Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Fjórða valdið
á undanhaldi
Leiðari
Notkun samskiptamiðla eykst með hverjum deginum sem líður. Tækin til
að dreifa efninu verða fullkomnari og rafræn miðlun eykst með fleiri dreifi-
leiðum. Mér liggur við að segja að þessi þróun sé uggvænleg af því við vit-
um ekki hvert hún ber okkur.
Hér áður fyrr, fyrir tíma nútíma samskiptaforrita, voru aðrar leiðir not-
aðar til að dreifa upplýsingum. Útvarp og sjónvarp gegndi veigamiklu hlut-
verki svo ég tali nú ekki um dagblöð, bækur og aðra prentmiðla. Þessi miðl-
un upplýsinga var yfirleitt vönduð þar sem fólk gaf ekki út efni, nema að
vel ígrunduðu máli. Í dag er hins vegar allt annað uppi á teningnum. Það
er hent í „status“ á Facebook án þess að mikið sé hugsað um innihaldið og
enn síður afleiðingar varhugaverðs orðfæris. Menn steingleyma að þeir eru
ritstjórar eigin fjölmiðils og að það sem farið er í loftið verður ekki tekið
til baka. Af þessu leiðir að margt af því sem í boði er á samskiptamiðlum
er innihaldsrýrt í meira lagi og raunar alls ekki mannbætandi. Eðli þessara
samskiptamiðla er að þar eru litlar sem engar hömlur. Allir geta skrifað allt
um hvað og hverja sem er. Jafnvel er hægt að drepa mannorð án þess að
nokkur sé fundinn sekur eða refsað fyrir athæfið.
Segja má að þeir sem nota þessa miðla ótæpilega viti mjög lítið um mjög
margt. Mætti að sama skapi segja að áður en þessir nýju samskiptamiðl-
ar komu til sögunnar vissi fólk mjög mikið um færri atriði en oft þau sem
reyndust gagnlegri þegar upp var staðið. Kannanir sýna að yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar notar samfélagsmiðlana. Eru börn og ungt fólk
þéttasti einstaki hópurinn. Einna helst að elsta fólkið, sem komið var á full-
orðinsár fyrir tíma tölvubyltingarinnar, sé að „missa“ af þessu öllu saman.
Fólkið sem ekki átti þess kost að læra á tölvur og allt sem þeim fylgdi. Þessi
hluti þjóðarinnar nýtir áfram gömlu dreifileiðir upplýsinga; ljósvakamiðl-
ana, dagblöð, bækur, héraðsfréttablöð og fer svo meira að segja ennþá á
mannamót og hittir augliti til auglitis annað fólk!
Ég skal fúslega viðurkenna að sú gríðarlega mikla breyting sem er að
verða í þessum nýju samskiptaleiðum og vali fólks á lesefni veldur mér
áhyggjum. Ég hef talsvert velt þessu fyrir mér að undanförnu og ekki af
tilviljun, heldur praktískum ástæðum. Skessuhorn líkt og Morgunblaðið,
Stöð2 og allir aðrir áskriftarmiðlar eiga allt sitt undir að dreifa efni sem
fólk er tilbúið að borga fyrir. Að öðrum kosti deyja þeir. En allir þessir fjöl-
miðlar eiga undir högg að sækja. Stöð2 fyrir þær sakir að margir velja að ná
sér í afþreyingarefni án þess að greiða fyrir. Sækja á netið efni með ólög-
legu niðurhali. Heilu stjórnmálaflokkarnir eru svo stofnaðir til að vera mál-
svarar þess hóps sem þykir þessi hegðun sjálfsagðasta mál. Hér á ég t.d. við
Pírata. Hins vegar er það svo og verður, að fjölmiðlar sem fólk þarf ekki
að borga fyrir eru lélegri en hinir. Á móti því verður ekki mælt þannig að
nokkurt vit sé í. Við stefnum því að þeim tímapunkti að fjölmiðlar almennt
verði lélegri en þeir eru í dag. Sorglegt, en satt.
Gerðar hafa verið kannanir um hverjir kaupi áskrift að dag- og héraðs-
fréttablöðum og kemur þá í ljós að þetta er sá hópur fólks sem lætur sér
annt um vöxt og viðgang síns búsetusvæðis og samfélags. Þetta er fólk-
ið sem er samfélagslega sinnað og lætur til sín taka í sínu nærsamfélagi.
