Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013 Ljótt er þegar líkin fá - leið á að vera dáin Vísnahorn Einhvern veginn streymir þessi blessaður tíma alltaf áfram og allir hlutir halda stöðugt áfram að koma mönnum á óvart ár eftir ár. Skiptir ekki öllu máli hvort um er að ræða kosninga- úrslit, fyrsta snjóinn, haustið eða vorið, fæðingu eða andlát. Allt kemur þetta manni jafn mikið á óvart og alltaf eru menn óviðbúnir. Bjarni frá Gröf í Víðidal orti um þessa hluti: Allt í gegnum aldaraðir, ekki breytast heimsins kynni, ýmist hryggir eða glaðir dansa menn um dauðans traðir. - Drottinn stjórnar hljómsveitinni. Það er nú svona með þessa hljómsveitarstjórn- un skaparans að hún getur tekist allavega enda tónverkin nokkuð breytileg í flutningi. Ætli Björn S. Blöndal hafi ekki verið í einhverjum moll kafla í lífinu þegar hann orti: Ég er votur, víða kalt varla þrot á trega. Lífið potast áfram allt ekki notalega. Kunningi Brynjólfs Einarssonar í Vestmanna- eyjum gaf út ljóðabók í nýtískulegum stíl undir höfundarnafni. Þá varð Brynjólfi að orði: List rænt vera líst mér ljóðakverið frá þér. Að það fer í flokk sér finnur hver, sem læs er. Hvort þessi ritdómur flokkast sem lof eða last getur reyndar farið eftir framburði eða stafsetn- ingu. Allavega skiptir nokkru máli hvort listrænt er eitt eða tvö orð. Ekki hef ég getað komist að því hver orti eft- irfarandi vísu en gengið hefur sá í skóla til Þor- steins Erlingssonar. Mun hafa birst í Morgun- blaðinu á sínum tíma undir dulnefni: Viti sneyddan eymdaróð atómskáldin sungu það getur enginn þeirra ljóð þýtt á nokkra tungu. Matthías Johannessen sem um árabil var rit- stjóri Lesbókar Morgunblaðsins var duglegur að koma ungum skáldum á framfæri og birta ljóð þeirra og ber honum þökk og virðing fyrir það. Vafalaust hefur eitthvað flotið þar með sem ekki stóðst stífustu kröfur um stuðlasetningu og fleira og margir tilbúnir að kasta steinum ef þeim líkar ekki sjálfum. Um Matthías byrjaði Helgi Hjörvar vísu á þessa leið: Ill er hlutdeild örlaganna, um atomskálda rímlaust fjas. Hallgrímur Jónasson botnaði: Að höfuðsmiður hortittanna, heita skuli Matthías. Sveinbjörn Egilsson mun hafa ort eftirfar- andi ritdóm hvort sem hann átti nú rétt á sér eða ekki: Þetta birtir bragarskort, blómaskert og heldur þurrt. Það er stirt og illa ort ekki vert að láta burt. Ekki ber að vanmeta lækningagildi kveðskap- arins og ætli það megi ekki líta á eftirfarandi sendingu Hjálmars Freysteinssonar til Bjarna Stefáns Konráðssonar sem nokkurs konar re- sept: Andleysi, athyglisbrest, uppþembu, hjartslátt og pest ættlæga galla, ilsig og skalla, limrurnar lækna best. Ulrich Richter var eitt sinn kosinn formað- ur Iðunnar og orti þegar hann fékk ábending- ar um verkefni frá gömlu stjórninni: Gamla stjórnin er gengin frá guðar hún samt á skjáinn. Ljótt er þegar líkin fá leið á að vera dáin. Það hefur verið talað um að kvikmyndin ,,Hross í oss“ sýni það mannlega í hestinum og hestinn í manninum. Reyndar er oft ótrú- lega stutt í dýrið í mannskepnunni og á síð- astliðnu vori sendi Vigfús Pétursson í Hæg- indi Þórdísi Sigurbjörnsdóttur í Hrísum eft- irfarandi vísur sem fjalla um sýn karlmannsins á konuna og ýmis tilbrigði við það stef: Áður varstu efni í frú og við lékum saman í fáein skipti þegar þú þvoðir mér í framan. Ef ég sagði ,,Að mér snú“ oft ég sá þig trillta árið sem mér þótti þú þrifleg eins og gylta. Ef að ég fór út að spá eða til að spræna. Ennþá man ég það að þá þú varðst eins og hæna. Ef ég þreyttur út af lá eða sat og réri víst ég minnist þess að þá þú varðst eins og meri. Ef ég mér til bæja brá og bað þig heima tolla. Alla daga þú varst þá þrálát eins og rolla. Ef að fæ ég ögn í tá engan vil ég kvelja. ævinlega þú varst þá með þverúð eins og belja. Svona kveðskap mátti að sjálfsögðu ekki láta ósvarað og þó svarið kæmi ekki strax þá kom það nú samt og ekki voru tilbrigðin síðri þeim megin: Að þú værir efni í mann einu sinni trúði en við kynni út það fann að þú reyndist lúði. Ef mig fyrir útlitið ofurlítið svelti þú með látum kýldir kvið keimlíkastur gelti. Þá ég var í þrifunum á þokkalegu spani sprangaðir þú sposkur um sperrtur eins og hani. Þegar við þig vildi kjá og vefja blíðu og dekri oftast varstu eykinn þá eins og gamall bekri. Ef ég kom þér ögn á skrið og átti að halda í vestur ætíð gekkstu út á hlið eins og kargur hestur. Ef ég bauð þér upp í dans eftir vangalagi lést þú eins og andskotans illvígt naut í flagi. