Skessuhorn


Skessuhorn - 22.08.2007, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 22.08.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST Grunn skóli Snæ fells bæj ar var sett ur sl. mánu dag. Skóla stjóri er Magn ús Þór Jóns- son og seg ir hann í sam tali við Skessu horn að fjöldi nem enda sé 238 í Ó lafs vík og á Hell- issandi en á Lýsu hóli eru 20 nem end ur. „Við verð um með margs kon ar breyt ing ar í skóla- starf inu,“ seg ir Magn ús. „Við kenn um nú sund á nám skeið um í 1. - 4.bekk. Í sept em ber mun um við opna verk- efna ver í skóla hús næð inu á Hell- issandi og í Ó lafs vík í tengsl um við aukn ar á hersl ur á sam vinnu nám og heim ilda leit. Auk þess verða all ar kennslu stof ur með nettengd um tölv- um auk vinnu rým is í skóla hús næð inu sem mið ar að því að auka upp lýs inga- gjöf veru lega til allra er tengj ast skól- an um og auka færni nem enda á tölv ur sem sjálf sögð hjálp ar tæki í námi. Við erum að end ur skoða náms mat skól ans, auka val í ung linga deild auk þess sem við stefn um á að fær ast nær Græn fán an- um frá Land vernd sem við ur kenn ingu á um hverf is starfi. Síð ast en ekki síst auk- um við þjón ustu við nem end ur okk ar í nær ing ar mál um, bjóð um upp á á vexti í skól an um og gef um kost á því að kaupa hafra graut áður en skóli hefst hjá nem- end um á yngsta stigi,“ seg ir Magn ús. Hann seg ir jafn framt að helstu verk - efn i skól ans séu skýr: „Við ætl um að auka fjöl breytni í kennslu hátt um og náms mati. Leggj um mikla á herslu á sam vinnu nám og heim ilda vinnu. Eins og kom fram ætl um við okk ur að kom ast ná lægt Græn fán an um í vor og von andi náum við fána í hús, ann- að hvort á Hell issandi eða í Ó lafs vík. Þá hafa all ar starfs stöðv ar skól ans náð fán an um, sem ein göngu um hverf is sinn arn ir í Lýsu hóls skóla geta nú flagg að.“ Magn ús seg ir að Grunn skóli Snæ fells- bæj ar sé í raun ein stak ur skóli. „Okk ur vit- an lega er eng inn með sama formi og okk ar skóli. Heild stæð ur skóli í 1. - 10.bekk norð- an heið ar með tvær starfs stöðv ar og svo fá- menn starfs stöð í 1. - 10. bekk sunn an heið- ar. Við erum smám sam an að átta okk ur á því hvað við erum ein stök og ætl um að nýta okk- ur þá sér stöðu. Á hersla skól ans er að nálg ast hvern ein stak ling út frá hans styrk leik um auk þess sem við erum alltaf að vinna meira og meira að því að nýta okk ur ó trú lega nátt úru og sögu bæj ar fé lags ins okk ur til kennslu. Afar ólík sam fé lags gerð í sveit ar fé lag inu og nem- enda hópn um er gríð ar skemmti legt við fangs- efni sem við ætl um að nálg ast á ein stak lings- grunni.“ Að spurð ur seg ir Magn ús að manna ráðn- ing ar hafi gengi afar vel. Fyllt hef ur ver ið í all ar stöð ur og stunda töfl ur eru til- bún ar. Hlut fall leið bein anda við kennslu fer lækk andi, í dag er hlut fall þeirra um 18%. af Grunn skól inn í Tjarn ar lundi í Dala byggð var sett ur í dag, 22. á gúst og þar hef ur nýr skóla stjóri tek ið til starfa. Það er Guð björg Björns dótt ir. Hún er Dala mað ur, ætt uð frá Reyniskeldu á Skarðs strönd. Í Tjarn ar lundi sem er með gamla Saur bæj ar- og Skarðs- strand ar hrepp á sínu starfs svæði eru 15 nem- end ur þetta árið, en eng inn í 10. bekk. Á síð- asta ári voru 14 nem end ur við skól ann. Guð- björg seg ir að nýj um herr um fylgi alltaf ein- hverj ir nýir sið ir og hana langi til að leggja á herslu á um hverfi skól ans og skap andi vinnu nem enda því tengt. Það vant ar sem dæmi öll leik tæki við skól ann og hægt væri að skoða að skapa eitt hvað sem nýst gæti sem slíkt