Skessuhorn - 22.08.2007, Blaðsíða 15
15 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST
SPM | Digranesgötu 2, 310 Borgarnes, sími 430 7500 | Stillholti 18. 300 Akranes | www.spm.is
Námsmannaþjónusta Sparisjóðsins
Við hjá Sparisjóðnum viljum vera í góðu sambandi við viðskiptavini okkar.
Félagar í Námsmannaþjónustunni njóta persónulegrar þjónustu sem er sniðin
af þörfum hvers og eins, auk góðra kjara og spennandi sértilboða. Við erum
alltaf til í að ræða málin – ef sambandið er gott, gengur allt annað betur líka.
Fann loksins
þann eina rét
ta
SAMBANDIÐ
BLÓMSTRAR!
www.skessuhorn.is
Gísli Guðmundsson hárskeri.
Einungis stoltið
beið hnekki
Skúta strandaði fyrir utan
Búðardal um liðna helgi. Það eina
sem beið hnekki var stoltið, að sögn
skipstjórans Birgis Óskarssonar.
Málatvik voru þau að Birgir hafði
brugðið sér í siglingu og var á
heimleið og ætlaði að fara inn í
skerjagarðinn. „En það fjaraði
hraðar út en ég átti von á og því
endaði ég í sandinum þarna. Sem
betur fer var blankalogn svo það
var aldrei nein hætta á ferðum. Það
eina sem skemmdist eitthvað var
stoltið og búið er að fara í siglingu
síðan þetta gerðist. Gárungarnir
spurðu auðvitað hvort ég hefði ekki
verið látinn blása í blöðru, en á því
var sannarlega ekki nein þörf. Þetta
var bara einskær klaufaskapur.
Við eigum þessa skútu bræðurnir
ásamt börnum okkar og erum öll
réttindafólk. Bátinn höfum við átt
í ein sex ár og oft búið að skreppa á
honum hérna út okkur til ánægju.“
Aðpurður sagði Birgir engan fisk
vera í firðinum og því væri fátt um
fína drætti hvað það varðaði, en
gaman væri engu að síður að virða
landið fyrir sér af sjó.
bgk
Skútan á strandstað rétt fyrir utan Búðardal. Ljósm. Björn A Einarsson.
Ný rakarastofa á
Akranesi
Ný rakarastofa
verður opnuð á
Akranesi við Kirkju-
braut 6a þann 1.
september næst-
komandi. Gísli Guð-
mundsson hárskeri,
stefnir að því að
opna þessa stofu
og verður hún
kölluð Rakarastofa
Gísla. Gísli hefur
starfað í Reykjavík
síðastliðin 17 ár, á
H á r g r e i ð s l u s t o f u
Dóra og Klippistofu
Jörgens. Hann er Skagamaður
og flutti aftur heim af mölinni
árið 1999, en síðan þá hefur hann
ekið á milli til Reykjavíkur. Gísli
segist hafa verið orðinn þreyttur á
akstrinum eftir átta ár og fundist
þetta vera tilvalinn tími til þess að
hefja eigin rekstur á Akranesi.
Gísli mun hafa
númerakerfi á
stofunni þannig að
ef menn nenna ekki
að bíða þegar mikið
er að gera, geta
þeir tekið númer
og fengið áætlaðan
tíma til þess að koma
aftur. Í millitíðinni
geta þeir síðan sinnt
öðrum erindum. Að
sögn Gísla hefur hann
sérhæft sig í barna-
og herraklippingum
undanfarin tíu ár og
mun hann einbeita sér að því á nýju
stofunni. Þar muni t.d. verða dvd
spilari og skjár fyrir börnin. Hann
segist þó ekki getað neitað konum
um klippingu óski þær þess.
hög