Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2013, Síða 17

Skessuhorn - 28.08.2013, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Umsóknarfrestur á haustönn 2013 er til 15. október n.k. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu. Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd S K E S S U H O R N 2 01 3 Jöfnunarstyrkur til náms Íbúaþing Sunnudaginn 1. september, í Heiðarskóla Hugsað til framtíðar „Hugsa um það helzt og fremst, sem heiðurinn má næra“ Samræða um framtíðarsýn...• ...og öll helstu málefni; atvinnumál, umhverfis- og skipulagsmál, samfélags- og • skólamál. Samræða í litlum hópum, engar ræður og allir geta tekið þátt Kl. 10.45 Húsið opnað, kaffi á könnunni. Kl. 11.00 Þingsetning og staða mála. Kl. 11.20 Samræða í litlum hópum - Hvar er okkur að takast vel og hvar mætti gera betur? Kl. 12.30 Súpuhlé. Kl. 13.15 Horft til framtíðar; Hvalfjarðarsveit, framsækið sveitarfélag sem nýtir sóknarfæri. Kl. 14.30 Þingslit. Sveitarstjórn hyggst hlusta á skilaboð íbúa og hafa þau til hliðsjónar við sína ákvarðanatöku. Gefnar verða upplýsingar eftir þingið um hvernig unnið var úr skilaboðum. Umsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI, þjónustu og ráðgjöf. Boðið verður upp á barnagæslu. Tökum þátt – því betur sjá augu en auga. S K E S S U H O R N 2 01 3 www.skessuhorn.is Blaðamaður á Skessuhorn Skessuhorn auglýsir laust starf blaðamanns til afleysinga fram til áramóta. Til greina kemur föst ráðning eftir það. Lögð er áhersla á gott vald á íslensku máli, haldgóða tölvuþekkingu og jákvæðni. Reglusemi er skilyrði sem og samfélagslegur áhugi á starfssvæðinu Vesturlandi. Viðkomandi vinnur jöfnum höndum að ritun frétta og viðtala og þarf að geta tekið ljósmyndir. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. september nk. á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is Nánari upplýsingar gefur ritstjóri í síma 894-8998. Trésmiðja Kára Lárussonar frá Tjaldanesi er til húsa í 250 fm. rými í gamla sláturhúsinu á Eyr- arlandi í Saurbæ. Þar starfar Kári við smíðar og hefur um langt ára- bil sérhæft sig í þjónustubygging- um af ýmsu tagi, svo sem salern- ishúsum við tjaldstæði. Þá hef- ur Kári smíðað viðveruhús fyr- ir landverði í óbyggðum, svo sem þetta sem fyrr í vikunni var far- ið með í Vatnajökulsþjóðgarðinn. Hús af þessu tagi eru nú komin í Laka og Eldgjá. „Þessi hús eru býsna vel búin þótt þau séu ekki stór og henta ágætlega þar sem mikið mæðir á. Innan dyra reyni ég að hafa þau vistleg en að utan klæði ég húsin með bandsöguðu lerki, en það er sérstaða húsanna sem Vatnajökulsþjóðgarður hef- ur keypt. Önnur hús klæði ég með venjulegri vatnsklæðningu,“ segir Kári. Það var Tryggvi Valur Sæ- mundsson hjá Hálstaki í Skorra- dal sem sá um flutning á húsinu upp í Eldgjá, þar sem það var los- að af bílnum í gærmorgun. mm/ Ljósm. bae. Um síðustu áramót tók til starfa á Fellsströnd í Dalasýslu Vog- ur sveitasetur, sem er í eigu Guð- mundar Halldórssonar verts. Guð- mundur tók þá á móti fyrstu gest- unum, hópi Þjóðverja, sem lentu í miklum norðan hríðarbyl sem gekk yfir landið. Frá þeim tíma hef- ur verið opið. „Þetta var heilmik- ið ævintýri allt saman en lukkað- ist vel,“ segir Guðmundur og hann er ánægður með afraksturinn eft- ir sumarið. Meira að segja er hann svo brattur núna þegar haustar að ákveðið hefur verið að hafa opið í vetur. Tveir viðburðir hafa verið tímasettir, villibráðarhlaðborð í lok október og jólahlaðboð í nóvem- berlok. „Það er auðvitað villibráð hér allt í kringum okkur og fínt að nýta hana,“ sagði Guðmundur hress í bragði í samtali við Skessu- horn. Guðmundur segist í sjálfu sér hafa rennt blint í sjóinn með áætl- anir fyrir þessa fyrstu mánuði í rekstri sveitasetursins. „Ég gerði ekki ráð fyrir að það yrði meira og minna fullt hús eins og verið hefur í sumar. Þannig að þetta hefur far- ið alveg fram úr björtustu vonum. Það sem hefur komið mér einna mest á óvart er að tvö stærstu her- bergin hjá okkur hafa farið fyrst, enda mikið um að fjölskyldufólk hafi verið að koma til okkar,“ segir Guðmundur, en sveitasetrið er fjós, kálfahús og hlaða sem endurgerð voru á smekklegan og skemmtileg- an hátt. Guðmundur segir að ein- göngu sé um það að ræða að hóp- ar og gestir panti fyrirfram. Þegar séu komnar svolitlar pantanir fram á veturinn og það verði líka gam- an að glíma við það að standa fyrir viðburðum á þessum stað þar sem umferðin er ekki mikil um veginn, allra síst að vetrarlagi. „En stund- um ganga þessar brjálæðislegu hug- myndir upp,“ segir Guðmundur á Vogi sveitasetri á Fellsströnd. þá Afhendir viðveruhús í Vatnajökulsþjóðgarð Ætlar að hafa opið á sveitasetrinu Vogi í vetur Í vetur verður boðið upp á villibráðarkvöld og jólahlaðborð á Vogi. Vogur sveitasetur baðað norðurljósum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.