Skessuhorn - 20.11.2013, Qupperneq 29
29MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013
Vantar vinnu á Akranesi
Er 17 ára stelpa sem vantar vinnu á
Akranesi. Er ekki í skóla þannig er að
tala um fullt starf. Skoða allt, s. 846-
9713.
Söluaðilar óskast á gæludýrafóðri
Óskum eftir öflugum söluaðilum á
Vesturlandi - helst verslunum á einu
vinsælasta gæludýrafóðri landins.
Brit er hágæða fóður á mjög góðu
verði fyrir hunda og ketti. Áhugasamir
sendi uppl. á vorusel@gmail.com. Sjá
nánar á www.petmax.is
Borgarnes
2ja herbergja íbúð til leigu. Leiguverð
70 þús kr. á mánuði með rafmagni og
hita. Fín fyrir einstakling eða par. Upp-
lýsingar í síma 864-5542 eða tölvu-
póst karlsbrekka@outlook.com
4ra herbergja í Borgarnesi
Til leigu 4ra herberga sérhæð í
Borgarnesi, 150 fm. auk 34 fm. bíl-
skúrs sem nýttur er sem geymsla með
eigendum. Dýrahald ekki leyft í hús-
næði. Húsaleiguábyrgð skilyrði. Laus
um miðjan desember. http://www.
mbl.is/fasteignir/fasteign/557368
Íbúð til leigu á Akranesi
Tveggja herbergja 95 fm íbúð til leigu
frá 1. des 2013 til 1. júní 2015. Leiga
á mánuði 120 þús, sameign innifalin.
Húsgögn og rafmagnstæki geta fylgt.
Uppl. í síma 698-3753, tölvupóstur
bhh@vsn.is
Leiga í Borgarnesi
2ja herbergja íbúð. Hrafnaklettur 3.
hæð, ekki lyfta, hiti innifalinn, dýra-
hald ekki leyft, leiga uppgefin,leigu-
verð 120 þús á mán. Laus strax.Upp-
lýsingar í síma 864-5542 eða netfang
karlsbrekka@outlook.com
Íbúð óskast
Vantar íbúð á stór Borgarnes svæðinu.
Er með hund sem fer með mér í vinn-
una og er nánast aldrei einn heima.
Sími: 848-5799.
Óska eftir íbúð
Ég er 24 ára gömul stelpa og er að
leita mér að lítilli stúdíó íbúð í Borga-
nesi. Fer í Menntaskóla Borgafjarðar
eftir áramót. Heiti skilvísum greiðslum,
drekk ekki. Endilega hafið samband:
ingibjorgbh12@menntaborg.is
Ódýr valtari óskast
Óska eftir valtara til að viðhalda
flugbraut á Mýrunum. Nánari uppl:
randver.refaskytta@gmail.com
Óska eftir allskonar gömlum
mótorhjólum
Jafnvel bara pörtum, vél, felgum eða
grind. Lumar þú á gömlu mótorhjóli
eða veist þú um slíkt? Upplýsingar í
síma 896-0158 og vsf@mi.is
Skartgripir
Skart á góðu verði fyrir stelpur á
öllum aldri. Tilvalið til gjafa. Sendi
um allt land. Upplýsingar á facebook.
com/hjartaskart
Borgarnes dagatalið 2014
Borgarnes dagatalið
2014 er komið út, fjórði
árgangur. Skoða má
myndirnar á dagatalinu
og fá allar nánari upp-
lýsingar á slóðinni:
www.hvitatravel.is/
dagatal Nánari upplýsingar fást í síma
661-7173 eða á netfanginu: tolli@
hvitatravel.is
Dagatal í Jólapakkann!
Er með
dagatal með
myndum frá
okkar fallega
Íslandi til
sölu - Stærð-
in er 28x35
og er mjög
snyrtilegt og
fallegt og
kostar það
3500 kr stk.
Nauðsynlegt
er að panta til að tryggja sér eintak.
Kristín s. 866-5137.
Nagladekk á álfelgum
Til sölu 4 stk BFGoodrich nagladekk á
álfelgum voru undir Subaru Forrester
í einn vetur. Uppl. í sima 895-2558 eða
tölvupóst hraunhals@gmail.com
Viltu losna við bjúg og sykurþörf?
Þá er Oolong- og Pu-er teið eitt það
albesta. 1 pakki með 100 tepokum er
á 4300. Ef keyptir eru 2 pk. eða fl. er
verðið 7800. Sykurþörfin minnkar og
hverfur oftast eftir nokkra daga. Gott
fyrir líkamlega og andlega heilsu. Þú
getur fengið grænt lífrænt te með
á 1500. 100 pokar, kynningarverð. S:
845-5715, Nína.