Finnur þú lesandi góður ekki einmitt þá samsvörun? Ég held það, því ann-
ars værir þú ekki með Skessuhorn í hendi og kominn þetta langt í þess-
um lestri. Ástæðan fyrir því að ég hef áhyggjur af breyttu neyslumynstri
lesenda fjölmiðla er ekki sú að að ég óttist sérstaklega að fjölmiðlar eins
og Skessuhorn, Morgunblaðið eða Stöð2 lognist útaf. Ég er fullkomlega
meðvitaður um að líftími þessara miðla er takmarkaður. Áhyggjur mín-
ar beinast hins vegar að þeim tímapunkti þegar fólk er ekki lengur tilbúið
að greiða fyrir gerð og framsetningu áreiðanlegra upplýsinga og vandaðs
afþreyingarefnis. Fólk hættir jafnvel að vita um margt sem raunverulega
skiptir það máli. Fjórða valdið er því miður á undanhaldi. Fjölmiðlar eru
jú þetta fjórða vald sem gerir samfélög heilbrigðari og lausari við spillingu.
Höfum þetta hugfast.
Magnús Magnússon
Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri í
Stykkishólmi hefur óskað eftir að
láta af störfum 1. mars næstkom-
andi. Hún lagði fram beiðni um
þetta á fundi bæjarstjórnar í lið-
inni viku. Erindi hennar var sam-
þykkt. Með þessu hættir Gyða áður
en ráðningartíma hennar lýkur en
hann var fram til þess að ný bæjar-
stjórn tæki við að afloknum kosn-
ingum sem verða 31. maí næstkom-
andi.
Skessuhorn birti í liðinni viku
viðtal við Gyðu þar sem hún sagðist
ekki ætla að gefa kost á sér til starfa
sem bæjarstjóri á næsta kjörtíma-
bili. Hún sagðist vilja sinna öðrum
störfum sem væru fjölskylduvænni
þar sem vinnutími væri reglu-
legri. Gyða er móðir þriggja ungra
drengja og vill hún eiga meiri tíma
með þeim. Gyða var bæjarstjóraefni
L-lista félagshyggjufólks í Stykkis-
hólmi fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar 2010. Áður en hún gaf kost á
sér til bæjarstjórastarfsins hafði hún
rekið bókhaldsskrifstofu í Stykkis-
hólmi. Á bæjarstjórnarfundinum í
gær var Lárusi Ástmari Hannessyni
forseta bæjarstjórnar falið að ganga
frá starfslokum Gyðu. Gretar D.
Pálsson bæjarfulltrúi minnihluta
Sjálfstæðisflokks lagði til að sam-
ið verði við Þór Örn Jónsson bæj-
arritara um að sinna störfum bæjar-
stjóra til loka kjörtímabilsins. Bæja-
stjórn Stykkishólms samþykkti að
vísa þeirri tillögu til næsta bæjar-
ráðsfundar.
mþh
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra mun næstu tvær vik-
urnar heimsækja alla landshluta og
halda fundi með fulltrúum sveitar-
stjórna til að kynna fyrirhugaðar
breytingar á skipan umdæma sýslu-
manna og lögreglustjóra. Laga-
frumvörp þessa efnis eru nú til um-
fjöllunar á Alþingi. Fyrsti fund-
urinn var haldinn á Hvolsvelli á
mánudaginn en ekki hefur verið til-
kynnt um tímasetningar eða stað
fyrir aðra fundi.
Rétt fyrir jól mælti Hanna Birna
Kristjánsdóttir fyrir tveimur frum-
vörpum sem gera annars veg-
ar ráð fyrir fækkun og stækkun á
umdæmum sýslumanna og hins
vegar lögreglustjóra. Samkvæmt
lögunum verður sýslumannsem-
bættum fækkað úr 24 í níu. Þann-
ig verða fjögur sýslumannsem bætti
á Vesturlandi sameinuð í eitt. Til-
gangurinn með stærri rekstrarein-
ingum sýslumannsembætta er að
auka og efla þjónustu ríkisins í hér-
aði og skapa aukin tækifæri til að
færa ný verkefni til sýslumanna.
