Skessuhorn - 20.11.2013, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Við seljum bíla frá BL
nýja og notaða
HYUNDAI – RENAULT
OPEL – DACIA – SUBARU
NISSAN – BMW LAND
ROVER/RANGE ROVER
Fólksbílar – jeppar
pallbílar – sendibílar
Hvergi meira úrval
glæsilegra bifreiða
Sýningabílar á staðnum
Örugg viðskipti í 30 ár
Smiðjuvellir 17, Akranesi
Sími 431-2622
www.bilas.is
bilas@bilas.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Skallagrímsmenn tóku á móti topp-
liði Keflvíkinga sl. fimmtudags-
kvöld í Borgarnesi í Dominos deild
karla í körfuknattleik. Um ramm-
an reip var að draga fyrir heima-
menn sem léku án lykilmanna og
urðu lokatölur 67-96 fyrir Suður-
nesjamenn. Borgnesingar áttu þó
fína spretti framan af leik og var
fremur jafnt með liðunum í fyrri
hálfleik. Keflvíkingar voru þó með
yfirhöndina en staðan að loknum
fyrsta leikhluta var 18:22 og í hálf-
leik 37:47 fyrir gestina. Heima-
menn áttu afar erfitt uppdráttar í
þriðja leikhluta sem gestirnir réðu
með yfirburðum. Skallagrímsmenn
skoruðu einungis tíu stig í honum
á móti 29 hjá Keflvíkingum. Minni
spámenn fengu loks að spreyta sig
í lokaleikhlutanum hjá báðum lið-
um og urðu lokatölur eins og áður
sagði 67:96 fyrir Keflavíkinga.
Bestur í liði Skallagríms á
fimmtudagskvöldið var miðherj-
inn Grétar Ingi Erlendsson sem
skoraði 19 stig og tók 12 fráköst
en einnig var Egill Egilsson öflug-
ur með 18 stig. Orri Jónsson átti
einnig fína spretti með 12 stig og
9 fráköst. Þá skoruðu Davíð Guð-
mundsson 6 stig, Trausti Eiríksson
5 og tók einnig 12 fráköst, Sigurð-
ur Þórarinsson 5 og Davíð Ásgeirs-
son 2. Liðið lék án Páls Axels Vil-
bergssonar í leiknum sem var frá
vegna meiðsla.
Skallagrímur vermir nú 11. sæti
deildarinnar með 2 stig en liðið
hefur leikið sex leiki. Næsti leik-
ur liðsins er gegn Þór frá Þorláks-
höfn og fer leikurinn fram á mánu-
daginn.
Nýr leikmaður
Eins og greint var frá nýverið
leystu Borgnesingar bandaríska
leikmanninn Mychal Greene und-
an samningi en hann hafði leiki
fjóra leiki með liðinu í deildinni.
Þeir hafa nú fundið arftaka hans í
leikstjórnand-
anum Oscar
Bellfield sem
kom til Íslands
í lok síðustu
viku. Oscar er
23 ára gam-
all og lék með
University of
Las Vegas í
efstu deild í
háskóla. Hann
var á mála hjá
NBA liðun-
um Memphis
Grizzlies og
New York Knicks um tíma en lék
síðast með liði í Venesúela. Osc-
ar er kominn með leikheimild og
mun klæðast Skallagrímsbúningn-
um á mánudaginn gegn Þór.
hlh
Jóhannes Karl
Guðjónsson, fyr-
irliði Skagaliðs-
ins í fótbolta, hef-
ur fengið leyfi
stjórnar KFÍA til
að fara í viðræð-
ur við önnur félög. Frést hefur af því að
KR, FH og Valur hafi sýnt Jóhannesi
Karli áhuga. Í samkomulagi stjórnar og
Jóhannesar Karls felst að áður en við-
ræður hans við önnur félög geta hafist
verða þau félög að ná samkomulagi við
KFÍA um félagaskiptagjald. þá
Skagamenn knúðu fram
sigur í hörkuleik þeg-
ar Hattarmenn frá Eg-
ilsstöðum komu í heim-
sókn í 1. deildinni á Jaðarsbakka
sl. föstudagskvöld. Lokatölur
voru 111:109 fyrir ÍA sem er enn
í þriðja sæti deildarinnar á eftir
Þór frá Akureyri og Tindastóli
á Sauðárkróki. Gestirnir byrj-
uðu betur í leiknum á föstudags-
kvöldið og voru tíu stigum yfir
eftir fyrsta leikhluta, 25:15 og sjö
stigum yfir í hálfleik 53:46. Þriðji
leikhluti hefur oft reynst Skaga-
mönnum erfiður í körfuboltan-
um en í þetta skiptið var það ekki.
