Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 40
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK siSAM Nicole Kidman Colin Firth Mark Strong FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA Búa sig undir vonskuveður – Flugi aflýst vegna veðurs – Líklega versti vetur í áraraðir – Hviður allt að 55 metrar á sekúndu – „einum gír ofar en venjulegur stormur“! ÞETTA voru fyrirsagnirnar á „mest les- ið“-listum vefmiðlanna þegar ég kíkti þangað inn eftir hádegið. Óveðrið átti reyndar að skella á á hádegi en lét aðeins bíða eftir sér. „Maður hefur nú alveg séð það verra,“ sögðu ein- hverjir og grínuðust með að það væri ekkert við að fara út í „þetta“ veður. En svo brast það á. Útsýnið út um gluggann minn snarbreyttist á hálftíma. Ég sá ekkert, horfði bara inn í eitthvað hvítt og óráðið. Stundum var eins og ég væri að horfa inn í bilaðan sjónvarpsskjá, eins og þeir voru í gamla daga. Stund- um rétt grillti ég í grenitrén handan götunnar, svo alveg hvítt. Ég heyrði í vindinum, eins og í litlum drunum og það slóst eitthvað til úti. Mér fannst hljóðið koma ofan af þakinu. ÉG las viðtal við flutningabílstjóra sem hafði aldrei vitað annan eins vetur, stans- laust þurft að setja á keðjurnar og fresta ferðum. Hann virtist vera orðinn þreyttur á þessu. „Samgöngur lamast“, var næsta fyrirsögn sem ég las og um leið fékk ég póst frá frístundaheimilinu, „ekkert barn má ganga heim“. Á Face book birti fólk myndir af veðrinu, bílum á hliðinni, strætó þversum, ófært var orðið upp í Hafnarfjörð og í uppsveitum Kópavogs og björgunarsveit fór að sækja 35 leikskóla- börn sem voru strandaglópar. ÞAÐ bætti í drunurnar, óyndi setti að fólki í kringum mig, það stóð upp, gekk um gólf, horfði út. Símar hringdu og fólk reyndi að skipuleggja heimför. Fréttir af margra bíla árekstrum um alla borg settu strik í reikninginn, sumir drifu sig af stað, aðrir ákváðu að bíða. Skyggnið skán- aði en þó bætti í vindinn. Grenitrén svign- uðu og glamrið uppi á þaki byrjaði aftur. Svo fór að rigna. ÉG dró á mig gúmmístígvélin, herti mig upp til heimferðar og reyndi að rifja upp hvort ég hefði lokað stofuglugganum. Vonskuveður í beinni THE DUFF 5:50 CHAPPIE 8, 10:10 STILL ALICE 5:50, 8 VEIÐIMENNIRNIR 10:30 HRÚTURINN HREINN 5:50 10:10 THE GRUMP KL. 5.30 - 8 - 10.40 CHAPPIE KL. 10.20 ANNIE KL. 5.30 VEIÐIMENNIRNIR KL. 5.30 - 8 BIRDMAN KL. 8 - 10.30 ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 - ÍSL TEXTI THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 - 8 CHAPPIE KL. 8 - 10.40 CHAPPIE LÚXUS KL. 5 - 8 -10.40 ANNIE KL. 5 HRÚTURINN HREINN KL. 3.30 FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20 KINGSMAN KL. 8 - 10.45 PADDINGTON KL. 5.45 - ÍSL TAL 20.000 MANNS Laufey Jónsdóttir opnar sýn- inguna Persona í Norræna húsinu í dag. Á sýningunni má finna þrí- víðar portrettmyndir af fólki sem Laufey tók viðtal við, en hún leitað- ist við að finna fólk sem hún þekkti lítið, helst ekkert. „Það var svolítið erfitt að finna fólk sem ég þekkti ekki neitt, svo ég treysti mikið á vini og vanda- menn að hjálpa mér,“ segir Laufey. Það kom henni á óvart hversu vel fólk tók í verkefnið. „Það sögðu bara allir já strax og tóku vel í þetta. Það var líka ómetanlegt hvað þau voru tilbúin að deila miklu með mér, bæði gleði og sorgum.