Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 10

Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013 Boðið í betristofu með Þórhalli miðli Miðaverð er 1.500 krónur og greiðist við innganginn. - ef góða veislu gjöra skal Þórhallur Guðmundsson miðill mun af sinni alkunnu næmni sækja skilaboð að handan og miðla til gesta. Skyggnilýsingarfundur mmtudaginn 21. nóvember n.k. kl. 20.00 að Hlöðum á Hvalarðaströnd. Nánari upplýsingar hjá Gauja litla að Hlöðum í síma: 660 8585 og á gaui@gauilitli.is www.hladir.is Áttu von á skilaboðum? Fiskistofa hefur gefið út afla- hefti sitt fyrir síðastliðið fiskveiði- ár 2012/2013. Þar er sem fyrr að finna ýmsar upplýsingar um veiði íslenskra skipa. Heildarafl- inn á fiskveiðiárinu var tæp 1.369 þúsund tonn. Hann dróst sam- an um 5,2% frá fyrra ári. Skýr- ingin er minni uppsjávarafli. Tæp 900 þúsund veiddust af uppsjáv- arfiski en loðnuveiðarnar drógust saman um 120 tonn milli ára og þar liggur lækkunin. Botnfiskafl- inn jókst um rúm 20 þúsund tonn að mestu vegna aukins þorskafla. Hann var rúm 210 þúsund tonn en rúm 182 þúsund tonn á fyrra fisk- veiðiári. Uppsjávaraflinn nam tæp- um 900 þúsund tonnum. Í Aflaheft- inu koma fram í fyrsta skipti upp- lýsingar um skiptingu strandveiði- báta sl. fimm ár eftir því hvaða aðr- ar veiðar þeir stunduðu á árinu. Ít- arlega er fjallað um grásleppuveið- ar en hrognkelsaveiðin í ár var með minnsta móti. Línuívilnun, undir- málsfiskur og VS-afli fá einnig sinn sess. Sá afli er seldur á fiskmarkaði og rennur hluti af andvirði hans til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Í ýsu þrefaldast þessi afli milli ára, fer úr 301 tonni í 912 tonn á síðasta fisk- veiðiári. Samtals var landað 2.716 tonnum sem VS-afla fiskveiðiárið 2012/2013 samanborið við 2.339 tonn fiskveiðiárið 2011/2012. Al- mennt var flutningur aflahlutdeilda á síðasta fiskveiði töluvert minni en á fyrra ári. Það er framhald á þró- un undanfarinna ára. Samdráttur varð líka í umfangi flutnings á kvóta milli skipa miðað við fyrri ár. Nálg- ast má Aflaheftið á vef Fiskistofu. mþh Sjómenn á stóru síldveiðiskipunum eru orðnir mjög langeygir eftir því að íslenska sumargotssíldin sýni sig í verulegu magni á grunnslóðinni við norðanvert Snæfellsnes eins og hún hefur gert á undanförnum árum. Áhafnir skipanna hafa oft- ast þurft að hafa mikið fyrir því að finna síld í veiðanlegu magni. Það sem af er hausti hafa menn beðið þess að síldin kæmi upp að strönd- inni þar sem hún þétti sig í mikl- um torfum eins og á síðustu árum en bið ætlar að verða á þessu. Birti aðeins til í vikulokin Nokkuð hýrnaði yfir mönnum á föstudag í liðinni viku. Þá voru sex síldveiðiskip á litlu svæði á miðjum Urthvalafirði á Snæfellsnesi, um hálfa aðra sjómílu utan við brú á Kolgrafafirði. Skessuhorn sló þá á þráðinn til Gunnlaugs Jónsson- ar skipstjóra á Ingunni AK, öðru af tveimur skipum HB Granda, en skipið var á föstudaginn á svæðinu. „Þetta er skásti dagurinn hjá stóru skipunum í langan tíma,“ sagði Gunnlaugur en sagði þó að síldin væri frekar dreifð og því ekki bein- línis hægt að tala um mok. „Börkur er búinn að fá mjög gott kast. Við komum hingað í morgun á Ingunni AK og fengum 300 tonn í fyrsta kastinu og erum núna að dæla úr öðru kasti sem líklega er um 500 tonn. Ætli við siglum ekki með aflann eftir það. Við kælum aflann vel og fyllum því ekki,“ sagði Gunn- laugur aðspurður. Dagana á undan höfðu síldveiðiskipin verið á veið- um nokkru austar, m.a. við Hrútey, en veiðin var slök. „Þetta er ágætt núna miðað við veiðina undan- farna daga, menn hafa allavega get- að kastað og mér sýnist flest skip- in vera að fá eitthvað,“ sagði Gunn- laugur á Ingunni AK. Miklu minna en undanfarin ár Verra hljóð var komið í strokk- inn þegar Skessuhorn tók púlsinn á veiðunum í gærmorgun. „Það er mjög lítið að sjá af síld. Eigin- lega ótrúlega lítið og bara brot af því sem verið hefur undanfarin ár,“ sagði Guðjón Jóhannsson skip- stjóri á aflaskipinu Hákoni EA 148 þegar Skessuhorn náði tali af hon- um. Skipið var í annarri veiðiferð sinni í Breiðafirði á þessu hausti en það landaði 900 tonnum á föstu- dag. Hákon