Markaður
Prjónahópur Rauða krossins á
Akranesi verður með basar 20. og 27.
nóvember nk. kl. 13-16 í Rauða kross
húsi Skólabraut 25a. Til sölu verður
m.a. úrval fallegra prjónavara, broddur
frá Eystri-Leirárgörðum, kaffi, vöfflur
og fl. Allur ágóði rennur til Rauða
krossins á Akranesi og til barna í
Hvíta-Rússlandi. Endilega kíkið við og
styrkið gott málefni.
LEIGUMARKAÐUR
Markaðstorg Vesturlands
TIL SÖLU
ATVINNA ÓSKAST
DÝRAHALD
ÓSKAST KEYPT
Akranes –
miðvikudagur 20. nóvember
Prjónahópur Rauða krossins á
Akranesi verður með basar 20. og 27.
nóvember nk. kl. 13 - 16 í Rauða kross
húsi Skólabraut 25a. Til sölu verður
m.a. úrval fallegra prjónavara, broddur
frá Eystri-Leirárgörðum, kaffi, vöfflur
og fl. Allur ágóði rennur til Rauða
krossins á Akranesi og til barna í Hvíta-
Rússlandi. Endilega kíkið við og styrkið
gott málefni.
Borgarbyggð –
miðvikudagur 20. nóvember
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum
að Brún í Bæjarsveit. Fundur kl. 13:30
með Jónu Valgerði Kristjánsdóttur,
formanni LEB, ásamt öðrum úr stjórn
LEB. Allir eldri borgarar velkomnir
að kynna sér starf LEB og ræða við
gestina. Heitt kaffi á könnunni.
Grundarfjörður –
miðvikudagur 20. nóvember
Rauði krossinn í Grundarfirði heldur
4 klst. skyndihjálparnámskeið
miðvikudaginn 20. nóvember
kl. 18 – 22. Haldið í húsnæði
Sögumiðstöðvarinnar í Grundarfirði.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem
vilja læra eða rifja upp grunnatriði
skyndihjálpar og sálræns stuðnings
og öðlast lágmarksfærni í að veita
slösuðum eða veikum aðstoð í
bráðatilfellum. Leiðbeinandi á
námskeiðinu verður Þórarinn
Steingrímsson. Verð kr. 3.900,- innifalið
er skyndihjálpar skírteini. Nánari
upplýsingar á bryndistheo@gmail.
com og í síma 862-1355.
Borgarnes –
miðvikudagur 20. nóvember
Fræðslu- og aðalfundur
Krabbameinsfélags Borgarfjarðar
verður í húsnæði félagsstarfs
aldraðra (niðri) Borgarbraut
65a, kl. 20. Á fundinn mætir
Ásdís hjúkrunarfræðingur frá
ráðgjafarþjónustu KÍ.
Stykkishólmur – miðvikudagur 20.
nóvember
Fræðslukvöld um plast á
ráðhúsloftinu, Hafnargötu 3, kl.
20. Stefán Gíslason, Environice, og
Rannveig Magnúsdóttir, Landvernd,
fjalla um plast frá ýmsum hliðum. Um
uppruna þess og afdrif, mismunandi
plastefni, plastpoka og notkun
þeirra og endurvinnslu og förgun á
plasti. Sjónum verður einnig beint
að áhrifum plasts á umhverfi og
heilsu, þar á meðal um plasteyjar í
úthöfunum, hormónaraskandi áhrif
og helstu leiðir til að draga úr þessum
áhrifum.
Dalabyggð – fimmtudagur 21.
nóvember
Félagsvist, kaffi og söngur.
Eldri borgarar í Dalabyggð og
Reykhólahreppi koma saman kl. 13:30-
16 í Leifsbúð. Fjölbreytt dagskrá, kaffi
og á eftir eru söngæfingar. Allir eldri
borgarar í Dölum og Reykhólasveit
eru velkomnir.
Stykkishólmur –
fimmtudagur 21. nóvember
Hausttónleikar Lúðrasveitar
Stykkishólms undir stjórn Martins
Markvoll verða í Stykkishólmskirkju
kl. 18. Fjölbreyttir og fjörugir tónleikar
þar sem koma fram allar deildir
sveitarinnar, Litla Lúðró, Stóra Lúðró,
Víkingasveitin og Trommusveitin.
Tónleikarnir eru liður í afmælisfagnaði,
en nú er sveitin á sínu 70. starfsári.
Akranes –
fimmtudagur 21. nóvember
Músíkfundur í Tónbergi kl. 18:15.
Nemendur skólans flytja tónlist með
áherslu á íslensk lög. Verið velkomin.
Borgarbyggð –
fimmtudagur 21. nóvember
Bjössi Thor & Bítlarnir í Landnámssetri
Íslands kl. 20. Túlkun Björns
á Bítlalögunum hefur vakið
verðskuldaða athygli á tónleikum
hans víða um lönd að undanförnu.
