mikla leit á netinu og víðar að sennilega vantaði mig einn ákveðinn geril í melt- ingarflóruna en það er svokall- aður jarðargerill (e. bacillus subtillis). Ég fór að leita að lif- andi gerlablöndum hér á landi sem innihalda þennan geril en það virtist ekki vera í neinu nema Bio-Kult Original-vörunni. Ég ákvað að prófa, og viti menn, það varð algjör um- bylting á heilsunni hjá mér!“ BIO-KULT FYRIR ALLA Innihald Bio-Kult Original er öflug blanda af vinveittum gerlum sem styrkja þarmaflór- una. Bio- Kult Original hentar vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. Fólk með mjólkur- og soja- óþol má nota vörurnar. Mælt er með Bio- Kult í bókinni Meltingar- vegurinn og geðheilsa eftir Dr. Natasha Camp- bell- McBride. UMBYLTING Á HEILSU ICECARE KYNNIR Bio-Kult Original er öflug blanda vinveittra gerla sem styrkja þarmaflór- una. Þórunn G. Þórarins dóttir mælir með Bio- Kult Original enda hefur heilsa hennar batnað mikið eftir að hún hóf notkun á því. MIKIL HEILSUBÓT Þórunn G. Þórarins- dóttir heilsuráðgjafi byggir meðmæli sín með Bio-Kult Original á eigin reynslu. MYND/GVA 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 7 -0 8 7 8 1 4 1 7 -0 7 3 C 1 4 1 7 -0 6 0 0 1 4 1 7 -0 4 C 4 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.