Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Síða 8

Skessuhorn - 05.02.2014, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Skólarnir og at- vinnulífið GRUNDARFJ: Forsvars- menn í atvinnulífinu í Grund- arfirði eru boðaðir til fundar í Samkomuhúsinu í Grundar- firði þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 16.30. Umræðuefni er Skólastefna í vinnslu – Aðkoma atvinnulífs. Fundinum stýrir Gunnar Kristjánsson verkefnis- stjóri. –mm Veittist að samstarfsfólki LBD: Lögreglan þurfti að handtaka ölóðan mann á veit- ingastað í Hvalfirði um liðna helgi. Maðurinn hafði veist að samstarfsfólki sínu á árshá- tíð sem þar var haldin af fyrir- tæki á höfuðborgarsvæðinu. Var viðkomandi komið heim til sín þegar hann var orðinn viðræðu- hæfur. Engar kærur hafa bor- ist lögreglu vegna þessa. Hefð- bundin þorrablót hafa verið haldin víðs vegar í umdæmi lög- reglunnar í Borgarfirði og Döl- um að undanförnu og allt upp í fjögur um helgi. Hafa þau öll farið vel fram. Þó fótbrotnaði maður á þorrablóti sem haldið var í Þinghamri á laugardaginn. Var hann fluttur með sjúkrabíl undir læknishendur. Loks urðu tvö minniháttar umferðaró- höpp í umdæminu í liðinni viku en þar urðu ekki meiðsli á fólki, að sögn lögreglu. –þá Sótt um lóð fyrir fiskmóttökuhús AKRANES: Á fundi bæjar- ráðs Akraness sl. fimmtudag var fjallað um umsókn HB Grandi um lóð fyrir fiskmóttökuhús neðst á Suðurgötu. Erindið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar nýlega og tók nefndin jákvætt í umsóknina. Bæjarráð samþykkti að fela um- hverfis- og framkvæmdasviði að hefja vinnu við breytingu á skipulaginu við Suðurgötu vegna umsóknar HB Granda um lóðina. –þá Námskeið fyrir hjón og sambýlinga RVK: Föstudaginn 28. febrúar mun Þórhallur Heimisson halda hjóna- og sambúðarnámskeið í safnaðarheimili Háteigskirkju. „Á námskeiðinu er fjallað um margt það sem getur komið upp á í sambúð og hjónabandi og veldur því að sambandið geng- ur ekki sem skyldi. En umfram allt er bent á leiðir til að forð- ast vítahring deilna og átaka. Á námskeiðinu er lögð áhersla á hvernig best er að styrkja og dýfka sambandið og tengslin innan fjölskyldunnar. Þannig hentar námskeiðið öllum, bæði þeim sem eru að kljást við ein- hverja erfiðleika sem hinum, er vilja gera gott samband betra. Enda sækja þessi námskeið pör á öllum aldri. Kvöldið endar á slökunaræfingu sem nýtist vel í hinu daglega lífi og getur orðið til að efla tengsl hjóna enn frek- ar. Í lok námskeiðsin fá öll pör með sér heim sjö vikna heima- vekefni,“ segir í tilkynningu frá Þórhalli. Hann er búsettur í Svíþjóð og verður því aðeins um þetta eina námskeið að ræða að þessu sinni. Nánari upplýs- ingar um námskeiðið, aðferðir og innihald, má fá á napoleon. blog.is. –mm Dyraverðir þurfa að vera hæfir LANDIÐ: Á meðal skilyrða sem dyraverðir á skemmti- stöðum þurfa að uppfylla er að vera að minnsta kosti 20 ára og hafa ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot. Nánar er fjallað um hæfi dyra- varða í reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Umsókn- areyðublað um leyfi til að ger- ast dyravörður er að finna á lögregluvefnum. Þetta vill lög- reglan árétta. Á höfuðborgar- svæðinu voru nýverið heim- sóttir tæplega 40 veitinga- og skemmtistaðir til að kanna hæfi dyravarða. Almennt voru þau mál í lagi en þó kom í ljós á einum skemmtistað að dyraverðir höfðu ekki tilskyl- in réttindi. Var staðnum sam- stundis lokað. –mm Aflatölur fyrir Vesturland 25. - 31. janúar. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 4 bátar. Heildarlöndun: 31.799 kg. Mestur afli: Akraberg SI: 16.939 kg í fjórum löndunum. Arnarstapi 6 bátar. Heildarlöndun: 24.365 kg. Mestur afli: Kvika SH: 14.169 kg í fjórum löndunum. Grundarfjörður 10 bátar. Heildarlöndun: 269.324 kg. Mestur afli: Hringur SH: 61.751 kg í einni löndun. Ólafsvík 18 bátar. Heildarlöndun: 394.541 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH: 47.100 kg í sex lönd- unum. Rif 20 bátar. Heildarlöndun: 556.513 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 69.88 kg í tveimur löndunum. Stykkishólmur 7 bátar. Heildarlöndun: 118.245 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 43.643 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Örvar SH – RIF: 63.357 28. jan. 2. Hringur SH – GRU: 61.751 28. jan. 3. Tjaldur SH – RIF: 58.315 27. jan. 4. Stígandi VE – GRU: 47.098 30. jan. 5. Helgi SH – GRU: 46.479 26. jan. -mþh Norðaustan hvassviðri var