þótt einnig yrði prýði að þeim mun um í leið inni. Þannig hátt ar til að Tjarn ar lund ur er jafn- framt fé lags heim ili sveit ar inn ar og því vill Guð björg stuðla að því að hægt sé að reka hvoru tveggja án mik illa á rekstra. „Hús ið sjálft er hins veg ar far ið að láta á sjá og þarf nauð syn lega að fara að bæta það. Sveit ar fé- lag ið Dala byggð þarf að fara í við hald á hús- inu áður en skemmd ir verða al var legri. Að- stað an hér er hins veg ar skemmti leg og um- hverf ið heim il is legt. Verk efni vetr ar ins verða hefð bund in en rætt hef ur ver ið um sam starf við til rauna smiðj una á Nýp og í sam vinnu við þau mun um við fara af stað í sept em ber með dag skrá sem helguð verð ur Stef áni frá Hvíta- dal. Þar gæti ver ið um að ræða tón list ar flutn- ing, mynd list og upp lest ur,“ sagði Guð björg í sam tali við Skessu horn. Við Grunn skól ann í Tjarn ar lundi starfar ó fag lærð ur kenn ari með skóla stjóra. Einnig eru stunda kenn ar ar sem koma til með að kenna heim il is fræði og textíl mennt. Börn in fara inn að Laug um í Sæl ings dal í sund og leik fi mi kennslu og dans kenn ari kem ur og held ur nám skeið. Há deg is mat ur er í boði á staðn um en morg un hress ingu koma nem- end ur með að heim an og borða sam an á sal. „Ég hlakka mik ið til að takast á við þetta verk- efni og er spennt fyr ir starf inu. Smá ir skól- ar bjóða upp á mikla mögu leika sem ég hef á huga á að nýta. Í því sam bandi mun ég verða með í sam tök um fám mennra skóla, þar inn an búð ar er án efa mik inn fróð leik að finna sem gott verð ur að fá að gang að,“ sagði Guð björg Björns dótt ir, skóla stjóri. bgk Grunn skól inn í Búð ar dal var sett ur 21. á gúst og hófst kennsla í dag, mið viku dag. Þar er sem fyrr skóla stjóri Guð rún G. Hall dórs- dótt ir. Hún sagði í sam tali við Skessu horn að nem end ur væru held ur fleiri núna í upp hafi skóla árs en þeir voru í fyrra, eða 86 og jafn vel væri von á þrem ur til við bót ar. Starfs menn skól ans væru 18 og þarf af væru 11 kenn ar ar og tveir stjórn end ur sem báð ir hefðu kennslu skyldu. Þar að auki eru fimm skóla bíl stjór ar sem sjá um að koma nem end- um í og úr skóla. Ekki væru all ir kenn ar ar með rétt indi þetta árið og aldrei hefði geng ið eins illa að manna stöð ur við skól ann og nú. „Ég hef orð ið að hringja sjálf í fólk sem mér datt í hug að myndu vilja vinnu hérna. Það sótti ein fald lega eng inn um. En ég er búin að ráða í all ar stöð ur sem bet ur fer,“ sagði Guð rún skóla stjóri. Hún bætti við að laun væru orð in svo há í þjóð fé lag inu að rétt inda fólk færi frek ar ann að. „Það er orð in ansi svart ef skól ar þurfa að byggja á slæmri af komu í þjóð fé lag inu til að fá fólk til starfa. Í slæmu ár ferði er nefni lega nóg fram boð af góðu fólki.“ Nám ið í Grunn skól an um í Búð ar dal er hefð bund ið milli ára og helstu verk efni vetr ar ins utan hins venju bunda, sem jafn- framt tengj ast sér stöðu skól- ans, er vinnsla Vík inga þorps sem skól inn hef ur feng ið styrk til að gera hjá Menn ing ar ráði Vest ur lands. Þar er lík lega um að ræða tveggja til þriggja ára verk efni sem enn fer ein- ung is fram inn an húss. „Við erum ýkt góð í sögu vík ing- anna, eins og sum ir krakk- arn ir orða það. Hér er sag- an á hverju strái og sögu arf- ur inn því afar stór í hug um okk ar allra.