Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013 Karlaveldi sem þróast hafði á Ís- landi í marga mannsaldra er víða að gefa mikið eftir og kvenþjóð- in að taka yfir eða jafna muninn. Ekki hefur þetta síst átt sér stað í stétt rakara og hárskera. Karlarn- ir í rakarastéttinni á Akranesi hafa haldið betur velli en á mörgum öðrum stöðum í landinu. Á Akra- nesi eru þrjár rakarastofur starf- andi sem reknar eru af körlum, það er Hársnyrting Hinriks á Vestur- götu 57, Rakarastofa Jóns Hjartar- sonar að Kirkjubraut 30 og Rakara- stofa Gísla við Stekkjarholt 8-10. Á tveimur fyrstnefndu rakarastofnun- um eru rakararnir komnir nokkuð við aldur. Hinrik verður sjötugur á næsta ári og Jón Hjartarson áttræð- ur. Þegar blaðamaður Skessuhorns fór á rakararúnt á Akranesi í síðustu viku, kom í ljós að hvorugur þeirra hefur plön um að fara að leggja frá sér skærin. Hinrik lærði sína iðn hjá Jóni Hjartarsyni og hann sagð- ist náttúrlega ómögulega geta hætt meðan lærifaðirinn væri enn að störfum. „Ætli það endi ekki bara með því að við Hinni verðum bara að ákveða það í sameiningu hvenær við hættum. Það verða engin vand- ræði með það. Okkur hefur alltaf komið vel saman,“ sagði Jón Hjart- arson og sló á létta strengi þegar blaðamaður leit inn á rakarastofuna hjá honum. Eins og félagsmála- stofnun Fyrst var litið inn á Hársnyrt- ingu Hinriks á Vesturgötu 57. Þar var þéttsetinn bekkurinn eins og stundum er, menn koma saman til að spjalla. Að þessu sinni voru þar tvennir bræður, það er Hinrik og Svavar bróðir hans og Guðmundur og Hallgrímur Þór Hallgrímssyn- ir. Fyrr en varði bættist svo Bene- dikt Jónmundsson í hópinn. „Hér er mikið spjallað, sagðar fréttir og spáð í spilin, pólitíkina, bæjarmál- in og knattspyrnuna. Hérna hafa meira að segja orðið til heilu fram- boðslistarnir. Það má búast við að svoleiðis törn fari að byrja núna fyrst það verða bæjarstjórnarkosn- ingar næsta vor,“ segir Svavar Har- aldsson og hinir taka undir það. „Það er oft gaman hérna og menn koma ekki endilega til að láta klippa sig eða raka. Annars er ég að þjóna stóru svæði og hef nóg að gera. Síð- an Villi Valli hætti á Ísafirði held ég að Djúpmenn leiti helst hingað. Það er enginn karlrakari í bæjunum á Snæfellsnesi svo best ég viti eða í Borgarnesi. Ég fæ viðskiptavini frá Hólmavík úr Húnavatnssýslum og víðar frá. Ég er ekkert farinn að leiða hugann að því að hætta, enda yrðu það gríðarleg viðbrigði fyr- ir mig og marga aðra. Rakarastof- an hjá mér er eins og félagsmála- stofnun. Svo get ég náttúrlega ekki hætt meðan lærifaðir minn er starf- andi,“ segir Hinrik og brosir. Hann hefur starfrækt rakarastofuna síð- an 1965 á sama stað og rakari hef- ur starfað í þessu húsnæði allar göt- ur síðan 1937. „Ég held að hvergi í landinu hafi rakarastofa verið í sama húsinu jafn lengi. Það var byggt sem símstöð sem var í húsinu til 1935. Í tvö ár skilst mér að hafi ver- ið hér verslun. Aðallega hafi verið verslað með skólavörur, enda gamli skólinn hér steinsnar frá. Það sagði mér samt maður að hér hefði hann borðað í fyrsta sinn banana, þannig að ég hef grun um að hér hafi verið verslað með fleira en skólavörur,“ sagði Hinrik Haraldsson. Trúað fyrir ýmsu Í kjallarahúsnæði við Kirkjubraut 30 er Jón Hjartarson með sína rak- arastofu. Hann er búinn að klippa