Skessuhorn - 22.08.2007, Qupperneq 23
23 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST
Sæmundur Unnar Sæmundsson, Óðinn
Þorsteinsson, Heiðar Geirmundsson, Orri Geirsson
o.fl. keppa um Íslandsmeistaratitilinn.
Veitingar í boði - 3 mánaða áskrift að Sýn fyrir
heppna áhorfendur - Leiktæki fyrir börnin -
Monstertrukkur og kraftmesti jeppi landsins mæta á
svæðið.
Frábær fjölskylduskemmtun, frítt inn á svæðið.
Nánari upplýsingar:
www.kraftsport.is
Íslandsmótið
Hinir árlegu Hálandaleikar
verða haldnir við
Skógræktina á Akranesi
laugardaginn 25. ágúst n.k.
og hefst keppnin kl. 14:00.
“Highland Games”
í Hálandaleikum
á Akranesi
Nýlega voru afhent útboðsgögn
vegna síðari áfanga uppbyggingar
G S M - f a r s í m a þ j ó n u s t u n n a r
á þjóðvegum landsins. Hafa
bjóðendur sem uppfylltu skilyrði
forvals frest til að skila tilboðum
til 16. október nk. Í tilkynningu
sem samgönguráðuneytið sendi
frá sér sl. föstudag kemur fram
að þess sé nú vænst að vinna við
síðari áfangann geti hafist um
áramót. Fjarskiptasjóður vinnur
að því markmiði fjarskiptaáætlunar
að GSM-farsímaþjónusta verði
aðgengileg á hringveginum og
öðrum helstu stofnvegum auk
helstu ferðamannastaða. Meðal
þeirra staða hér á Vesturlandi
sem verulega hefur vantað upp á
gott fjarskiptasamband má nefna
Eiríksstaði í Haukadal og svæði í
þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Þar
stefna nú stjórnvöld að úrbótum í
síðari hluta útboðs fjarskiptasjóðs.
Heiðarnar detta inn
ein af annarri
Eins og fram hefur komið
í Skessuhorni ákvað stjórn
fjarskiptasjóðs að skipta GSM-
verkefninu í tvo áfanga. Vinna við
fyrri áfanga er enn í fullum gangi
og stefnt að því að uppbyggingu
vegna GSM farsímaþjónustu á
öllum hringveginum ljúki um næstu
áramót í samræmi við markmið
fjarskiptaáætlunar. Þá verður
farsímanotkun einnig möguleg
t.d. á Fróðárheiði á Snæfellsnesi,
Steingrímsfjarðarheiði, Þverár-
fjallsvegi, Fagradal og Fjarðarheiði
í lok ársins svo og á nokkrum
ferðamannsvæðum. Meðal
nýrra svæða á Hringveginum
sem komið hafa inn í sumar
má nefna Öxnadalsheiði, kafla
í Húnavatnssýslum og kafla á
sunnanverðum Austfjörðum.
Önnur svæði í fyrri áfanga munu
koma inn eitt af öðru á þriðja og
fjórða fjórðungi þessa árs.
Skrifað var undir samning við
Símann hf. í byrjun þessa árs og er
samningsupphæðin 565 milljónir
króna en við hana bætist kostnaður
vegna lagningar rafmagns á
allmarga staði þar sem sendar eru
settir upp. Alls tekur þessi áfangi til
um 450 km kafla og verða settir upp
38 sendar, byggð 29 hús og reist
31 mastur vegna þessarar bættu
fjarskiptaþjónustu.
Ástandið batnar m.a.
á Eiríksstöðum og í
þjóðgarðinum
Síðari áfanginn snýst um að
koma á GSM-sambandi á þá
stofnvegi sem verða án þjónustu
að loknum fyrri áfanganum sem
nú er unnið að. Má þar nefna ýmsa
fjallvegi svo sem Bröttubrekku,
heiðar á Vestfjörðum svo sem
Gemlufallsheiði, Dynjandisheiði
og Kleifaheiði, einnig
Öxarfjarðarheiði og Hellisheiði
eystri. Í þessum áfanga verður
einnig komið upp GSM-þjónustu
á þeim ferðamannasvæðum sem
eru í nágrenni þessara stofnvega,
til dæmis Krýsuvík og við
Eiríksstaði í Haukadal. Þá á að
bæta GSM-samband á nokkrum
ferðamannasvæðum í þjóð-
görðunum við Snæfellsjökul og
Jökulsárgljúfur. Uppbyggingu
skal lokið á 22 mánuðum en
þó skal ljúka 75% verksins á
árinu 2008. Í tilkynningu frá
samgönguráðuneytinu segir að
lögð verði sérstök áhersla á að flýta
uppbyggingu svæða á Vestfjörðum
og Norðausturlandi og tryggt að
þeim svæðum verði lokið árið 2008.
Í síðari áfanga verða settir upp 42
sendar, byggð 27 hús og reist 27
möstur.
Mikilvægur
öryggishlekkur
„Með því að stuðla að aukinni
útbreiðslu GSM-farsímanetsins á
þeim svæðum sem ekki er líklegt
að verði þjónað á markaðslegum
forsendum er ætlunin að auka öryggi
vegfarenda og bæta farsímaþjónustu
á þjóðvegum landsins. Þrátt fyrir að
farsímakerfið hafi ekki verið hannað
sem öryggiskerfi er ljóst að almenn
eign slíkra farsíma er mikilvægur
liður í öryggi auk þess sem farsíminn
gegnir mikilvægu hlutverki í
samskiptum í nútímaþjóðfélagi,“
segir í tilkynningu ráðuneytisins frá
sl. föstudegi.
Útboð vegna
háhraðatenginga
Fjarskiptasjóður vinnur einnig að
undirbúningi útboðs sem snýst um
að allir landsmenn sem þess óska
hafi aðgang að háhraðatengingum.
„Í sumar hefur verið unnið
með markaðsaðilum að því að
greina þau svæði á landinu sem
marksaðilar telja sig ekki geta sinnt
vegna fámennis án þess að fá til
þess styrk úr fjarskiptasjóði. Stefnt
er að því að sú vinna klárist um
miðjan september. Vinna við gerð
útboðsgagna er einnig langt komin
en hún snýst að miklu leyti um að
skilgreina þær kröfur sem gerðar
verða til þjónustunnar. Áætlað er
að útboðið verði auglýst í október
næst komandi,“ segir að lokum.
mm
Seinni áfangi GSM verkefnis fjarskiptasjóðs í útboð
1.9a
fi
fi
1.21
1.18
1.17
1.16
1.15
1.14
1.13
1.12
1.10
1.11
1.9b
2.30
2.29
1.23
1.22
2.27
2.28
1.8
2.26
2.25
2.24
2.23
2.22
2.21
2.20
1.7
1.6
1.5
2.19
1.4
1.3
1.2
2.18
2.17
1.20a
1.20b
2.16
2.15
2.14
2.13
2.12
2.112.10
2.9
1.24
2.8
2.7
2.12.32.22.42.62.5
1.19a
1.19b
2.31
1.1
fi.2
fi.1