Skessuhorn - 20.11.2013, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013
Íbúafundur í Hjálmakletti
Sveitarstjórn Borgarbyggðar boðar til
íbúafundar um málefni Háskólans á Bifröst
og Landbúnaðarháskóla Íslands. Fundurinn
fer fram í mennta- og menningarhúsinu
Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn
21. nóvember og hefst kl. 20.00.
Frummælendur á fundinum verða;
Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á
Bifröst, Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor
kennslumála Landbúnaðarháskóla Íslands,
Vífill Karlsson hagfræðingur, Helena
Guttormsdóttir námsbrautarstjóri við
Landbúnaðarháskóla Íslands og
Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri.
Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í
umræðu um málefni skólanna.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Grundfirðingar hafa blásið til íbúa-
þings nk. laugardag 23. nóvember
í húsi Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Dagskrá þingsins samanstendur
af fjölbreyttum erindum þar sem
heimamenn og gestir koma við
sögu. Að þeim loknum verða um-
ræður í litlum hópum og geta allir
viðstaddir stungið upp á umræðu-
efni. Dagskráin hefst með morg-
unverði kl. 10,30 og íbúaþing-
ið hefst svo hálftíma síðar. Dag-
skránni er skipt í þrjá meginkafla
sem eru: hvert viljum við stefna,
samfélag í sókn og atvinnumál og
sóknarfæri. Í fyrsta liðnum fjallar
Björg Ágústsdóttir verkefnisstjóri
hjá Alta um svæðisgarð Snæfell-
inga, sókn byggð á sérstöðu. Snæ-
fríður - unga fólkið og Snæfellsnes
er erindi sem Silja Rán Arnardóttir
í stjórn Snæfríðar flytur og Gunnar
Kristjánsson verkefnisstjóri fjallar
um skólastefnu Grundarfjarðar.
Undir liðnum samfélag í sókn velt-
ir Jón Eggert Bragason skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
fyrir sér hvor hægt sé að mennta
frumkvöðla. Elsa Árnadóttir for-
maður Félags eldri borgara grein-
ir frá sinni sýn á Grundarfjörð og
það sama gera fulltrúar frá félags-
miðstöðinni Eden. Að loknum há-
degisverði fjallar Arnaldur Bjarki
Bergsson sviðsstjóri hjá Matís um
sóknarfæri í sjávarútvegi. Ásbjörn
Björgvinsson formaður Ferðamála-
samtaka Íslands flytur erindi um
samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu,
dæmisögur og tækifæri er undir-
skrift þess erindis.
Að erindum loknum verða um-
ræður með afslöppuðu og þægilegu
fyrirkomulagi, segir í tilkynningu
vegna íbúaþingsins. Hver sem vill
getur stungið upp á umræðuefni og
þátttakendur velja sér síðan hópa.
Þegar hópar hafa skilað niðurstöð-
um verður þinginu slitið um klukk-
an 15. Þinginu stýra Sigurborg Kr.
Hannesdóttir forseti bæjarstjórn-
ar og Ragnar Smári Guðmundsson.
Þau sitja í stýrihópi vegna þingsins
ásamt Þorbjörgu Gunnarsdóttur og
með þeim hefur starfað Alda Hlín
Karlsdóttir menningar- og mark-
aðsfulltrúi. Þess má geta að m.a. er
boðið upp á barnapössun í leikskól-
anum meðan á íbúaþinginu stend-
ur. þá
Í aðdraganda aðventu færist í vöxt
að kaupmenn hafi opið lengur á
kvöldin og jafnvel um helgar einn-
ig. Á fimmtudaginn í liðinni viku
voru a.m.k. fjórar verslanir á Akra-
nesi með opið lengur en venjulega.
Í boði voru ýmis tilboð og afslættir
fyrir þá sem vildu kíkja í búðir. Kol-
brún Ingvarsdóttir ljósmyndari tók
meðfylgjandi myndir þá um kvöld-
ið í verslununum Húsasmiðjunni,
@Home og Bjargi. mm
Íbúaþing í Grundarfirði
á laugardaginn
Kvöldopnun verslana færist í vöxt