Skessuhorn - 28.08.2013, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Nafn: Guðríður Ringsted
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
ásamt eiginmanni mínum, Gunn-
ari Halldórssyni og þremur börn-
um, á Arnbjörgum á Mýrum.
Áhugamál: Þau eru gífurlega
mörg. Fyrst og fremst er það jóga,
tónlist, náttúran og dýr. Þannig að
mér leiðist allavega ekki.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur-
inn 22. ágúst 2013.
Mætt til vinnu og fyrstu verk?
Þennan vinnudag var ég á kvöld-
vakt. Ég vaknaði samt klukkan hálf
átta um morguninn og hjálpaði
manninum mínum að koma börn-
unum í skólann. Eftir það fór ég
svo aftur að hvíla mig fyrir kvöld-
vaktina. Mætti í vinnunna klukkan
15:30 og það fyrsta sem ég gerði
var að fá upplýsingar frá hjúkr-
unarfræðingi af morgunvaktinni.
Síðan gekk ég á allar hæðir og las
mér til um stöðu á heilsufari allra
íbúa heimilisins.
Kvöldmatur var klukkan 18:00
og ákvað ég að borða með fólk-
inu á annarri hæð og spjalla við
það í leiðinni. Stór hluti af starf-
inu er einmitt að spjalla við fólk.
Svo fór ég að sinna þeirri papp-
írsvinnu sem fylgir starfinu, fara
yfir hjúkrunarvörupöntun, fylla á
lyfjabox, finna til lyf og stundum
gefa einstök lyf. Það er svo hringt
frá öllum hæðum til að sinna ýms-
um málum enda hef ég 50 manns í
minni umsjón.
Kvöldkaffi var klukkan 20:00 og
þá settist ég niður og fékk mér
vöfflur og rjóma í tilefni þess að
einn á heimilinu átti afmæli.
Hvenær var hætt og síðustu
verk? Í lok vaktarinnar, um mið-
nætti fór ég yfir það sem þarf fyrir
morgundaginn og næstu viku og
byrjaði að undirbúa það. Ég var
að fara á morgunvakt sjálf daginn
eftir en er á þeirri skoðun að mað-
ur eigi að ganga frá sinni vakt og
skila af sér eins og maður myndi
sjálfur vilja koma að næstu vakt.
Fastir liðir alla daga? Enginn
dagur eins, en ákveðnar lyfjagjaf-
ir, innlit á hverja hæð og lesa sig
til um líðan fólks eru svona föstu
liðirnir. Annars er maður að vinna
með svo mörgum og það eru svo
margar hliðar á þessu starfi.
Hvað stendur uppúr eftir vinnu-
daginn? Ég hugsaði þennan dag
hvað ég er þakklát fyrir vinnunna
mína og hvað það er gaman að
getað hjálpað öðrum og bara að
hafa gaman að vinnunni sinni sem
er alls ekkert sjálfgefið í dag.
Var dagurinn hefðbundinn? Í
raun var hann ekki hefðbund-
inn þar sem enginn dagur er eins
í þessu starfi, en þetta var svona
meðal dagur og alveg nóg að
gera.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Þegar ég útskrifaðist sem
hjúkrunarfræðingur árið 2008.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Ég lifi svolítið í núinu en gæti al-
veg hugsað mér að vinna hér lengi,
en gæti líka alveg hugsað mér að
fara í framhaldsnám eða kenna
meira jóga. Mér leiðist allavega
ekki núna að fara í vinnuna og er
ánægð í mínu starfi.
Eitthvað að lokum? Brosum og
verðum góð við hvort annað.
Dag ur í lífi...
Hjúkrunarfræðings í Brákarhlíð
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is
Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610
Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Messa sunnudaginn
1. september, 14. sd. e. trin.
kl. 14.00
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Guðríður Ringsed.
