Fréttablaðið - 30.03.2015, Side 10
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Tilskipun Evrópusambandsins um réttindi sjúklinga varðandi
heilbrigðis þjónustu yfir landamæri er ætlað að auðvelda aðgang
að öruggri heilbrigðisþjónustu og efla samstarf milli aðildarríkja
sambandsins á þessu sviði. En hvernig hefur gengið að innleiða
þessa tilskipun og hvað áhrif mun hún hafa fyrir Ísland?
John Rowan
Þórunn Oddný
Steinsdóttir
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við Evrópustofu
ÞRIÐJUDAGINN 31. MARS KL. 9.00-10.30
Í FYRIRLESTRASAL ÞJÓÐMINJASAFNSINS
www.ams.hi.is og www.evropustofa.is
Education and Culture
Lifelong Learning Programme
JEAN MONNET
Heilbrigðisþjónusta yfir
landamæri í Evrópu:
Réttindi sjúklinga og áhrif á
íslenskt heilbrigðiskerfi
Ný tilskipun Evrópus ambands ins:
Geta sjúklingar nú valið í hvaða landi þeir
nálgast heilbrigðisþjónustu?
John Rowan er yfirmaður teymis hjá Evrópusambandinu sem vinnur að
innleiðingu tilskipunarinnar um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.
Innleiðingin á Íslandi:
Hvaða áhrif mun tilskipunin hafa á sjúklinga
og íslenskt heilbrigðiskerfi?
Þórunn Oddný Steinsdóttir er lögfræðingur á skrifstofu
heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu.
Fundarstjóri: Gunnar Alexander Ólafsson, heilsuhagfræðingur.
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffiveitingar kl. 8:30-9:00.
Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · hekla.is
BREMSAÐU AF ÖRYGGI
20%
AFSLÁTTUR
BREMSUVÖRUR OG
BREMSUVINNA VIÐ
HEKLUBÍLA
Renndu við hjá HEKLU við Laugaveg og við skiptum um bremsuklossa/bremsudiska
á meðan þú bíður.
Hjá HEKLU er óþarfi að panta tíma fyrir smærri viðgerðir. Ef þú vilt ekki bíða skilur þú
bílinn eftir hjá okkur og við skutlum þér þangað sem þú vilt fara – og sækjum þig aftur!
SJÁVARÚTVEGUR Matorka telur
Samherja hafa fengið forskot á
samkeppnisaðila með því að hafa
keypt fiskeldisstöðvar á hrakvirði
út úr þrotabúum. Þetta kemur
fram í minnisblaði Matorku sem
lagt var fyrir Atvinnuveganefnd
vegna málsins. Samherji vísar
ásökunum Matorku til föðurhús-
anna.
„Það er miður að nafn Samherja
skuli vera dregið inn í umræðuna
á þann hátt sem forsvarsmenn
Matorku gera í bréfi sínu til
Atvinnuveganefndar Alþingis,“
segir Jón Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsbleikju, sem
er í eigu Samherja.
„Það að halda því fram að mark-
aður sem er í dag um 6.000 tonn
í heiminum geti tekið við þeim
vexti sem nú er rætt um er ekki
í neinu samræmi við þann veru-
leika sem við þekkjum,“ segir Jón.
Fram kemur í minnisblaði
Matorku að flestar ef ekki allar
landeldisstöðvar laxfiska hafi
farið í gegn um gjaldþrot og
sumar oft. Vilja forsvarsmenn
Matorku meina að afskriftir og
kaup Samherja á fyrirtækjunum
á hrakvirði veiti
framleiðendum
forskot á þá sem
byggja fiskeldis-
stöð frá grunni.
Ívilnunar-
samningur
M ato rk u o g
íslenska ríkisins
hefur verið tal-
inn samkeppnis-
raskandi af þeim
aðilum sem fyrir
eru á markaði. Forsvarsmenn
Matorku spyrja sig hins vegar
hvort kaup Samherja á þrotabúum
„á hrakvirði“ sé ekki samkeppnis-
röskun einnig.