EA lónaði á þriðjudag ásamt einum sex stórum uppsjáv- arveiðiskipum út af Grundarfirði og Kolgrafafirði í leit að torfum að kasta á. Afli var mjög tregur. „Tíð- arfarið er búið að vera mjög erfitt í haust. Það er enga síld að finna utar í Breiðafirði og á dýpra vatni þann- ig að við erum hér bara með litlu næturnar. Það eru einhverjar hug- myndir um að skipin fari og reyni fyrir sér við suðurströndina þar sem vitað er af síld en veðurfarið hefur verið svo slæmt að það eiginlega aldrei friður,“ sagði Guðjón skip- stjóri á Hákoni EA. Aukinn kvóti hjá trillunum Síldartrillurnar sem sækja út frá Stykkishólmi hafa sömuleiðis afl- að lítið að undaförnu, bæði vegna kvótaskorts og ótíðar á miðunum. Margir smábátanna höfðu veitt upp heimildir sínar þegar Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra gaf í síðustu viku út reglugerð þar heimilað er að auka síldarkvóta til netaveiða á Breiðafirði í 700 tonn. Jafnframt sló ráðuneytið því föstu að ekki verði frekar bætt við kvóta- heimildir smábátaflotans til síld- veiða í haust og vetur utan Kolg- rafafjarðar. Hins vegar hefur ráð- herra viðrað þann möguleika að heimila frjálsar veiðar smábáta fyr- ir innan brú í Kolgrafarfirði. Það yrði hugsanlega gert komi til þess að síldin gangi þar inn í miklu mæli og menn standi frammi fyrir því að óheyrilegt magn síldar drepist í kjölfarið líkt og gerðist síðasta vet- ur. Engar vísbendingar eru þó um að síldin sé komin inn á Kolgrafa- fjörð. Á þessari stundu veit í raun enginn hvar hún heldur sig. mþh/mm Töluvert dregur úr aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu átta mán- uðum ársins í samanburði við sömu mánuði 2012, samkvæmt saman- tekt Hagstofunnar. Nú nemur það 101,4 milljörðum króna samanbor- ið við 108,4 milljarða á sama tíma- bili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega sjö millj- arða króna eða 6,5% á milli ára. Aflaverðmæti botnfisks var rúmlega 57,7 milljarðar króna og dróst sam- an um 9,5% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 29,7 milljarðar og dróst saman um 8,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,3 milljörðum og dróst sam- an um 13,6% en verðmæti karfa- aflans nam tæpum 8,4 milljörðum, sem er 8% samdráttur frá fyrstu átta mánuðum ársins 2012. Verð- mæti úthafskarfa nam 2,1 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins og jókst um 8,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 9,1% milli ára og nam rúmum 5,5 milljörðum króna í janúar til ágúst 2013. Verðmæti uppsjávarafla nam tæp- um 33,1 milljörðum króna í janú- ar til ágúst 2013, sem er um 1,9% aukning frá fyrra ári. Þá aukn- ingu má rekja til loðnuafla og kol- munnaafla. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,9% frá fyrra ári og var rúm- lega 2,8 milljarðar króna í janúar til ágúst 2013. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 37,6% milli ára og var tæplega 1,6 milljarðar króna í janúar til ágúst 2013. Aflaverðmæti Síldveiðar ganga illa Vilhelm Þorsteinsson EA 11 við nótaveiðar á Urthvalafirði á sunnudaginn. Ljósm.: tfk. Síldveiðiskipin voru að veiðum á Urthvalafirði rétt fyrir utan brúna yfir Kolgrafafjörð á föstudag í síðustu viku. Ljósm. tfk. Aflahefti Fiskistofu fyrir síðasta fiskveiðiár komið út Töluverður samdráttur í verðmæti fiskafla makríls var um 12,3 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins sem er 3,6% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti flatfisksafla nam rúmum 6,3 millj- örðum króna, sem er 17% sam- dráttur frá janúar til ágúst 2012. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu inn- anlands nam 50 milljörðum króna og dróst saman um 3,7% mið- að við fyrstu átta mánuði ársins 2012. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 5,8% milli ára og nam rúmlega 14,1 milljarði króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 33,3 milljörðum í janúar til ágúst og dróst saman um 9,4% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam tæpum 3 milljörð- um króna, sem er 22% samdráttur frá árinu 2012. mm/ Ljósm. Friðþjófur Helgason.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.