Skessuhorn - 22.08.2007, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST
Nýtt vegstæði austan við Tröllháls. Loftmynd: Loftmyndir ehf.
Skólarnir að byrja
Nú er sólríku
og góðu sumri
senn lokið en
mörgum finnst
að þegar kennsla
hefst í grunnskólunum sé komið
haust. Haustið er tími breytinga í
lífi okkar og því fylgir oft ákveðin
endurskipulagning á heimilislífinu.
Þessu geta fylgt aukin fjárútlát
og gott að hafa útsjónarsemi
hvað allt umstangið varðar.
Eftir verslunarmannahelgina
fara foreldrar gjarnan að huga
að undirbúningi fyrir skólann.
Skólatöskur eru teknar fram og
hugað að innkaupalistum. Gott er
að athuga hvort hægt sé að nota
skóladótið frá því í fyrra því með
smá upplyftingu má oft nýta það
sem til er og óþarfi að kaupa allt
nýtt. Í júlí byrja auglýsendur að
minna okkur á hvað til stendur
með auglýsingaherferðum um
skólafatnað og ýmsar nauðsynlegar
skólavörur. En það er að mörgu
að hyggja og börnin þurfa svo
sannarlega á foreldrum sínum að
halda þegar skólinn byrjar. Nú eru
þau árinu eldri og ný verkefni blasa
við, kannski nýr skóli, nýr kennari
eða nýr bekkur.
Skólar hefjast yfirleitt eftir miðjan
ágúst og standa fram í júní en
flestir skólar á höfuðborgarsvæðinu
verða settir 22. ágúst. Mörgum
foreldrum finnst gott að hafa lokið
innkaupum og undirbúningi fyrir
skólagönguna í tíma en yfirleitt
eru birtar upplýsingar um það
hvenær nemendur eigi að mæta
á heimasíðum skólanna. Þar er
einnig hægt að nálgast upplýsingar
um skráningu í mataráskrift og
viðveru eftir skóla, innkaupalista,
stundaskrár og skóladagatal. Í
einstaka skóla hefst kennsla sama
dag og skólasetningin.
Handleiðsla foreldra er mjög
mikilvæg alla skólagönguna og
verður seint ofmetin en sérstaklega
þarf að huga að sex ára börnum í
skólabyrjun. Sum þessara barna
eiga nú erfiðara með að sofna á
kvöldin og foreldrar finna að börnin
hafa væntingar, eru jafnvel spennt
en sum geta líka verið áhugalítil.
Mikilvægt er að foreldrar undirbúi
börn sín vel og fylgist með líðan
barna sinna í aðdraganda skólans.
Margir foreldrar finna líka sjálfir
fyrir kvíða sem tengist skólagöngu
barnsins. Hvernig verður
stundaskráin? Verður boðið upp á
mat í skólanum eða þarf barnið að
koma með nesti? Verður bekknum
kannski skipt upp? Hvernig verður
með heimanámið, samskipti við
bekkjarfélaga og kennara? Mun
barnið fá kennslu við hæfi, verður
boðið upp á stoðþjónustu? Hvenær
er vetrarfríið?
Einnig er gott að skoða hvaða
upplýsingar liggja nú fyrir um
barnið í skólanum og mikilvægt
er að foreldrar tilkynni skólanum
ef um er að ræða breytta hagi hjá
barninu eða foreldrum þess. Gott
er að fara yfir hvaða aðstandendur
eru skráðir hjá barninu og hvort
ný eða breytt símanúmer eru hjá
þeim. Sé barnið í stjúpfjölskyldu er
rétt að taka það fram. Nauðsynlegt
er að foreldrar leiti upplýsinga og
fái svör við þeim spurningum sem
vakna. Á heimasíðum skóla eða hjá
skólariturum er hægt að fá allar
upplýsingar um Mentor, viðtalstíma
kennara og einnig er þar hægt að
leita upplýsinga um foreldraráð,
foreldrafélög og hvaðeina er
tengist skólagöngu barnsins.
