Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 16
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar
andlát ber
að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Rósa Kristjánsdóttir
útfararstjóri
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðiþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Kæra systir okkar og frænka,
ÞÓRA JÓHANNSDÓTTIR
frá Garðsá,
sem lést miðvikudaginn 18. mars, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
1. apríl kl. 13.30.
Hrafnhildur, Margrét og systkinabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BRYNJA BORGÞÓRSDÓTTIR
til heimilis að Sólvangi, Hafnarfirði,
áður Álfaskeiði 64d,
sem lést á Sólvangi fimmtudaginn 19. mars,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
1. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði.
Gunnar Þór Júlíusson Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir
Guðrún Júlíusdóttir Jón Vídalín Hinriksson
Helgi Guðbjörn Júlíusson Stefanía Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1492 Ferdinand og Ísabella gáfu út tilskipun um að allir
gyðingar sem ekki tækju rómversk-kaþólska trú skyldu yfir-
gefa Spán.
1533 Thomas Cranmer varð erkibiskup af Kantaraborg.
1802 Bólusetn-
ing við kúabólu
var lögboðin á
Íslandi og var
það með fyrstu
löndum til slíkr-
ar lagasetning-
ar.
1816 Hið
íslenska bók-
menntafélag
var stofnað. Það
gefur út Skírni,
sem er elsta
tímarit á Norð-
urlöndum.
1841 Þjóðar-
banki Grikk-
lands stofnaður
í Aþenu.
1853 Fæðing-
ardagur hol-
lenska listmál-
arans Vincents
van Gogh.
1858 Hymen
Lipman fékk skráð einkaleyfi á blýanti með áföstu strok-
leðri.
1867 Bandaríkin keyptu Alaska af Rússum fyrir 7,2 milljón-
ir dollara.
1934 Eldgos hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli og olli hlaupi
í Skeiðará.
1945 Síðari heimsstyrjöldin: Sovétmenn réðust inn í Aust-
urríki og hertóku Vínarborg.
1949 Alþingi Íslendinga samþykkti aðild landsins að NATO,
en við það brutust út óeirðir á Austurvelli.
1981 Ronald Reagan Bandaríkjaforseti skotinn og særður
af John Hinckley rétt við Hvíta húsið.
1985 Mótefni gegn eyðniveiru fundust í fyrsta sinn í blóði
Íslendings.
2006 Mýraeldar komu upp í Hraunhreppi í Mýrasýslu og
brunnu í yfir tvo sólarhringa. Þetta voru mestu sinueldar
sem um er vitað á Íslandi og brunnu um 67 km2 lands.
2010 Þrjátíu og átta láta lífið og sextíu særðust í sjálfs-
morðssprengingum í hraðlestarstöð í Moskvu.
Þann 30. mars árið 1949 kom
saman margmenni á Austur-
velli og mótmælti harðlega
hugmyndum stjórnvalda um að
gerast stofnaðilar að Atlants-
hafsbandalaginu. Andstæðingar
NATÓ sem og almennir borgarar
flykktust á Austurvöll. Mótmæl-
endur létu hátt þennan dag og
köstuðu eggjum og grjóti að
alþingishúsinu.
Voru óeirðirnar slíkar á
þessum degi að lögreglan þurfti
að nota áður óþekkt meðöl á
þeim tíma gegn pólitísku upp-
þoti. Þurftu laganna verðir að
nota táragas til þess að skakka
leikinn og reyna að stilla til
friðar.
Ríkisstjórn Stefáns Jóhanns
Stefánssonar náði sínu fram
þennan dag. Ríkisstjórnin var
samsteypustjórn Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks.
Rétt eins og í búsáhaldabylt-
ingunni veturinn 2008-2009
hrökklaðist ríkisstjórn Stefáns
Jóhanns frá völdum síðla árs
1949. - sa
ÞETTA GERÐIST: 30. MARS 1949
Mótmæli brutust út
„Ég er hér í blíðskaparveðri og
algerri slökun með fjölskyldunni,“
segir Guðlaug María Bjarnadótt-
ir leikkona þegar hún er ónáðuð á
Tenerife í tilefni sextugsafmælisins
sem er í dag. „Svo vill svo skemmti-
lega til að margir vinir mínir hafa
verið hér líka, sumir eru reyndar
farnir heim og aðrir eru á förum.