í Dölum, líkt og víða annars staðar á landinu, síðastliðinn mánudag. Á vefnum www.budardalur.is sagði að eina ol- íudælan við verslunina Skriðuland í Saurbæ hafi fengið að kenna á vind- hviðunum sem þar gengu yfir. Fauk hún um koll. Þá voru rafmagnstrufl- anir í Saurbæ og á Skarðsströnd en raflína slitnaði í rokinu við Þurra- nes í Saurbæ og olli það rafmagns- leysi á bæjunum Stóra Múla og Efri Múla og einnig á bæjum í Staðar- hólsdal. „Ekki er vitað um frekari afleiðingar veðursins nema hvað auglýsingaskilti gisti- og veitinga- staðarins Dalakots í Búðardal sem stóð á horni Vesturbrautar og Mið- brautar fauk rétt fyrir klukkan eitt í dag og hafnaði á öðru stöndugra skilti. Starfsmenn byggingafyrir- tækisins Burstafells brugðust skjótt við og bundu skiltið niður,“ sagði á vefnum budardalur.is. mm Á fundi stjórnar Byggðasafnsins í Görðum á Akranesi sl. fimmtu- dag var samþykkt að 3,9 milljónum króna verði ráðstafað til að koma í veg fyrir frek- ari skemmdir á Kútt- er Sigurfara. Það verði gert með því að koma heillegum hlutum hans í forvörslu og geymslu uns unnt verður að fjár- magna endurbyggingu kúttersins. Peningarn- ir eru hluti fimm millj- óna króna styrks sem forsætisráðuneytið veitti til varðveislu kútters- ins undir lok síðasta árs. Þá var samþykkt að 1,1 milljón kr. af styrknum verði ráðstafað til að afla frekari styrkja sem myndu nýt- ast til varðveislu og endurbygging- ar á skipinu. Stjórn byggðasafnsins samþykkti að leggja til við Minja- stofnun að styrknum verði ráð- stafað með þessum tvennum hætti. Stjórnin fól einnig forstöðumanni byggðasafnsins að útbúa kostnaðar- og verkáætlun forvörslu og geymslu á heillegum hlutum úr kútter num. Á umræddum fundi voru lögð fram gögn sem tengjast áformum um verðveislu kútters- ins. Auk bréfs forsætis- ráðuneytis í lok síðasta árs þar sem tilkynnt var um styrkveitinguna var greinargerð SSV lögð fram og áætlun Skipa- víkur um endurbygg- ingu frá árinu 2009 auk minnisblaðs þáverandi stjórnarformanns Akra- nesstofu, Þorgeirs Jósefssonar, frá apríl 2009. þá Lilja Rafney Magnúsdóttir, þing- maður Vinstri grænna í Norðvest- urkjördæmi, lagði í vik- unni sem leið fyrirspurn fyrir Kristján Þór Júlíus- son heilbrigðisráðherra um hvað ríkisstjórnin hygðist gera varðandi rek- starvanda dvalar- og hjúkr- unarheimila á Vesturlandi. Fyrirspurn sína byggði Lilja Rafney á upplýsing- um um bága stöðu margra elliheimila í landshlutan- um sem komu fram í úttekt Skessu- horns vikuna áður. Hún spurði ráð- herrann einnig hvort hann teldi að núverandi staða mála gæti haldist mikið lengur. Kristján tók undir að rekstrarvandinn væri vissulega fyr- ir hendi sumsstaðar á Vesturlandi. Það yrði að greina stöðuna betur og endurskoða regluverk. Þó taldi ráðherrann ekki að lausnin fælist í að hækka dvalargjöld al- mennt um 15%. Ráð- herrann benti á að búið væri að bæta hátt í millj- arði króna í málaflokkinn, einkum til að fjölga pláss- um. „Ég legg áherslu á að við verðum að bíða því það stendur ekki til að breyta fjárlögum ársins. Þetta var markað í lok desember á síðasta ári, hver fjárveit- ingin væri sem við hefðum úr að spila,“ svaraði heilbrigðisráðherra að lokum. mþh „Hvalur þorrabjór Steðja er upp- seldur hjá framleiðanda,“ sagði í til- kynningu á Fésbókarsíðu Brugg- hússins Steðja í Borgarfirði um síð- ustu helgi. Þá var rétt vika liðin frá bóndadegi, en síðdegis fyrsta dag í þorra fékkst heimild til að setja bjór- inn í dreifingu. Heilbrigðiseftirlitið hafði þá nokkru áður bannað fram- leiðslu og dreifingu bjórsins á þeim forsendum að Hvalur hf. hefði ekki heimild til að selja hvalamjöl til mat- vælavinnslu. Brugghúsið kærði þá ákvörðun til atvinnuvegaráðuneyt- isins sem úrskurðaði á bóndadaginn að sala Hvalabjórs væri heimil tíma- bundið meðan málið væri skoðað ofan í kjölinn. Mikil sala var síðan í þeim Vínbúðum sem tóku bjórinn til sölu og var öll framleiðslan uppseld viku eftir að hún fór á markað. Auk valinna Vínbúða var bjórinn seldur á nokkrum veitingahúsum og er hugs- anlega hægt að nálgast Hvalabjór þar hafi áhugasamir gripið í tómt í vín- búðunum. mm Peningar settir til varðveislu Kútters Sigurfara Olíudælan við Skriðuland gaf eftir í norðaustan hvassviðri á mánudaginn. Ljósm. Sigurður Sigurbjörnsson. Olíudæla fauk og raflína slitnaði Umtalaðasti þorrabjór allra tíma seldist upp á viku Ráðherra segir að ekki standi til að hækka dvalargjöld

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.