Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013
„Komdu, ég þarf að hlusta á þig.“ (H.Þ.)
HVERNIG GETA FORELDRAR UNNIÐ AÐ FORVÖRNUM
OG STUÐLAÐ AÐ VELFERÐ BARNA?
FORELDRADAGURINN
2013
Foreldradagur Heimilis og skóla verður nú haldinn í þriðja sinn og er
markmiðið nú sem endranær að bjóða upp á vandaða og gagnlega
fræðslu fyrir foreldra. Boðið verður upp á fræðsluerindi og málstofur
um forvarnir í víðu samhengi. Hvernig geta foreldrar stuðlað að
forvörnum? Hvernig geta foreldrar tekið á einelti, netfíkn, vímuefna-
vanda og öðrum erfiðleikum?
DAGSKRÁ
Fundarstjóri: Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóli.
12:00-12:10 Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, setur Foreldradaginn.
12:10-13:00 Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, kynnir nýjar niðurstöður frá
Rannsóknum og greiningu og Jóna Karen Sverrisdóttir, ráðgjafi hjá
Capacent, kynnir helstu niðurstöður nýrrar SAFT könnunar 2013.
13:00-14:00 Málstofur – þátttakendur geta valið úr þremur málstofum:
I. Netfíkn og hegðun á netinu.
Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur.
II. Einelti. Hvernig má koma í veg fyrir það og hvernig skal bregðast við?
Páll Ólafsson, félagsráðgjafi og ráðgjafi í fagráði eineltismála í
grunnskólum – Gegn einelti.
III. Forvarnir gegn áfengis- og vímuefnaneyslu, viðvörunarmerki og viðbrögð.
Guðrún Björg Ágústsdóttir, ráðgjafi hjá Vímulausri æsku – Foreldrahúsi.
14:00-14:30 Samantekt og umræður.
14:30-15:00 Kaffi, léttar veitingar og spjall.
FRÍR AÐGANGUR
OG SKRÁNING Á
HEIMILIOGSKOLI.IS
OG FACEBOOK
Heimili o
g skóli
– landss
amtök fo
reldra
munu þa
nn 22. nó
vember n
k.
standa f
yrir Fore
ldradegin
um
í Mennta
skóla Bo
rgarfjarð
ar
í Borgarn
esi.
Í október komu hátt í
hundrað prjónakon-
ur saman og prjón-
uðu á þriðja hundr-
að húfur úr léttlopa.
Verkefnið byggð-
ist á samstarfi Göng-
um saman og Fjalla-
verkskmiðju Íslands
og eru brjóst af öllum
stærðum og gerðum
fyrirmyndir húfanna.
Húfurnar hannaði
Kristín Helga Gunn-
arsdóttir, sem þekkt-
ust er fyrir barna-
bækur sínar. Prjóna-
konurnar fengu upp-
skrift hennar og léttlopa af ýmsum
litum frá Ístex. „Húfurnar eru alls
konar, eins og brjóst eru. Þær eru
stórar eða litlar, ljósar eða dökkar,
allskyns stærðir og gerðir,“ segir
Áslaug Þorvaldsdótt-
ir, rekstrarstjóri Land-
námssetursins í Borg-
arnesi þar sem hægt
er að kaupa húfurn-
ar. Húfur nar voru auk
þess seldar í Hann-
esarholti í Reykja-
vík 9. nóvember sl.
og ruku út. Þær fáu
sem eftir urðu eru til
sölu í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi, Þjóð-
minjasafninu og Iðu
í Lækjargötu. „Hvert
stykki kostar sex þús-
und krónur og eru þær
seldar til styrktar rann-
sóknum á brjóstakrabbameini. Við
tökum ekkert fyrir að selja þær,
hver einasta króna rennur til styrkt-
ar rannsókna,“ segir Áslaug.
grþ
Þegar blaðamaður Skessuhorns
var á ferð í Búðardal síðastlið-
inn föstudag veitti hann eftir-
tekt allstórum hópi göngufólks
á ferð meðfram Vesturbrautinni
sem liggur í gegnum þorpið. Í
ljós kom að þetta var gönguhópur
sem haldið hefur saman í nokk-
urn tíma eða frá 21. mars 2011.
Víví Kristóbertsdóttir hafði orð
fyrir hópnum. Hún sagði að hóp-
urinn hefði formlega verið stofn-
aður 2011 og héti gönguhópurinn
Stormur. Það er nafn við hæfi því
varla er hægt að segja annað en
þessi hópur stormi um Búðardal
og nágrenni. Fastir göngutímar
hjá þeim Stormsfélögum er fyr-
ir hádegi á mánudögum og föstu-
dögum. Yfirleitt er genginn svo-
kallaður stóri hringur í Búðardal,
kringum þorpið, sem er um tveir
kílómetrar. „Svo fórum við stund-
um yfir sumarið á bílum í göngu-
ferðir í sveitinni eins og í Hörðu-
dal og Haukadal,“ segir Víví.
Blaðamaður sá ekki ástæðu til
að tefja fyrir göngufélögunum
en hafði svo samband við Björn
Stefán Guðmundsson kennara og
skólastjóra sem er einn af félög-
unum í Stormi. „Þetta er svo mikil
hollusta og gleði sem fylgir þessu
að við viljum helst ekki missa af
gönguferð. Það er líka svo gam-
an að hittast og sjást og yfirleitt
fáum við okkur svo kaffisopa og
hressingu á eftir gönguna. Við
misstum reyndar Rauðakross-
húsið þar sem við hittumst oft
en núna í dag förum við í kaffið
í Silfurtún,“ sagði Björn Stefán
í spjalli við blaðamann á mánu-
dagsmorguninn. Hann sagði að
tæplega 15 manns væri í göngu-
hópnum en undanfarið hafa verið
svolítil veikindi og forföll í hópn-
um. Aðspurður sagði hann að
fólk úr ýmsum starfsstéttum væri
í Stormi, en það væri þó fjöllista-
konan Vívi sem væri mest dríf-
andi. „Við tökum okkur stund-
um upp og hópumst í bíla. Það er
mjög skemmtilegt að ganga á nýj-
um slóðum ekki alltaf sömu leið-
ina, fara í sveitina þar sem marg-
ir þekkja sig,“ segir Björn Stef-
án. Göngufólkið í Stormi sagði
að blessunarlega væri veðursælt
í Búðardal, þannig að varla kæmi
til að fella þyrfti niður gönguferð-
ir vegna veðurs. Það væri bara að
búa sig eftir veðri.
þá
Brjóstahúfur seldar í Landnámssetrinu
Ljósm. hlh
Stormfélagar á ferð um Búðardal.
Frá vinstri talið Sigríður Árnadóttir,
Kristín Kristjánsdóttir, Inga Sigurbjörg
Viggósdóttir, Björn Stefán Guðmunds-
son, Magnús Kristjánsson, Kristján
Jóhannsson, Inga Þorkelsdóttir og Vívi
Kristóbertsdóttir.
Storma um Búðardal
í gönguferðum