Í flestum skólum er boðið upp á
skólafærninámskeið fyrir foreldra
6 ára barna og í sumum skólum
fyrir foreldra nemenda í öðrum
bekkjardeildum líka. Foreldrar
eru hvattir til að sækja þessi
fróðlegu námskeið. Þar fá þeir
kynningu á skólastarfinu, fræðast
m.a. um þroska barna á hinum
ýmsu aldursskeiðum, kynnast
kennurum barnsins og foreldrum
bekkjarfélaganna. Sumir skólar
hafa foreldraviðtöl í tengslum við
skólasetningu þar sem foreldrar
geta hitt kennara barnsins strax
fyrsta daginn í persónulegu viðtali.
Láta foreldrar mjög vel af því
að fá aðgang að kennaranum í
skólabyrjun þar sem hægt er að
miðla nauðsynlegum upplýsingum.
Viðhorf foreldra endurspeglast oft í
viðhorfi barnanna til skólans því er
mikilvægt að foreldrar séu jákvæðir
og ræði ekki neikvæðar hliðar
skólastarfsins í návist barnanna.
Nemendur þurfa að koma að hreinu
borði í orðsins fyllstu merkingu og
ekki er gott að draga fram gamla
drauga eða atburði síðasta skólaárs.
Foreldrar þurfa að huga vel að
líðan barna sinna og leggja sig fram
um að skapa börnunum jákvætt
og uppbyggilegt námsumhverfi til
að þau verði móttækileg fyrir því
sem skólinn hefur fram að færa.
Foreldrar verum til staðar fyrir
börnin okkar, nú sem endranær.
Helga Margrét Guðmundsdóttir,
verkefnastjóri hjá Heimili og skóla
landssamtökum foreldra.
Atriði sem gott er að hafa í huga:
Upphaf skólagöngu eru mikil tímamót fyrir þig og barnið •
Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga•
Gættu þess að hafa nægan tíma fyrir barnið á degi hverjum •
meðan það er að aðlagast skólanum
Mundu rétt þinn til 13 vikna launalauss foreldraorlofs frá •
vinnu - e.t.v. er þetta rétti tíminn til að nýta sér það?
Veldu skólatösku við hæfi sem fer vel með bæði barnið og •
töskurnar. Hafðu barnið með, það þarf að máta skólatöskur
eins og föt
Aðgættu að barnið sé ekki að bera of þunga tösku og að þyngstu •
bækurnar séu næst bakinu
Röltu með barninu um skólalóðina og helst um skólann, utan •
annatíma
Sendu barnið alltaf með nægt og hollt nesti í skólann•
Merktu allar eigur barnsins, skóladót og allan fatnað þ.m.t. •
íþróttafatnað
Vertu búin að kaupa inn nauðsynlegt skóladót og merkja •
áður en að skólinn hefst. Flestir skólar birta innkaupalista á
heimasíðum sínum
Vegagerð gengur vel á
Uxahryggjum
Nýr Uxahryggjavegur frá
Sandkluftavatni til Kaldadalsvegar
er nú farinn að taka á sig mynd
en vinna hefur staðið yfir þar
undanfarið. Uxahryggjavegur hefur
verið í nokkurri uppbyggingu á
undanförnum árum og hefur verið
unnið að vegabótum á honum
sunnanverðum um Sandkluftavatn.
Þeirri framkvæmd er lokið og eru
vegabæturnar sem unnið er að
núna í beinu framhaldi af þeim. Sú
breyting verður með nýja veginum,
að sneytt verður alfarið framhjá
Tröllhálsi og þannig komist hjá
hættulegum hluta leiðarinnar en
mesti hallinn á Tröllhálsi er um
20% og getur hann verið erfiður
viðureignar í vondu færi. Gamli
vegurinn getur varla kallast annað
en slóði á köflum, þar sem hann
er hlykkjóttur og niðurgrafinn og
lokast iðulega í fyrstu snjóum.