Skagamenn skoruðu í honum 33
stig gegn 22 stigum gestanna,
höfðu betur á kafla í leiknum þar
sem skorið var gríðarmikið. ÍA
var því með fjögurra stiga for-
skot fyrir lokaflann sem var æsi-
spennandi en leiknum lauk eins
og áður segir með sætum sigri
Skagamanna. Sem fyrr var það
bandaríski leikmaðurinn Jamarco
Warren sem var atkvæðamest-
ur hjá ÍA, skoraði 44 stig. Næst-
ur kom þjálfarinn Áskell Jóns-
son með 26 stig, þá Erlendur Þór
Ottesen með 15, Birkir Guðjóns-
son 13, Ómar Örn Helgason 5,
Sigurður Rúnar Sigurðsson 4,
Trausti Freyr Jónsson 3 og Dag-
ur Þórisson 1.
ÍA á erfiðan leik fyrir hönd-
um í næstu umferð gegn Tinda-
stóli á Sauðárkróki nk. föstudags-
kvöld. Tindastólsmenn eru enn
taplausir og hafa unnið leiki sína
með talverðum mun það sem af
er tímabilinu.
þá
Snæfell virðist heldur bet-
ur vera að komast í gang
í úrsvalsdeildinni í körfu-
bolta eftir fremur slakt
gengi framan af móti í úr-
valsdeildinni. Snæfellingar unnu
stórsigur á ÍR þegar liðin mætt-
ust í Seljaskóla sl. föstudagskvöld
og sigruðu þar með í sínum öðrum
leik í röð. Lokatölur urðu 77:110
og voru gestirnir með frumkvæðið
í leiknum allan tíma. Snæfell leiddi
með 15 stigum eftir fyrsta leikhluta
og var 20 stigum yfir í hálfleik,
62:42. Sami munur var svo á liðun-
um eftir þriðja leikhluta en á loka-
kaflanum virtist svo allur vindur úr
ÍR-ingum og Snæfellingar innsigl-
uðu auðveldlega yfirburða sigur.
Jón Ólafur Jónsson fór fyrir sínum
mönnum, var í feikna stuði í þriggja
stiga skotunum. Hitti í sjö fyrstu
skottilraunum og alls í átta þriggja
stiga skotum. Jón Ólafur skor-
aði 30 stig í leiknum og tók 9 frá-
köst. Vance Cooksey skoraði einn-
ig 30 stig og tók 7 fráköst, Sigurður
Á Þorvaldsson 14 stig og 8 fráköst,
Kristján Pétur Andrésson 12 stig,
Sveinn Arnar Davíðsson 7, Finnur
Atli Magnússon 6, Pálmi Freyr Sig-
urgeirsson 5, Stefán Karel Torfa-
son 4 og Hafþór Ingi Gunnarsson
2. Snæfell fór eftir leikinn í sex stig
í deildinni sem þýddi 7. sætið.
Snæfell tekur á móti Val í Hólm-
inum í næstu umferð á morgun,
fimmtudag. Í hinum leik Vestur-
landsliðanna sl. fimmtudagskvöld
steinlá Skallagrímur fyrir Kefla-
vík heima með tæplega þrjátíu stiga
mun, 67:96, en Skallagrímsmenn
eru enn Kanalausir.
þá
Snæfellskonur fögn-
uðu í tvígang sigri í lið-
inni viku í úrvalsdeild-
inni í körfubolta. Tí-
unda umferð úrvalsdeildar byrjaði
um helgina. Snæfellskonur unnu
stórsigur á Hamri í Stykkishólmi
á sunnudag, 88:58. Á sama tíma
töpuðu Keflavíkurstúlkur fyrir
Val og eru Snæfell og Keflavík þar
með jöfn á toppnum með 16 stig
og með ágætt forskot á næstu lið.
Snæfell vann einmitt Val í hörku-
leik sl. miðvikudagskvöld, 77:74.
Leikurinn gegn Hamri var
kaflaskiptur. Hamarskonur byrj-
uðu betur og voru fjórum stigum
yfir eftir fyrsta leikhluta, 15:11.
Áfram höfðu gestirnir forustu
fram eftir öðrum leikhluta en þá
tóku heimastúlkur við sér og voru
níu stigum yfir í hálfleik 37:28.
Snæfell jók síðan forustuna enn
meir, munurinn var orðinn 19
stig eftir þriðja leikhluta og ljóst
að þar með voru úrslitin ráðin að-
eins spurning um hve stór sigur
Snæfells yrði. Chynna Brown var
atkvæðamest hjá Snæfelli með 24
stig, 7 fráköst og 8 stolna bolta,
Eva Margrét Kristjánsdóttir kom
næst með 16 stig, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 14, Hildur Sigurð-
ardóttir skoraði 10, tók 8 fráköst
og átti 12 stoðsendingar, Hugrún
Eva Valdimarsdóttir 8 stig og 11
fráköst, Helga Hjördís Björgvins-
dóttir 5 stig, Rebekka Rán Karls-
dóttir 3, Silja Katrín Davíðsdótt-
ir 3, Aníta Rún Sæþórsdóttir 3 og
Berglind Gunnarsdóttir 2.