„Við erum ekki að benda á eitt-
hvert eitt fyrirtæki í þessu sam-
hengi,“ segir Árni Páll Einars-
son, framkvæmdastjóri Matorku.
„Eldisiðnaðurinn á Íslandi er
byggður upp á gömlum stöðvum
og keyptur út úr þrotabúum á lágu
verði og við vekjum máls á mun-
inum á því og að byggja upp stöð
frá grunni.“
Jón Kjartan segir ekki rétt að
stöðvar hafi verið keyptar á hrak-
virði út úr þrotabúum.
„Allar stöðvar sem eru í eigu
félagsins hafa verið keyptar í
fullum rekstri á markaðsverði af
einstaklingum sem höfðu verið
eigendur þeirra frá stofnun eða
til nokkurra ára,“ segir Jón.
Forsvarsmenn Matorku ætla
sér að framleiða um 3.000 tonn
á ári. „Til að auka sölu á bleikju
þarf að auka framleiðslugetuna
á markaðnum, það liggur í hlut-
arins eðli. Það mun skila sér í
auknum gjaldeyristekjum og
fleiri störfum á landinu og leið-
ir aðeins gott af sér,“ segir Árni
Páll.
sveinn@frettabladid.is
Telja Samherja hafa
samkeppnisforskot
Forsvarsmenn Matorku telja fyrirtæki í bleikjueldi á Íslandi búa við samkeppnis-
forskot. Rekstraraðilar hafi keypt stöðvar á „hrakvirði“ út úr þrotabúum. Fram-
kvæmdastjóri Íslandsbleikju segir fullyrðingarnar ekki eiga við rök að styðjast.
SVARTSENGI Matorka mun nýta heitt affallsvatn frá orkuverinu í Svartsengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁRNI PÁLL
EINARSSON
framkvæmdastjóri
Matorku
Það að halda því fram
að markaður sem er í dag
um 6.000 tonn í heiminum
geti tekið við þeim vexti
sem nú er rætt um er ekki
í neinu samræmi við þann
veruleika sem við þekkj-
um.
Jón Kjartan Jónsson,
framkvæmdastjóri Íslandsbleikju.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
FJÁRMÁL Haraldur L. Haraldsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, freist-
ar þess nú að endursemja við fyrir-
tækið sem á og rekur Áslandsskóla
á kostnað bæjarins.
„Eignarhaldsfélagið Fasteign
og þeir samningar sem þar voru
gerðir eru mestu mistök sem gerð
voru hjá sveitarfélögunum,“ segir
Haraldur.
Áslandsskóli er alfarið í einka-
eign en það fyrirkomulag má
rekja til samnings frá 16. mars
2000 milli Hafnarfjarðarbæjar
og FM húsa ehf. um svokallaða
einkaframkvæmd. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn fóru með meirihluta í bæjar-
stjórn á þessum tíma. Samkvæmt
samningnum skyldi FM hús annast
byggingu og rekstur Áslandsskóla
í 27 ár.
Þegar upp verður staðið verður
Hafnarfjarðarbær búinn að greiða
FM húsum ehf. samtals 6 milljarða
króna fyrir leigu á húsnæði og
rekstur skólans á samningstíman-
um. Byggingarkostnaður með hús-
gögnum og búnaði, uppreiknaður
með hliðsjón af vísitölu neyslu-
verðs, er 2,2 milljarðar króna.
„Á samningstímanum munu
skattgreiðendur í Hafnarfirði hafa
greitt upp allan kostnað við bygg-
ingu og rekstur þessarar fasteign-
ar og þar með talinn fjármagns-
kostnað. Án þess að eignast krónu
í eigninni að samningstíma lokn-
um,“ segir Gunnar Axel Axelsson
bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna
í Hafnarfirði. - þþ
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar vill viðræður við FM hús:
Borga stórfé en eiga
ekkert í Áslandsskóla
HARALDUR L. HARALDSSON Freistar
þess að endursemja um Áslandsskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
0
-7
0
F
0
1
4
5
0
-6
F
B
4
1
4
5
0
-6
E
7
8
1
4
5
0
-6
D
3
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K