Með breytingum á umdæmum
lögreglustjóra á að auka samhæf-
ingu og samstarf innan lögregl-
unnar um land allt, standa vörð um
grunnþjónustu lögreglunnar, efla
stjórnun innan lögreglu og gera
lögreglustjórum kleift að sinna al-
farið lögreglustjórn. Embættum
lögreglustjóra fækkar þannig úr 15
í átta. Gert er ráð fyrir að þessar
breytingar taki gildi um næstu ára-
mót. mþh
Vör, sjávarrannsóknasetur við
Breiðafjörð hefur ráðið Helgu Val-
dísi Guðjónsdóttur í stöðu for-
stöðumanns. Um er að ræða 50%
starf. Helga er rekstrarfræðingur
að mennt, búsett í Snæfellsbæ og
hefur langa starfsreynslu að baki í
rekstrarmálum. Stjórn Varar aug-
lýsti í lok síðasta árs eftir forstöðu-
manni í hálfa stöðu. Samtímis var
auglýst eftir líffræðingi í fulla stöðu
og var gerð krafa um að viðkom-
andi hefði doktorsgráðu eða jafn-
gildi hennar. Frestur til að sækja
um rann út 13. desember síðast-
liðinn. Ekki hefur verið ráðið í þá
stöðu. „Það sótti einfaldlega eng-
inn um stöðu líffræðings. Við erum
nú með málið í ferli hjá ráðning-
arstofu sem leitar að hugsanlegum
einstaklingum sem gætu haft áhuga
á starfinu,“ segir Örvar Már Mar-
teinsson stjórnarformaður Varar í
samtali við Skessuhorn. mþh
Morgunblaðið birti sl. miðvikudag
skoðanakönnun um fylgi flokka á
Akranesi. Samkvæmt niðurstöð-
um hennar er meirihluti Samfylk-
ingar, Framsóknarflokks og Vinstri
grænna í bæjarstjórninni fallinn.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir 8,9 pró-
sentustigum við sig frá kosningun-
um 2010. Samkvæmt könnuninni
fer hann úr 25,2% í 34,1%. Sam-
fylkingin tapar hins vegar 11,4%
fylgi. Flokkurinn fer úr 34,8% árið
2010 í 23,4%. Framsóknarflokkur-
inn dalar einnig. Hann fer úr 23,8%
fylgi kosninganna fyrir fjórum árum
í 16,8% í könnun Morgunblaðsins.
Það yrði 7% tap ef þetta yrðu niður-
stöður kosninga. Einnig dregur úr
stuðningi við VG. Flokkurinn fell-
ur úr 16,3% í 10,2%. Björt fram-
tíð og Píratar sem aldrei hafa boð-
ið fram í bæjarstjórnarkosningum á
Akranesi mælast nú með fylgi. Björt
framtíð myndi samkvæmt könnun-
inni fá 12% og Píratar 3,6%. Þann-
ig fengi Björt framtíð einn bæjar-
fulltrúa. Aðrir flokkar mælast ekki.
Miðað við niðurstöður þessarar
könnunar er núverandi meirihluti
bæjarstjórnar fallinn. Hann fengi
fjóra fulltrúa í bæjarstjórn í stað
þeirra sjö sem sitja á hans vegum í
dag. Könnunin var gerð af Félags-
vísindastofnunar Háskóla Íslands.
Hún var framkvæmd dagana 15.
til 23. janúar. Svarhlutfall í henni
var 62% og fjöldi þeirra sem svör-
uðu var 306. Þess má geta að engir
flokkar eða framboð hafa enn opin-
berað lista sína til komandi bæjar-
stjórnarkosninga sem haldnar verð-
ar 31. maí. mþh
Skoðanakönnun mælir
meirihluta fallinn á Akranesi
Innanríkisráðherra fundar
með sveitarstjórnum
Helga Valdís Guðjónsdóttir. Ljósm. af.
Nýr forstöðumaður Varar –
sjávarrannsóknaseturs
Gyða Steinsdóttir bæjarstjóri Stykkishólms.
Bæjarstjóri Stykkishólms
hættir 1. mars