Snæfellkonur unnu góðan sig-
ur á Valsstúlkum á Hlíðarenda
sl. miðvikudag. Lokatölur urðu
77:74 í leik þar sem Snæfell var
með góða forystu lengst af en
virtust slaka á í lokaleikhlutanum
þannig að lítill munur var á liðun-
um síðustu mínútur leiksins. Snæ-
fell var sjö stigum yfir í hálfleik
og 14 stigum fyrir lokafjórðung-
inn. Atkvæðamest hjá Snæfelli var
Chynna Brown með 29 stig, Hild-
ur Sigurðardóttir skoraði 14 stig,
tók 10 fráköst og átti 8 stoðsend-
ingar, Hugrún Eva Valdimars-
dóttir skoraði 14 stig og tók 9
fráköst, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 9 stig, Eva Margrét Krist-
jánsdóttir 7 og Helga Björgvins-
dóttir 4. Næst mæta Snæfellskon-
ur Njarðvíkurstúlkum syðra nk.
sunnudag.
þá
Knattspyrnudeild Vík-
ings í Ólafsvík hélt stuðn-
ingsmannakvöld síðastlið-
inn laugardag. Mættir voru
á Kaffi Belg í Ólafsvík um
60 stuðningsmenn Víkings-
sveitarinnar þar sem Jón-
as Gestur formaður félags-
ins fór yfir sumarið í máli
og myndum. Stjórn Vík-
ings bauð upp á snittur og
fleira góðmeti. Í framhaldi
var undirritaður samningur við tvo
leikmenn, þá Anton Jónas Illuga-
son og Vigni Snæ Stefánsson. Þá
voru sýndar myndir af Einari mark-
verði, en hann mun ekki gefa kost á
sér fyrir næsta keppnistímabil. Ein-
ar hóf að leika með Víkingi árið
2002 með hléum og hefur hann svo
spilað sleitulaust frá 2005. Einar er
leikjahæsti leikmaður Víkings með
273 leiki.
Á stuðningsmannakvöldinu var
formlega stofnað Stuðningsmanna-
félag Víkings og hlaut félagið nafn-
ið ,,Víkingasveitin.“ Farið var yfir
reglur Víkingasveitarinnar og þær
bornar fyrir stuðningsmenn. Eng-
ar athugasemdir komu fram og
voru þær samþykkar einróma. Ný
stjórn Víkingasveitarinnar var þá
kjörin. Formaður er Lárus Ein-
arsson, varaformaður Stefán Elin-
bergsson, gjaldkeri Vagn Ingólfs-
son, ritari Helgi Kristjánsson og
upplýsingafulltrúi Gunnar á Völl-
um. Meðstjórnendur voru kjörn-
ir þeir Sigtryggur Þráinsson, Odd-
ur Brynjarsson, Þráinn Viðar Eg-
ilsson, Guðmundur Þorgrímsson
og Viðar Ingi Pétursson. Varamað-
ur var kjörinn Hákon Þorri. Ný
heimasíða var formlega opnuð við
þetta tilefni; www.víkingasveitin.is.
Einnig var merki Víkingasveitar-
innar kynnt en það var teiknað og
hannað af Vagni Ingólfssyni. af
Fyrri umferð B riðils riðlakeppninnar í
Futsal var spiluð í íþróttahúsi Snæfells-
bæjar í Ólafsvík um helgina. Víkingur
Ó hóf titilvörn sína með sigri í öllum
sínum leikjum með yfirburðum. En
stærsti sigurinn vannst gegn Kormáki/
Hvöt; 14- 0. Næsta umferð B riðils fer
fram á Akranesi 7. desember nk. af
Jóhannes Karl
á förum
Víkingur hóf titil-
vörn í Futsal
Skagamenn áfram á sigur-
braut í körfuboltanum
Snæfell vann stórsigur
á ÍR-ingum
Tveir ungir leikmenn undirrituðu samning við
Víking. Anton Jónas Illugason og Vignir Snær
Stefánsson. Milli þeirra situr Jónas Gestur.
Stuðningsmannafélagið
Víkingasveitin
Erfiður róður gegn toppliði Keflvíkinga
Snæfellskonur jafnar Keflavík
Oscar Bellfield,
nýjasti leikmaður
Skallagríms. Ljósm.
Eðvar Ó. Traustason.
Grétar Ingi Erlendsson var manna
öflugastur í liði Skallagríms.
Ljósm. hlh.