Uxahryggjavegur er sumarvegur
þ.e.a.s. hann er ekki mokaður á
vetrum og er opnunartími hans
því algerlega háður veðurfari
hverju sinni. Með opnun nýju
leiðarinnar er vonast til þess að
vegurinn opnist fyrr á vorin og
haldist opinn lengur, auk þess sem
umferðaröryggi batnar. Nýr vegur
verður uppbyggður malarvegur um
sléttara land, en hann hefur verið
hannaður fyrir 90 km hraða, með
malbikun í huga einhverntíman í
framtíðinni. Vegakaflinn sem um
ræðir er 9,7 km að lengd og á þeirri
leið er 20m. steinsteypt brú yfir
Sandvatnskvísl. Vegagerð gengur
vel og eru einungis um 2 km. eftir af
henni til þess að tengja nýja veginn
við þann gamla, norðanmegin.
Sigurður Jóhannsson er
eftirlitsmaður með þessu verki, en
hann starfar hjá Vegagerðinni á
Selfossi. Hann segir vegagerðina
ganga vel, þetta sé gott vegstæði
sem geri framkvæmdina þægilega
og ekkert hafi komið á óvart við
hana. Hann segir nýja veginn verða
skemmtilegri og greiðfærari en
að honum loknum taki við næsti
flöskuháls. Að mati Sigurðar er það
Uxahryggjavegur frá Kaldadalsvegi
og niður í Lundarreykjadalinn.
Hann segir að það líti út fyrir að
vegurinn frá Sandkluftavatni að
Kaldadalsvegi verði lokið á áætlun
en samkvæmt útboði skal verki
að fullu lokið fyrir 20. október
næstkomandi. Þetta mun verða
breyting til batnaðar enda er umferð
um þennan veg talsverð á sumrin
eða um 150 bílar á sólahring. Að
sögn Magnúsar Vals Jóhannsonar
svæðisstjóra hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi fást litlar fjárveitingar
í fjallvegaverkefni á hverju ári.
Þess vegna sé lítið gert í hvert
skipti sem fjárveiting fæst. Þó séu
einhverjar þreifingar í gangi með
framkvæmdir Húsafellsmegin á
Kaldadalnum. Þar er verið að velta
fyrir sér hugsanlegri nýrri veglínu
en sá vegur fer gjarnan illa á vorin
vegna vatnavaxta.
hög
Álfheiður segir börnunum frá einu verkanna á sýningunni.
Álfar í Kirkjuhvoli
Nú stendur yfir mynd-
listasýningin „Líf framundan“
í Listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi. Þar sýnir Álfheiður
Ólafsdóttir olíumálverk sem máluð
eru undir áhrifum þjóðsagna um
álfa og tröll. Hún hefur unnið að
myndlist undanfarin 17 ár og gaf út
barnabókina Grímur og Sækýrnar
árið 2000. Sýningin stendur til
26. ágúst og er á báðum hæðum
Kirkjuhvols.
Þann 15. ágúst bauð Kirkjuhvoll
krökkum af leikjanámskeiðinu á
Akranesi að koma á sýninguna
og sagði Álfheiður börnunum
frá myndum sínum. Hún var
klædd viðeigandi álfaklæðnaði
og hreif börnin með sér með
spennandi frásögn um þennan
hulda heim. Leikjanámskeiðið
er samstarfsverkefni Skátafélags
Akraness og Akraneskaupstaðar og
hafa þessir aðilar haft þann háttinn
á í sumar að krakkarnir fara á
bókasafnið á miðvikudögum og
eru þar lesnar eða sagðar fyrir þau
sögur. Í þetta skiptið fengu börnin
hinsvegar að fara á listasýningu og
virtist það eiga vel við þau.
hög