Fréttablaðið - 30.03.2015, Síða 6
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Dásamlegur á brauðið og
hentugur fyrir heimilið
Engin
fyrirhöfn
ms.is
TILBOÐ25
sneiðar
Falleg og vinsæl gjafavöruverslun á Skólavörðustíg
Viltu eignast eina fallegustu gjafavöruverslun miðborgarinnar á besta stað á
Skólavörðustíg? Eigin innflutningur og góð umboð með vönduðum vörum.
Töluverður vörulager fylgir og frábær tími framundan Verð 17 m.
Rótgróin hverfissjoppa á frábærum stað í Reykjavík
Sami eigandi í 22 ár. Miklir möguleikar. Verð 12,5 m.
Flottasta kventískuverslun miðborgarinnar
Vandaðar vörur og hagkvæmar í innkaupum. Öflug netverslun fylgir, sem hefur
vaxið mjög vel. Miklir möguleikar. Verð 25 m.
Fiskbúð í fjölmennu hverfi
Nýlega endurnýjuð fiskbúð sem byggir gömlum grunni. Verð 12 m.
Tælenskur veitingastaður
Frábær matur. Mikil take-away sala. Góður tækjakostur. Verð 8,5 m.
Leigumiðlun
Þóknunartengd miðlun. Mikilli þróunarvinnu og undirbúningi lokið og miklir
möguleikar á markaðsráðandi stöðu á sínu sviði. Verð 9,5 m.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
Fyrirtækjasalan
SUÐURVER
1987-2015 | Lækjartorgi 5
516-0000 | fyrirtaeki.is | fyrirtaeki@fyrirtaeki.is
Guðrún Hulda Ólafsdóttir, hdl. og löggiltur fyrirtækjasali
SAMFÉLAG Birna María Másdóttir,
17 ára nemandi í Verzlunarskólan-
um, og móðir hennar, Erna Agn-
arsdóttir, fóru tómhentar heim
frá fyrirtækinu Auðkenni þar sem
móðirin þótti ekki fullnægjandi
forráðamaður því að hún er yngra
foreldri Birnu.
Mæðgurnar mættu til að sækja
um rafræn skilríki fyrir Birnu
Maríu en var vísað frá þar sem
hún var ekki í fylgd „eldri forráða-
manns“, það er að segja þess for-
eldris sem eldra er.
„Okkur var vísað frá af því hún
var ekki í fylgd eldri forráða-
manns,“ segir Erna í samtali við
Fréttablaðið.
„Ég velti því fyrir mér hvort ég
væri ekki orðin nógu gömul þó ég
sé að verða 45 ára þegar mér var
sagt að eldri forráðamann þyrfti
til að nálgast þetta fyrir hana,“
segir Erna í léttum dúr og bætir
við að það muni jú heilum mánuði
á henni og föður Birnu í aldri.
Birna María segir starfsmann
Auðkennis sem tilkynnti þeim að
þær myndu ekki fá afgreiðslu án
eldri forráðamannsins hafa verið
mjög vandræðalegan.
„Þetta var eiginlega bara fynd-
ið. Við hálf vorkenndum henni að
þurfa að segja okkur þetta. En ég
hef aldrei heyrt svona lagað áður.
Að það væri ekki hægt að taka
mömmu gilda sem forráðamann
bara af því hún er mánuði yngri
en pabbi minn. En nú veit maður
hver það er sem raunverulega
ræður á heimilinu,“ segir Birna
María gamansöm.
Hún segir þær mæðgur þó hafa
tekið gleði sína á ný þar sem þær
gátu fengið rafræn skilríki í bank-
anum.
Ekki náðist í Harald Bjarnason,
framkvæmdastjóra Auðkennis,
en samkvæmt upplýsingum frá
starfsmönnum fyrirtækisins sem
höfðu heyrt af atvikinu er um að
ræða galla í kerfinu hjá þeim sem
tengist svokölluðu fjölskyldunúm-
eri í Þjóðskrá.
„Kerfið var því miður forrit-
að svona til að byrja með. Það er
verið að breyta þessu og verður
vonandi komið í lag fyrir páska.
Okkur þykir þetta afskaplega leitt
og hörmum að mæðgurnar hafi
þurft að fara í fýluferð,“ segir í
svari Auðkennis til Fréttablaðs-
ins. fanney@frettabladid.is
Yngra foreldrið ekki
fullgilt hjá Auðkenni
Móðir fékk ekki að sækja um rafræn skilríki hjá fyrirtækinu Auðkenni fyrir ólög-
ráða dóttur sína þar sem eldri forráðamann þurfti til. Fyndið og vandræðalegt
segir dóttirin. Auðkenni harmar atvikið og hyggst leiðrétta villu í kerfi sem veldur.
