Skessuhorn - 08.01.2014, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Nafn: Bylgja Dröfn Jónsdóttir.
Starfsheiti/fyrirtæki: Beitning
artæknir hjá Álfinum ehf.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
Ólafsvík. Fráskilin og barnlaus.
Áhugamál: Tölvur og að vinna
með leir og gler.
Vinnudagurinn: 2. janúar 2014.
Mætt til vinnu og fyrstu verk?
Mætti í vinnu um sexleytið og það
fyrsta sem ég gerði var að fá mér
kaffi og sígó.
Klukkan 10? Þá var ég að beita.
Hádegið: Ég tek aldrei matarhlé
í beitningunni. Ég fæ mér bara
reglulega kaffi og sígó.
Klukkan 13? Þá var ég að drífa
mig að klára að vinna.
Hvenær hætt og síðustu verk í
vinnunni? Ég hætti upp úr klukk
an tvö og lauk vinnudeginum með
því að þrífa og ganga frá og að
sjálfsögðu fá mér kaffi og sígó.
Fastir liðir alla daga? Mæta í
vinnu. Hugsa um hundinn minn,
læra í 24 klukkustundir á dag og
slaka á eftir kvöldmat.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Að hafa náð því
að æsa Alfons Finnsson upp með
því að tala um hvar ManUtd er í
deildinni. Það er svo gaman!
Var dagurinn hefðbundinn? Já,
flestir vinnudagar eru svipaðir,
reyndar mismunandi langir. Það
fer eftir hvernig línan er.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði hjá þessu fyrir
tæki í nóvember 2013. En ég hef
unnið við þetta meira og minna
síðustu 25 ár.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Nei, alveg örugglega ekki. Þess
vegna er ég í skóla.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Ekki alltaf.
Dag ur í lífi...
Beitningarkonu
Árið 2014 er gengið í garð og í vor
lýkur þessu kjörtímabili. Með þess
um línum vil ég líta yfir farinn veg
og gera grein fyrir þeirri niður
stöðu minni að gefa ekki kost á mér
til áframhaldandi setu í bæjarstjórn
Grundarfjarðar.
Ástæðan fyrir því að ég ákvað,
vorið 2010 að gefa kost á mér til
starfa í bæjarstjórn, var að mér
fannst spennandi að taka þátt í að
byggja upp hið „Nýja Ísland,“ eftir
bankahrun. Ég hafði þá í tíu ár sér
hæft mig í aðferðum við samræðu
og aðkomu almennings að ákvarð
anatöku. Það var og er enn, bjarg
föst trú mín að við verðum að efla
samfélögin okkar innan frá, með
því að gefa fólki kost á að taka raun
verulegan þátt í ákvörðunum um
málefni sem varðar það og samfé
lag þess, virkja hugmyndaauðgi og
frumkvöðlakraft. Og hvergi ætti að
liggja eins vel við að bjóða íbúum
að borðinu og í sveitarfélögum. Ég
tel líka að við eigum að skiptast á
að sinna störfum fyrir samfélagið
okkar.
Á þessu kjörtímabili hefur bæj
arstjórn Grundarfjarðar stigið ýmis
skref í þá átt að koma á virkri sam
ræðu við íbúa. Haldnir hafa ver
ið upplýsingafundir vor og haust
og sýnir mæting á þá fundi að fólk
kann að meta það að fá að fylgjast
með. Umræðan á þessum fundum
hefur haft áhrif á ákvarðanatöku.
Í nóvember síðastliðnum var svo
haldið íbúaþing og stýrihópur mun
nú í byrjun árs vinna frekar úr nið
urstöðum þess.
Þrátt fyrir þessa viðleitni og ár
angur, hefði ég viljað sjá okk
ur komast lengra. Ég hefði viljað
sjá meiri árangur í breyttu hugar
fari, þannig að við litum æ oftar á
okkur sem samstarfsaðila, bæjar
stjórn og íbúa. Eitt af því sem ég
hef lært er að mikilvægustu ákvarð
anirnar um málefni sveitarfélaga
eru ekki teknar af sveitarstjórnum,
heldur bundnar í lög og reglu
gerðir. Ákvarðanir sem hafa áhrif
á aðstæður okkar eru kannski tekn
ar í Reykjavík, Brussel eða á Wall
Street. Einmitt þess vegna skiptir
máli að við tökum virkan þátt í því
sem við þó getum haft áhrif á.