“ Í Búð ar dal er ekk ert í þrótta hús eða sund laug svo nem end ur það an fara inn að Laug um í Sæl ings- dal til að stunda í þrótt- ir. Akst ur þang að tek- ur um 15 mín út ur hvora leið. Dans nám skeið eru hald in ár hvert og kem- ur kenn ari frá Dans- skóla Jóns Pét urs og Köru til að iðka fóta- mennt ina með nem- end um. En stolt skóla- stjór ans er mötu neyt ið. „Hér er gíf ur lega gott mötu neyti þar sem boð ið er upp á heim il is- mat en ekki eitt hvað for soð ið og mér finnst sem for eldri og skóla manni afar mik il vægt að hafa góð an og holl an mat í boði,“ sagði Guð- rún G. Hall dórs dótt ir skóla stjóri. bgk Í Grunn skóla Grund ar fjarð ar verða um 140 nem end ur í vet ur og er það nokk ur fækk- un frá því í fyrra, að sögn Ragn heið ar Þór ar- ins dótt ur skóla stjóra. Seg ir hún að í bú um sé ekki að fækka en þeir eru að eld ast og fæð ing- um fækk ar. „Síð ast lið inn vet ur bauð Grund- ar fjarð ar bær í sam starfi við Heilsu gæslu- stöð Grund ar fjarð ar öllu starfs fólki leik- og grunn skóla upp á SOS-upp eld is nám skeið. Einnig var öll um for eldr um barna á aldr in- um tveggja til tólf ára boð ið upp á sams kon- ar nám skeið. SOS nám skeið in stefna að ár- ang urs ríku upp eldi barna og sam ræm ingu á hegð un ar mót un bæði á heim ilum og í skóla,“ seg ir Ragn heið ur og bæt ir við að að ferðin hafi mælst vel fyr ir og verði því fylgt eft- ir nú í vet ur. „Ein stak lings mið að nám hef- ur ver ið í þró un und an far in ár hér í skól an- um og er mark visst unn ið að því að koma sem best til móts við þarf ir, á huga og getu allra nemenda,“sagði hún. Ragn heið ur seg ir að í ung linga deild og þá sér stak lega í 10. bekk verði kennslu hætt ir að- lag að ir að nokkru leyti að kennslu hátt um í Fjöl brauta skóla Snæ fell inga en flest ir nem- end ur sem út skrif ast úr skól an um fara í fram- halds nám þang að. „Þeir nem end ur í 9. og 10. bekk sem hafa náð góð um ár angri í ensku og stærð fræði geta auk þess sótt nám í þess um grein um í Fjöl brauta skóla Snæ fell inga sam- hliða nám inu í grunn skól an um. Í sam starfi við Tón list ar skóla Grund ar fjarð ar stunda nem end ur í 1. og 2. bekk nám á blokk flautu og hef ur svo ver ið í nokk ur ár.“ Að sögn Ragn heið ar hef ur ver ið mjög gott sam starf grunn skól ans við leik skól ann Sól- velli og hef ur ver ið skipu lagt sam starf milli skól anna til fjölda ára. Gagn kvæm ar heim- sókn ir eru á milli elstu nem enda leik skól ans og fyrstu bekk inga grunn skól ans yfir vet ur- inn og lýk ur svo með því að leik skóla börn in eru í grunn skól an um í eina viku að vori tvær klukku stund ir á dag. Þannig seg ir hún að- lög un milli allra skóla stiga vera mark vissa og mikla í Grund ar firði, sem er til góðs. Mik il á hersla er á notk un tölva í kennslu í Grunn skól an um í Grund ar firði og seg- ir Ragn heið ur að tölvu kost ur grunn skól ans sé mjög góð ur. „Bæði höf um við vel út bú ið tölvu ver og einnig tölvu vagna sem eru fær an- leg ir milli kennslu stofa. All ar kennslu stof ur eru með tölvu og síma fyr ir kenn ara. Þá seg ir Ragn heið ur að í skól an um sé starf andi öfl ug- ur hóp ur kenn ara og flest ir með full kennslu- rétt indi, eða 15 af 19. Hin ir eru að mennta sig til starfs ins. „Kenn ar ar hafa ver ið dug leg- ir við að bæta við sig mennt un og fylgj ast vel með þró un kennslu hátta,“ sagði Ragn heið ur að lok um. af Grunn skóli Snæ fells bæj ar: Ætl um að nýta meira nátt úru og sögu bæj ar fé lags ins Grunn skól inn í Búð ar dal: Ýkt góð í sögu vík inga tíma bils ins Grunn skól inn í Tjarn ar lundi í Dala byggð: Nýr skóla stjóri vill leggja á herslu á um hverfi og skap andi vinnu Grunn skól inn í Grund ar firði: Mark viss að lög un milli allra skóla stiga í Grund ar firði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.