Nú geta íslenskir aðdáendur Bjössa
og Bítlanna notið þeirra á tónleikum í
Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Akranes –
föstudagur 22. nóvember
Starfsbraut FVA - Opið hús kl. 9.30 –
13.30. Til sölu verða ýmsir munir sem
nemendur starfsbrautar hafa búið
til. Kaffi og vöfflur í boði gegn vægu
gjaldi. Allir velkomnir. Nemendur og
starfsfólk starfsbrautar FVA.
Strandir –
laugardagur 23. nóvember
Rúllupylsukeppni í Sævangi kl.
13. Sauðfjársetur á Ströndum og
Slow food samtökin á Íslandi halda
Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í
Sauðfjársetrinu á Ströndum.
Dalabyggð –
laugardagur 23. nóvember
Karlakórinn Kári heldur tónleika
í Dalabúð kl. 16. Aðgangseyrir er
1.500 kr. Athugið að enginn posi er á
staðnum.
Dalabyggð –
laugardagur 23. nóvember
Villibráðar- og jólahlaðborð verður í
Leifsbúð og hefst kl. 19. Borðapantanir
eru í síma 869-6463 eftir kl. 16. Einnig
er hægt að hringja í Leifsbúð milli
kl. 11 og 15 alla daga. Þá er tekið við
pöntunum á netfanginu leifsbud@
dalir.is Verð 7.200 kr. Nánar um
matseðil og fleira verður á www.
leifsbud.com
Borgarbyggð –
laugardagur 23. nóvember
Gleðifundur verður haldinn í
Logalandi. Húsið opnar kl. 20 og hefst
borðhald kl. 20:30. Aldurstakmark
er 18 ár og eru miðapantanir í
síma 894-4066 eða á netfangið
gledifundur2013@gmail.com pantanir
þurfa að hafa borist 18 nóvember.
Miðaverð er 6000 kr.
Dalabyggð –
laugardagur 23. nóvember
Jólahlaðborð verður á Vogi
á Fellsströnd kl. 20. Verð fyrir
jólahlaðborðið er kr. 7.900. Einnig
er hægt að fá í einum pakka,
jólahlaðborð, gistingu í tveggja
manna herbergi og morgunverð
á 15.900 kr. fyrir manninn. Nánari
upplýsingar og pantanir í síma
894-4396 eða á netfanginu vogur@
vogur.org
Borgarbyggð –
sunnudagur 24. nóvember
Í tilefni þess að Björgunarsveitin
Heiðar varð 40 ára þann 31 mars
síðastliðinn verður sveitin með
afmæliskaffi og opið hús í Þinghamri
milli kl. 14-17.
Borgarbyggð –
sunnudagur 24. nóvember
Íslenski saxófónkvartettinn á
hátíðatónleikum Tónlistarfélags
Borgarfjarðar í Reykholtskirkju kl. 20.
Sjá nánar frétt í blaðinu.
Dalabyggð –
mánudagur 25. nóvember
Áætlað er að safna rúlluplasti á
lögbýlum í Dalabyggð dagana 25.-
26. nóvember. Plastið skal haft á
aðgengilegum stað og snyrtilega
frágengið fyrir sorpverktaka.
Grundarfjörður –
mánudagur 25. nóvember
Morgunsöngur kl. 10 í
Grundarfjarðarkirkju. Tuttugu
mínútna löng samveru stund með
léttum söngvum, bæn og lestri úr
ritningunni. Kaffi og spjall á eftir í
safnaðarheimili. Allir velkomnir.
Dalabyggð –
mánudagur 25. nóvember
Fundur vegna sauðfjársæðinga 2013
verður í Dalabúð kl. 20:30.
Á döfinni
ÝMISLEGT
Nýfæddir
Vestlendingar
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Dætur dalsins
Tíu konur á tíu öldum
Fróðleikur um formæður
Óskar Guðmundsson flytur
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudaginn 26. nóv. 2013
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
12. nóvember. Drengur. Þyngd 4.090
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar Kathrin
Martha Schmitt og Ásgeir Sverrisson,
Hvammstanga. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir.
16. nóvember. Stúlka Þyngd 2.865
gr. Lengd 51 sm. Foreldrar Lára
Elín Guðbrandsdóttir og Gunnar
Bergmann Steingrímsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
Stúlkan hefur fengið nafnið Elísabet
María.
17. nóvember. Stúlka. Þyngd 3.515
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar Anna
Heiða Baldursdóttir og Símon Bergur
Sigurgeirsson, Borgarnesi. Ljósmóðir:
Ásthildur Gestsdóttir.
17. nóvember. Drengur. Þyngd 3.415
gr. Lengd 51 sm. Foreldrar Jóna
Lind Helgadóttir og Víðir Víðisson,
Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Soffía G.
Þórðardóttir