Við erum í samkeppni við önn
ur svæði á landinu um íbúa og at
vinnutækifæri. Þar getum við náð
svo miklu meiri árangri ef við sækj
um fram saman, Snæfellingar. Það
er mikilvægt að við stöndum heils
hugar á bak við sameiginleg verk
efni sveitarfélaganna, núverandi og
það nýja verkefni sem stefnt er að
með stofnun Svæðisgarðs Snæfell
inga. Við eigum að stefna að sam
einingu sveitarfélaganna á þessu ári
og við eigum að vinna meira með
ungu fólki, því þeirra er framtíðin.
Við eigum að þora að vera stórhuga
og þora að fara nýjar leiðir.
Eins og kunnugt er hafa kraft
ar og tími bæjarstjórnar Grundar
fjarðar á þessu kjörtímabili farið að
mestu í að vinna úr erfiðri fjárhags
stöðu bæjarins. Þar hefur náðst góð
ur árangur vegna samstillts átaks
allra, bæjarstjórnar, starfsmanna
og íbúa. Fyrir samstarf í þeim mál
um og öðrum, þakka ég heilshug
ar. Seta í bæjarstjórn er þjónusta við
íbúa og bæjarfélagið í heild. Ég hef
verið tilbúin að leggja krafta mína
af mörkum fyrir mitt samfélag. En
mig þyrsti í breytingar og nú met
ég það svo að kröftum mínum sé
betur varið á öðrum vettvangi. Ég
er þakklát fyrir þá þekkingu og
reynslu sem bæjarmálin hafa gefið
mér. Það hafa svo sannarlega ver
ið forréttindi að fá að deila kjörum
með íbúum, bæði á gleði og sorg
arstundum.
Á þessu kjörtímabili höfum við
hafið hvern bæjarstjórnarfund á því
að fagna nýfæddum Grundfirðing
um og minnast genginna. Það er
vegna þess að hér í okkar litla og
góða samfélagi skiptir hver einasti
einstaklingur máli.
Megi nýtt ár færa Grundfirðing
um og Snæfellingum öllum heill,
hamingju, stórhug og samstöðu!
Lifið heil!
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti
bæjarstjórnar Grundarfjarðar.
Síðar í þessum mánuði hefur göngu
sína raunveruleikaþátturinn The
Biggest Loser á Skjá Einum. Yfir
1300 manns sóttu um þátttöku en
einungis 12 voru valdir til að taka
þátt. Ein af þeim er Inga Lára Guð
laugsdóttir frá Akranesi. Þættir
nir eru af erlendri fyrirmynd sam
nefndra sjónvarpsþátta sem not
ið hafa vinsælda víða um heim.
Keppendurnir dvöldu í tíu vikur á
Heilsuhótelinu á Ásbrú og keppa
hver við annan um titilinn The
Biggest Loser Ísland. Þeir vinna
nú markvisst að því að bæta heilsu
sína og berjast við aukakílóin með
aðstoð fagfólks. Líkt og í erlendu
þáttaröðunum hefur teymið lækna,
sálfræðinga, næringarfræðinga og
líkamsræktarþjálfara á sínum snær
um. Þrátt fyrir að þátttakendur séu
nú komnir heim eru þeir enn í stífu
æfingaprógrammi því keppninni er
hvergi nærri lokið. Lokaþátturinn
fer fram í beinni útsendingu í apríl
þar sem í ljós kemur hver kepp
andana hefur staðið sig best upp á
eigin spýtur. Sigurvegarinn hlýtur
eina milljón króna og aðra milljón
í ýmsum varningi að launum.