Ég hef farið út að borða með þeim
í hollum í tilefni afmælisins, þann-
ig að afmælisdagurinn sjálfur er
þriðji í afmæli hjá mér. Svo verður
fjórði í afmæli þegar yngsta dóttir
mín kemur, hún er í leiklistarnámi í
Bratislava þessa önn en kemur hing-
að innan fárra daga.“
Guðlaug María kveðst hafa alist
upp á Akureyri og á góðar minning-
ar þaðan. Þegar minnst er á Sjall-
ann, viðurkennir hún að hafa dulbú-
ið sig með mikilli fyrirhöfn til að
komast þar inn áður en hún hafði
aldur til. Sama gilti um leiklistar-
námskeiðið sem hún fór á hjá Arnari
Jónssyni, Þórhildi Þorleifsdóttur og
Sigmundi Erni Arngrímssyni. „Það
var sextán ára aldurstakmark en ég
komst inn áður en ég náði því tak-
marki. Það var ágætur skóli. Þaðan
lá leiðin í Leiklistarskóla Íslands
og svo fór ég að leika.“ Af eftir-
minnilegum sýningum nefnir hún
Amadeus í Þjóðleikhúsinu, Reykja-
víkursögur Ástu í Hlaðvarpanum,
Bílaverkstæði Badda og Gaura-
gang. Auk þess var hún í Pæld’íðí-
hópnum sem hafði það hlutverk að
sýna fræðandi og uppbyggileg verk
fyrir börn og unglinga. „Við byrjuð-
um á mjög hneykslanlegu verki um
kynfræðslu sem hét Pæld’íðí og var
bannað sums staðar. Fengum alveg
ótrúlega góða auglýsingu því um það
var náttúrlega fjallað í blöðunum,“
rifjar hún upp glaðlega.
„Svo er gaman að segja frá því
að um daginn var ég í fornbóka-
búð að leita að ljóðabók sem ég gaf
út á mínum yngri árum. Þá sagði
afgreiðslumaðurinn: „Já, eftir Guð-
laugu Maríu Bjarnadóttur? Ég sá
eina leiksýningu með henni, það
var Hvað gerðist í gær? Hún er
ógleymanleg.“ Hann fattaði ekkert
við hverja hann var að tala. Hvað
gerðist í gær? fjallaði um fangabúð-
ir gyðinga og ég var ein á sviðinu
í tvo og hálfan tíma. Ég þurfti sko
ekki að fara í megrun því ég breytt-
ist í Belsen-fanga, æfingarnar voru
svo erfiðar. En mér þótti vænt um
ummæli afgreiðsumannsins.“
Nú er Guðlaug María kennari við
Borgarholtsskóla. „Ég ákvað að fara
í háskólann þegar ég var um fertugt,
fannst ég aldrei hafa lært alveg nóg
og fór í uppeldis- og kennslufræði
og svo menntunarfræði. Eftir það
fannst mér svo gott að hafa frí á
kvöldin að ég svissaði yfir í kennsl-
una. Það er aldrei að vita nema ég
byrji að leika aftur þegar ég verð
orðin gömul, það vantar alltaf kerl-
ingar með fullu viti í einhver hlut-
verk.“ gun@frettabladid.is
Þriðji í afmæli í dag
Guðlaug María Bjarnadóttir, leikkona og kennari, er sextug í dag og fagnar því með
margra daga hátíðahöldum í góðra vina hópi suður á hinni sólríku eyju Tenerife.
Við byrjuðum á mjög
hneykslanlegu verki um
kynfræðslu sem hét Pæld’íðí
og var bannað sums staðar.
Fengum alveg ótrúlega góða
auglýsingu því um það var
náttúrlega fjallað í blöðunum.
Í SÓLINNI Á
TENE „Ég er hér
í blíð skaparveðri
og algerri slökun
með fjölskyldunni,“
segir Guðlaug
María.
MYND/FREYR ÓLAFSSON
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
0
-3
5
B
0
1
4
5
0
-3
4
7
4
1
4
5
0
-3
3
3
8
1
4
5
0
-3
1
F
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K