ÁSAHREPPUR Ekki er eining
í hreppsefnd Ásahrepps um
ráðningu sveitarstjóra. Hrepps-
nefnd hefur því frestað ráðningu
sveitar stjóra til næstu áramóta.
Nanna Jónsdóttir varaoddviti
mun áfram sinna störfum sveitar-
stjóra til áramóta með sömu kjör-
um og Björgvin G. Sigurðsson
hafði. Athygli vekur að Nanna
samþykkti sjálf tillöguna ásamt
hinum í meirihluta hreppsnefnd-
ar. Minnihluti hreppsnefndar er
afar óánægður með málalokin. - sa
Enn er deilt í Ásahreppi:
Ekki sátt um
nýja ráðningu
STJÓRNSÝSLA Neyðarlínan fær
58.980.000 krónur úr jöfnunar-
sjóði alþjónustu fyrir þetta ár,
samkvæmt ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS).
Um er að ræða framlag vegna
talsímaþjónustu á sviði neyðar-
þjónustu og neyðarsímsvörunar
sem Neyðarlínunni er skylt að veita.
Að því er segir í ákvörðun PFS má
ætla samkvæmt mælingum á nýtni
neyðar borða og öryggisborða 112
að 22,4 prósent af þjónustu félags-
ins falli undir alþjónustukvöð. - óká
Póst- og fjarskiptastofnun samþykkir jöfnunarframlag til Neyðarlínunnar:
112 fær tæpar sextíu milljónir
1. Hve mikill var hagnaður Íbúðalána-
sjóðs á síðasta ári?
2. Hver er forseti Nígeríu?
3. Hver er höfundur leikritsins
Hystory sem frumsýnt var í Borgar-
leikhúsinu í síðustu viku?
SVÖR
1. 3,4 milljarðar. 2. Goodluck Jonathan
3. Kristín Eiríksdóttir
SLYSAÆFING
Í ákvörðun
PFS kemur
fram að
kostnaður
vegna 112
var 263,3
milljónir
króna í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
FÝLUFERÐ
Mæðgurnar Erna
Agnarsdóttir og
Birna María Más-
dóttir fengu ekki
að sækja um
rafræn skilríki
þar sem Erna er
yngri en faðir
Birnu Maríu.
SAMFÉLAG Sumartími tók gildi í
Evrópu á laugardagsnótt og nú er
tímamunurinn á milli Íslands og
meginlands Evrópu tvær klukku-
stundir og ein klukkustund á milli
Íslands og Bretlands.
Páll Valur Björnsson, þing-
maður Bjartrar framtíðar,
hefur ásamt þingmönnum allra
flokka nema VG lagt fram
þingsályktunar tillögu um að
breyta klukkunni á Íslandi –
að henni verði seinkað um eina
klukkustund. Þannig verði hægt
að fækka myrkum morgnum til
muna.
Páll Valur segist hafar þá til-
finningu að frumvarpið verði
ekki tekið til efnislegrar umræðu
á vorþingi.
„Það er mikill áhugi á þessu í
samfélaginu en fæst ekki rætt á
þingi,“ segir Páll Valur sem von-
ast eftir efnislegri umræðu.
Nokkrir hafa lagst gegn fyrir-
hugaðri breytingu á klukkunni,
þeirra á meðal Icelandair.
Í umsögn flugfélagins um frum-
varpið segir að nái þingsályktunar-
tillagan fram að ganga muni
afgreiðslutímar á flugleiðum
félagsins milli Evrópu og Norður-
Ameríku hér á landi líklega færast
fram um eina klukkustund og þar
með gerbreyta þeim flugáætlunum
sem rekstur félagsins hefur snúist
um síðustu áratugi.
Þetta muni leiða til aukins
áhafnakostnaðar félagsins og þá
gæti Icelandair misst rétt sem
félagið hefur öðlast á sambæri-
legum afgreiðslutímum á erlend-
um flugvöllum.
- kbg
Icelandair alfarið á móti frumvarpi um seinkun klukkunnar á Íslandi:
Dýrt og áætlanir myndu riðlast
VILL EFNISLEGA UMRÆÐU Páll Valur
Björnsson hefur ekki trú á að frumvarp
um breytta klukku á Íslandi nái í gegn
fyrir sumarið. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
VEISTU SVARIÐ?
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
0
-6
2
2
0
1
4
5
0
-6
0
E
4
1
4
5
0
-5
F
A
8
1
4
5
0
-5
E
6
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K