„Að breyta um lífsstíl er
sigur fyrir mig“
Inga Lára er 31 árs félagsfræði
nemi við Háskóla Íslands og starf
ar í söluturni Stöðvarinnar á Akra
nesi. Hún er ein 12 keppenda sem
valdir voru til þátttöku í The Big
gest Loser Ísland og af því tilefni
heyrði blaðamaður í henni hljóð
ið. „Ég skráði mig sjálf í keppnina.
Þegar ég ætlaði að biðja mömmu
um að skrá mig líka, þá horfði hún
Nýtt ár, nýir tímar?
Pennagrein
Skagakona keppir í The Biggest Loser Ísland
Keppendur í þáttunum.
skömmustuleg á mig og sagðist
vera búin að því,“ segir Inga Lára
aðspurð að því hvernig það kom til
að hún skráði sig til leiks. Inga Lára
hefur lengi verið í yfirvigt. „Ég
hef alltaf verið stærri og feitari en
flestir aðrir í kringum mig. Þyngd
in hefur samt ekkert verið heftandi
enda gerði ég mér kannski ekki al
veg grein fyrir því hversu stór ég
var orðin undir það síðasta. Ég bara
þyngdist og þyngdist alveg sama
hvað og var orðin 142,8 kg þegar ég
byrjaði í The Biggest Loser,“ seg
ir Inga Lára. Markmið hennar með
þátttökunni var ekki endilega að
sigra. Ekki var heldur markmið að
eltast við verðlaunin enda veit hún
ekki enn hver þau eru. „Markmið
ið hjá mér var að breyta um lífsstíl.
Ekki endilega að vinna en að breyta
um lífsstíl er sigur fyrir mig. Ég hef
ekki enn hugmynd um hvort það
séu veitt verðlaun yfir höfuð.“
Fengu ekki að
tala við neinn
Inga segir lífsstílsbreytinguna vera
erfiða. Enda er það grettistak að
fara út fyrir þægindarammann og
yfir í lífsstílsbreytingu þar sem æft
er fjórum sinnum á dag. Aðspurð
um hvað væri búið að vera erfiðast
í ferlinu fram að þessu svarar hún:
„Mér hefur fundist þetta allt erfitt.
Þátttakan hefur verið rosalega erf
ið andlega. Þegar við vorum uppi á
Ásbrú fannst mér erfiðast að reyna
að halda aftur af hreinskilninni.
Það voru ekki allir sem gátu tekið
henni og maður vildi kannski ekki
vera leiðinlegur.“ Inga Lára hefur
eignast góða vini í keppninni enda
voru keppendur ekki í neinu sam
bandi við umheiminn í þær tíu vik
ur sem þau voru á Heilsuhótelinu.
„Einangrunin var mjög mikil. Við
fengum ekki að tala við neinn. Ekki
nota netið, né síma og ekki einu
sinni lesa blöðin,“ segir hún. „Upp
lifunin af þessu hefur því verið dá
lítið skrýtin en samt skemmtileg.“
Þrír dagar skemma
ekki hina
Nú eru jól og áramót nýafstað
in, með öllum þeim góða mat og
freistingum sem hátíðinni fylgir.
Var ekkert erfitt að standast þær
freistingar? „Já og nei. Ég ákvað
bara að leyfa mér að borða það sem
mig langaði í. Án þess að missa mig
í namminu eða fá mér endalaust á
diskinn. Ég fékk mér bara smá á
diskinn og kannski tvo mola af kon
fekti ásamt smá skeið af frómasin
um. Það er ekki hægt að sleppa jól
unum þótt maður sé í átaki. Þrír
dagar skemma ekki hina 362,“ seg
ir Inga Lára Guðlaugsdóttir, kepp
andi í The Biggest Loser Ísland.
Í kvöld, miðvikudag, verður sér
stök forsýning á fyrsta þætti The
Biggest Loser Ísland í Bíóhöllinni
á Akranesi. Sýningin hefst kl. 20.30
og eru allir velkomnir á meðan hús
rúm leyfir en frítt er inn.
grþ
Inga Lára Guðlaugsdóttir frá Akranesi keppir í The Biggest Loser Ísland.