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Hjónin Sigurbjörn Guðmundsson og Málfríður Ögmundsdóttir færðu Bókasafni Akraness papýrus örk að gjöf fyrr í mánuðinum. Papýrus er þunnt blað, líkt pappír og unnin úr stönglum papýrusreyrs. Hjón- in keyptu örkina á ferð sinni um Egyptaland 1987 en ekki er vit- að með vissu hversu gömul örk- in er. Töluvert magn hefur fund- ist af ævafornum papýrus á þessum slóðum enda varðveitist hann vel í sandinum. Slíkar rúllur hafa fundist allt að 5200 ára gamlar en papýrus var aðal ritmiðill Egypta í fornöld. Örkin, sem hjónin gáfu bókasafn- inu, var keypt í úthverfi Kaíró. Sig- urbjörn fékk að fara í bakherbergi á verkstæði einu og kaupa örkina. Seljendurnir voru hræddir um að hann yrði tekinn með hana á leið úr landi þannig að þeir þorðu ekki að rúlla henni upp eins og vaninn er. Hún var því brotin saman og þurfti Sigurbjörn að geyma hana innan- klæða á leið sinni úr landi. grþ Sýningin Franskir sjómenn við Íslandsstrendur var haldin í markað- inum við Nesveg í Grundarfirði á Rökkurdögum. Sýningin var miðviku- daginn 13. nóvember en þar fór María Óskarsdóttir frá Patreksfirði yfir sögu franskra sjómanna sem veiddu hér við Ísland fyrr á öldum. María hefur safn- að heimildum um þetta viðfangsefni og hefur meðal annars gefið út bók á frönsku um þessa samtvinnuðu sögu Frakka og Íslendinga. Sýningin var vel sótt og þótti fróðleg. Hópur Frakka frá Paimpol, vinabæ Grundarfjarðar, voru meðal annarra gesta viðstaddir þessa skemmtilegu sýningu. tfk Jón Magni Ólafsson hefur opn- að sölusýningu á sautján olíu- og krítarmyndum í húsgagnaverslun Bjargs við Kalmansvelli á Akranesi. Jón Magni er fæddur 1943, mjólk- urfræðingur að mennt og búsett- ur á Selfossi. Hann hefur í gegn- um tíðina teiknað mikið en síðari ár einnig málað með olíulitum. Jón Magni hefur haldið nokkrar sýning- ar áður, bæði einn og með öðrum. Hann hefur sótt námskeið í málun og teikningu og var um tíma félagi í Myndlistarfélagi Árnessýslu. mm Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var hald- inn síðastliðinn sunnudag. Lands- menn voru hvattir til að nota dag- inn til að leiða hugann að minn- ingu þeirra sem látist hafa í um- ferðinni og þeim sem hafa slas- ast, en jafnframt íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber sem þátttak- andi í umferðinni. Klukkan 11:15 var einnar mínútu þögn sem lands- menn voru hvattir til að taka þátt í. „Um það bil 4.000 manns láta lífið og hundruð þúsunda slasast í um- ferðinni í heiminum á degi hverj- um. Enn fleiri þurfa að takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af völdum þessa. Segja má að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðing- ar umferðarslysa. Vart er til sá ein- staklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni,“ segir í tilkynningu frá Samgöngustofu vegna þessa minn- ingardags. mm Franskir sjómenn við Íslandsstrendur Sigurbjörn stendur hér við innrammaðan papýrusinn. Hjónin lánuðu bókasafn- inu einnig minni myndina en hún er eftirlíking af papírusmyndum sem algengar voru um 2500 árum fyrir Krist. Bókasafn Akraness fær egypskan papýrus að gjöf Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa Tvö verka Jóns Magna í Bjargi. Jón Magni með sölusýningu í Bjargi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.