Guðríður á spjalli við einn íbúann í Brákarhlíð, Ragnhildi Einarsdóttur frá
Svarfhóli.
næstu árum voru byggð fleiri mann-
virki við Sementsverksmiðjuna á
Akranesi og einnig á Ártúnshöfðan-
um í Reykjavík. Ólafur Vilhjálms-
son dró sig út úr smíðunum og tók
að sér verkstjórn í afgreiðsludeild
Sementsverksmiðjunnar. Ég tók við
starfi hans með umsjón bygging-
anna. Sementstankur var byggður á
Akureyri 1979, en við þá smíði vor-
um við í samstarfi við fyrirtækið Hí-
býli á Akureyri. Vegna reynslu okk-
ar við notkun skriðmóta, m.a. við
tankabyggingar, vorum við lánaðir
að Búrfelli þegar unnið var að bygg-
ingu virkjunarinnar. Þá stjórnuðum
við smíði 120 metra fallpípu að inn-
taki véla Búrfellsstöðvar. Þegar svo
olíukreppan skall á þurfi að breyta
búnaði Sementsverksmiðjunnar til
að brenna kolum í stað olíu. Þannig
rak hvert verkefnið annað,“ segir Al-
freð, sem síðar varð svo starfsmaður
í afgreiðsludeild Sementsverksmiðj-
unnar og starfaði þar til hann komst
á eftirlaunaaldur 1999.
Úr stangveiði í golfið
Þau Alfreð og Erla hafa verið sam-
stíga hvað áhugamálin snertir, þótt
hún hafi ekki tekið þátt í bridds-
spilamennku sem hefur verið eitt
helsta áhugamál Alfreðs um tíð-
ina. Oft hefur hann keppt á stærri
mótum hér á landi með sveitum
frá Akranesi. „Ég stundaði stang-
veiði af og til í 20 ár. Þá fór öll fjöl-
skyldan saman og kom fyrir að við
vorum allt að viku í einu. Það var í
ánum í Dölunum sem Stangveiði-
félag Akraness var með á leigu, aðal-
lega Haukadalsá og Flekkudalsá en
einnig í Fáskrúð. Minn aðalveiði-
félagi lengi var Kristján Hagalíns-
son og svo veiddi ég líka mikið með
Pétri Georgssyni.“
Golfklúbburinn Leynir var stofn-
aður á Akranesi 1965 og það var ein-
mitt á 40 ára afmæli klúbbsins 2005
sem þau Alfreð og Erla voru gerð að
heiðursfélögum í klúbbnum. Einn
fjölskyldumeðlimurinn í viðbót er
reyndar heiðursfélagi, það er dótt-
urdóttirin Valdís Þóra Jónsdóttir,
tvöfaldur Íslandsmeistari í höggleik.
Alfreð byrjaði að spila golf þremur
árum eftir stofnun Leynis, þá 36 ára
gamall. Í afmælisferðinni til Mall-
orka á 40 ára afmælinu spilaði hann
í fyrsta skipti golf erlendis, en síðan
er hann búinn að spila á golfvöllum
í mörgum löndum. Meðal annars
með eldri landsliðum Íslands í golfi,
síðast í Keflavík í liði 70+ með félaga
sínum Guðmundi Valdimarssyni.
„Samtals höfum við verið 19 sinnum
í landsliði öldunga og oft herbergis-
félagar. Í Keflavík kom okkur saman
um að nú væri ágætt að hætta.“ Al-
freð hefur náð ótrúlega góðum tök-
um á íþróttinni þótt hann hafi byrj-
að seint að slá hvítu kúluna. Hann
þykir einstaklega næmur í púttinu,
þarf ekki mikinn tíma til að lesa flöt-
ina og trúlega kemur þar smiðsaug-
að til góða.