marga kollana um tíðina enda bú- inn að starfa við rakaraiðnina í 64 ár núna í haust. Hann talar um 65 starfsafmælið á næsta ári rétt eins og það sé bara áfangi en ekki enda- lok. „Það er ekkert á dagskránni að hætta en tíminn leiðir það bara í ljós hvað ég held lengi áfram. Ég er búinn að vera svo lengi í þessu að ég kann ekki að hætta. Það er líka svo gaman ennþá að klippa og hitta fólk,“ segir Jón sem hefur starfrækt rakarastofuna á þessum stað við Kirkjubrautina í 34 ár, en þar áður var hann á ýmsum stöðum. Að- spurður segir þann um hvort hann eigi ekki einhverja skemmtilega sögu að segja frá löngum ferli al- veg frá því hann var 15 ára: „Hérna fréttir maður náttúrlega ýmislegt, en ætli viti svo sem ekki allir um það sem gerist í bænum. Mér er trúað fyrir ýmsu og fer náttúrlega ekki að bregðast því trausti. Ég á marga góða og trygga viðskiptavini og kynnist mörgum í gegnum þetta starf,“ segir Jón. Þeirri sögu var reyndar skotið að blaðamanni áður en hann fór að hitta Jón að á dög- unum hafi komið þangað áttræður maður með sextugan son sinn með sér í klippingu. Þegar þeir feðgar fóru kvaddi Jón þann með því að segja við þann áttræða: „Þú kemur svo með strákinn aftur eftir mán- uð.“ Áhættufælinn en bættist í hópinn Gísli Guðmundsson er langyngst- ur í hópi karlrakaranna á Akranesi. Hann er innfæddur Skagamaður en nam sína iðn hjá Björgu Óskars- dóttur á stofunni Permu við Eið- storg í Reykjavík. „Það voru margir búnir að orða það við mig hvort ég ætlaði ekki að koma heim á Skaga og opna stofu. Ég er áhættufælinn maður og var tvístígandi lengi en lét svo vaða. Lét verða að því 1. sept- ember 2007 að opna stofu hérna á Akranesi. Ég sé ekki eftir því og hef alltaf haft nóg að gera. Ég sá fljót- lega að ég gat bætt við manneskju með mér. Eftir árið kom Haddý og hefur klippt með mér síðan. Núna fer náttúrlega að byrja aðaltörnin hjá okkur. Það er mest að gera fyr- ir jólin. Síðasta sumar þegar Haddý fór í sumarfrí var reyndar svo brjál- að að gera að ég hafði varla und- an,“ segir Gísli, sem síðustu misser- in hefur verið með stofuna, Rakara- stofu Gísla í Stekkjarholti 8-10 eft- ir að hafa verið um tíma neðarlega við Kirkjubraut. Gísli segir að sam- skiptin við fólk sé það sem m.a. geri rakarastarfið skemmtilegt. „Hingað kemur fólk á öllum aldri. Það var t.d. komið með gutta sem varla var orðinn tveggja ára. Okkar var sagt að hann væri svolítið órólegur en tónlist róaði hann mikið, Mugison væri í uppáhaldi hjá honum. Ég tók þá símann minn, fann myndband og lag með frænda mínum inni á net- inu. Rétti litla Mugison prinsinum símann og hann hlustaði hugfang- inn í sínum heimi. Ég hafði gam- an af þessu og ekki síst hvað sá litli hafði góðan tónlistarsmekk,“ sagði Gísli í lok þessa rakararúnts blaða- manns á Akranesi. þá Rakarastéttin ennþá sterk á Akranesi Bræðurnir Guðmundur og Hallgrímur Þór Hallgrímssynir, Hinrik Haraldsson, Benedikt Jónmundsson og Svavar Haraldsson. Hallgrímur Þór aldeilis orðinn fínn í stólnum hjá Hinna rakara. Jón Hjartarson klippir Lárus Ólafsson svona listavel, enda hefur Jón 64 ára reynslu sem rakari. Gísli Guðmundsson rakari á stofu sinni. Haddý, Hallfríður Jóna Jónsdóttir, sem vinnur á stofunni hjá Gísla klippir ungan viðskiptavin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.