Skessuhorn - 28.08.2013, Síða 11
11MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Þrátt fyrir að mörgum finnist langt
á milli Húnavatns- og Borgarfjarð-
arsýslna, liggja mörk þeirra saman
um töluvert langa vegalengd, eink-
um um fjalllendi á Holtavörðu-
og Arnarvatnsheiði. Sveitarstjór-
nir Borgarbyggðar og Húnaþings
vestra komu í liðinni viku saman til
fundar og var fundarstaður gangna-
mannaskálinn í Álftárkróki á Arn-
arvatnsheiði. Einnig sat fundinn
Snorri Jóhannesson veiðivörður.
Að sögn Ragnars Frank Kristjáns-
sonar forseti sveitarstjórnar Borg-
arbyggðar voru á fundinum rædd
ýmis sameiginleg hagsmunamál
sem snúa að Arnarvatnsheiði.
„Við ræddum samgöngur, skipu-
lagsmál, veiði og ferðaþjónustu,
landbúnaðarmál, svo sem viðhald
afréttargirðinga og þjóðlendumál.
Nú styttist í að Þjóðlendunefnd
skili inn tillögum um eignarnám
afréttarlanda og þjóðlenda í okkar
landshluta. Þá var rætt hvernig nýta
megi Arnarvatnsheiði betur og því
bar vega- og samgöngumál fljótt
á góma. Fulltrúar beggja sveitar-
stjórna voru sammála um að brú á
Norðlingafljót myndi auka mjög
umferð um svæðið og aðgengileika
að því,“ segir Ragnar. Hann sagði
fundinn hafa verið afar gagnleg-
an og hafi fulltrúar beggja sveitar-
stjórna verið einhuga um að skipa
samtals sex manna hóp sem hittist
hér eftir á tveggja ára fresti og fari
yfir þessi sameiginlegu hagsmuna-
mál héraðanna. Húnaþing vestra
er t.d. að hefja vinnu við aðalskipu-
lagsgerð og eðli málsins samkvæmt
liggja miklir hagsmunir í að Arnar-
vatnsheiðin nýtist þeim betur ekki
síður en Borgfirðingum,“ sagði
Ragnar.
mm
Mikill stuðningur við óskerta flug-
starfsemi í Vatnsmýri í Reykjavík
endurspeglaðist í að yfir 50 þús-
und undirskriftir höfðu safnast
málefninu til stuðnings fyrr í vik-
unni, rúmri viku eftir að átakið fór
af stað. Félagið Hjartað í Vatns-
mýri stendur fyrir söfnun und-
irskriftanna á vefnum lending.is
„Engin undirskriftasöfnun hefur
náð jafn miklu flugi á svo skömm-
um tíma. Nákvæmlega vika er liðin
frá því að söfnunin hófst og verð-
ur henni haldið áfram næstu fjórar
vikur bæði á vefnum og með und-
irskriftalistum,“ segir í tilkynn-
ingu frá félaginu. Stjórn félagsins
vill árétta að krafa þeirra sem þeg-
ar hafa skrifað er afar skýr, þ.e.a.s.
að „flugstarfsemi verði óskert í
Vatnsmýri til framtíðar.“ „Áratug-
ir óvissu um framtíð vallarins hafa
valdið starfsemi á flugvellinum
miklum vanda og staðið í vegi fyr-
ir eðlilegum fjárfestingum og upp-
byggingu atvinnustarfsemi. Þeirri
óvissu má nú eyða með því að festa
staðsetningu vallarins í sessi, lands-
mönnum til farsældar. Frestun á
þeirri ákvörðun verður öllum til
tjóns.“
mm/ Ljósm. RUV.
Knattspyrnudeild Skallagríms og Skessuhorn halda Skessuhornsmótið
laugardaginn 7. september á Skallagrímsvelli í Borgarnesi.
(Mótinu var frestað í sumar vegna vallarframkvæmda)
Fyrirkomulag keppninnar verður þannig að sjö manna lið keppa í eigin nafni eða
fyrirtækja sem þau geta fengið til stuðnings, gjarnan fyrirtækjahópar.
Spilaðar verða 2x10 mínútna leikir. Aldurstakmark verður 16 ár og geta lið verið
skipuð leikmönnum af báðum kynjum.
Þátttaka ræður hvenær mótið hefst.
Í boði verða vegleg verðlaun, veitingar, ferð í sund og heitu pottana og
heiðurinn Vesturlandsmeistari 2013.
Sjúkrabifreið verður á staðnum!
Skráning á mótið og nánari upplýsingar er hjá stjórn knattspyrnudeildar
Skallagríms, á netfangið knattspyrna@skallagrimur.is Skila þarf inn skráningum
í síðasta lagi 5. september.
Þátttökugjald á lið er 15.000.- krónur.
Skessuhornsmótið í knattspyrnu
Hverjir verða Vesturlandsmeistarar 2013?
Knattspyrnudeild
Skallagríms
Skessuhornsmóts
meistararnir 2012:
Viktor and old boy´s.
Margir vilja flugvöllinn
áfram í Vatnsmýrinni
Sveitarstjórar og fulltrúar sveitarfélaganna framan við gamla skálann við Álftár-
krók.
Héldu fund tveggja
sveitarstjórna í
gangnamannaskála