Með tölfræðina á hreinu
Því má bæta við kaflann um smið-
inn Alfreð að tvívegis hafa þau hjón
komið sér upp eigin húsi. Fyrst var
það við Vallholt en síðan í Jörundar-
holtinu. Fyrir nokkrum árum færðu
þau sig síðan um set úr Jörundar-
holti á Leynisbraut 22 þar sem þau
búa í dag í fallegu raðhúsi. Alfreð
segist hafa haft nóg að gera frá því
hann lauk formlegri stafsævi, bæði
við að dunda fyrir sjálfan sig og að-
stoða börnin og barnabörnin. Einn-
ig hefur hann sinnt sjálfboðaliðstarfi
fyrir Leyni, svo sem við byggingu
vélaskemmunnar sem nú er nýlokið
við. Flesta morgna þegar viðrar fer
hann á Garðavöllinn ásamt félögum
sínum Guðmundi Valdimarssyni og
Karli S. Þórðarsyni og spilar þar
hálfan hring eða heilan. Alfreð er
maður skipulagsins og hefur ákaf-
lega gaman af því að halda tölfræði
varðandi sín áhugamál. Meðal ann-
ar hefur hann skrá um að þjóðlönd-
in eru 18 þar sem hann hefur spil-
að golf, á 135 golfvöllum og hring-
irnir eru 494. Erla hefur spilað golf
í 8 löndum, á 76 völlum og hring-
irnir eru 290. Erla fór að spila golf
eftir að Alfreð keypti handa henni
golfsett í utanlandsferð nokkrum
árum eftir að hann ánetjaðist sjálfur
golfinu. Í 13 ár hefur Alfreð sung-
ið með kór eldriborgara á Akra-
nesi. Hann heldur skrá og tölfræði
yfir tónleikana sem kórinn syngur á
og lögin sem sungin eru á hverjum
tónleikum. Hann segir að þessi skrá
komi væntanlega til með að nýtast
stjórnendum kórsins.
Eftirminnilegar utan-
landsferðir
Eins og skráin um golfferðirnar
gefur til kynna hafa þau Alfreð og
Erla ferðast til fjölda landa. Móð-
ursystir Erlu fluttist til Kanada og
þau fóru að heimsækja afkomend-
ur hennar sumarið 1984. „Börn-
in hennar eru átta og móttökurnar
voru stórkostlegar hjá fjölskyldun-
um. Það var eins og þau ættu í okk-
ur hvert bein og það var ekki við
annað komandi en við gistum hjá
þeim öllum, þannig að við skiptum
nóttunum í ferðinni á milli þeirra,“
segir Erla. Þau segja að ferðin til
Kanada sé ein af þeim sem standi
upp úr í utanlandsferðunum, en þar
voru Íslendingabyggðir í Winni-
peg, Gimli og Árborg heimsóttar.
Tvær Thailandsferðir er þeim líka
mjög eftirminnilegir. Bæði fyrir
ótrúlega náttúrufegurð í landinu og
fólkið sem var vingjarnlegt og fullt
af þjónustulund. Margoft hafa þau
farið á Floridaskagann í Bandaríkj-
unum, ekið þar um allt og meðal
annars farið á Kanaveralhöfða þar
sem geimskipin eru. Ein allra eft-
irminnilegasta ferðin var svo sigl-
ing um Karabíska hafið sem þau fór
eftir heimboð frænda Alfreðs, Jóns
Bjarna, til Florida. „Ég var búinn
að smíða svolítið hjá Jóni Bjarna í
unaðsreitnum hjá honum í Vaðnesi
á Suðurlandi og hann vildi í staðinn
endilega bjóða okkur til sín. Þeg-
ar við fórum í siglinguna um Kar-
abíska hafið, keyrðum við frá Or-
lando niður til Fort Lauderdale.
Þessi sigling verður lengi í minni
höfð, vegna allra þessara fallegu
staða við hafið. Um borð var allt til
alls og sem dæmi um stærð skipsins
var þrjú hundruð metra hringur á
efsta þilfari sem hægt var að ganga
ef fólk þurfti að fá útrás fyrir hreyfi-
þörfina,“ segir Alfreð. Við vorum
búin að gefa okkur góðan tíma fyrir
spjallið á Leynisbraut 22, enda viðr-
aði þannig þennan dag að inniver-
an var góð. Samt hefði trúlega ver-
ið um margt fleira hægt að spjalla
enda ýmislegt á daga hjónanna á
Leynisbraut 22 drifið. Framundan
var fjölskyldumót um helgina og þá
eins og jafnan var gamni-golfmót
á dagskránni, enda margir liðtækir
kylfingar í fjölskyldunni. þá
Á leið til skips í Puerto Rico 2002.
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is