“ Samtals fékk Laufey níu manns í verkefnið. Hún tók klukkutíma langt viðtal við hvern og einn. Út frá viðtalinu vann hún svo mynd- irnar. „Fólkið málaði þannig sína eigin mynd með sínum sögum. Ég túlkaði sögurnar svo á minn hátt og túlkaði þannig hvern einstak- ling fyrir sig. Svo munu áhorfend- ur túlka það sem þeir sjá á sinn hátt,“ segir Laufey. Laufey valdi þessa aðferð til að gefa sjálfri sér ramma til að vinna innan. „Fólkið gaf mér rammann með minningum sínum og þannig fékk ég efni til þess að vinna úr.“ Einn viðmælenda Laufeyjar var nágranni hennar, sem hvorki talar ensku né íslensku. „Við höfum verið vinir lengi, en aldrei getað talað saman. Konan hans bauðst til þess að túlka fyrir mig svo ég gæti tekið viðtal við hann og kynnst honum betur,“ segir Laufey. Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag í Norræna húsinu og verður opin til 29. mars. adda@frettabladid.is Vann portrettmyndir af ókunnugu fólki Laufey Jónsdóttir fór óvenjulega leið til þess að vinna að sýningu sinni Persona en hún tók viðtöl við ókunnugt fólk og vann portrettmyndir út frá viðtölunum. STOLT Laufey með portrettmyndirnar sínar, sem eru jafn ólíkar og þær eru margar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Save the Children á Íslandi Fólkið málaði þannig sína eigin mynd með sínum sögum. Áströlsku söngkon- unni Kylie Minogue var boðið að koma fram í sérstökum stjörnuþætti af Nágrönn- um, en hafnaði því. Minogue fór með hlut- verk Charl- ene Mitchell í Nágrönnum á níunda áratugnum og sló í gegn í kjölfarið. „Ég hugsaði um að fara aftur í þáttinn, en ég held að það myndi ekki gera karakternum Charlene neinn greiða. Það hefur liðið svo langur tími að það hefði verið óeðlilegt og sennilega ekki gengið upp,“ segir hún. Minogue hætti í Nágrönnum árið 1988 eftir að hafa leikið í þáttunum í tvö ár. Þær stjörnur sem verða í þættinum eru Guy Pearce, Delta Goodrem og Margot Robbie. Neitaði að fara aft ur í Granna KYLIE MINOGUE Kynlífsatriði í kvikmyndinni 50 Shades of Grey, sem byggð er á samnefndri bók E.L. James, þóttu of gróf fyrir bíógesti í Víet- nam og var gripið til þess ráðs að klippa atriðin úr myndinni. Alls var hún stytt um tuttugu mínútur. Myndin hefur nú þegar verið bönnuð í kvikmyndahús- um víða um heim, meðal annars á Indlandi, í Malasíu og Indó- nesíu. Ekki er vitað hvort um öll kynlífsatriði myndarinnar er að ræða, en líklegt þykir að loka- atriði myndarinnar, sem hefur farið fyrir brjóstið á mörgum, hafi verið klippt út. 20 mínútum styttri skuggar OF GRÓFT Myndin hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Á dögunum kvisaðist út að söng- konan Taylor Swift hafi búið svo um hnútana fyrir tónleikaferð sína, 1989 World Tour, að leggir hennar væru tryggðir ef eitthvað kæmi upp á. Leggir poppprinsessunnar eru því tryggðir fyrir litlar fjörutíu milljónir Bandaríkjadala. Það samsvarar rúmlega fimm og hálfum milljarði íslenskra króna. Heimildarmenn segja Swift hafa orðið furðulostna yfir tölun- um þegar þær komu í ljós. Swift þykir þó vissulega hafa tilefni til fjárfestingarinnar, en þessir lögulegu leggir leika stórt hlut- verk í tónleikahaldi skvísunnar. Rándýrir leggir SWIFT Í SVEIFLU Söngkonan tekur enga áhættu á tekjutapi, enda ástæðu- laust með öllu. NORDICPHOTOS 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 7 -1 7 4 8 1 4 1 7 -1 6 0 C 1 4 1 7 -1 4 D 0 1 4 1 7 -1 3 9 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.