Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Síða 12

Skessuhorn - 05.02.2014, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Viðræður eiga sér nú stað milli ol- íufélagsins Skeljung og erlendra aðila um að þeir kaupi 51% hlut í einni helstu olíubirgðastöð landsins sem er olíustöðin í Hvalfirði. Það er fyrirtækið Atlantic Tank Storage sem er að meirihluta í eigu stærsta olíubirgðastöðvafyrirtækis Svíþjóð- ar. Þetta fyrirtæki hefur undanfarin misseri leigt birgðarými í Hvalfirði af Skeljungi. Íslenska olíufélagið keypti olíustöðina af íslenska rík- inu vorið 2008 fyrir um 470 millj- ónir króna. Í því fólst eignarhald á tönkum, húsakosti, tækjum og olíu- bryggjunni sem lengst af var kennd við NATO. Auk þessa var um að ræða tæplega 20 hektara landrými sem olíustöðin stendur á í Hval- firði. Morgunblaðið greindi frá því í gær að Skeljungur eigi nú í söluvið- ræðum við sænska fyrirtækið. Ný stjórn Skeljungs sem tók við fyrir- tækinu í síðasta mánuði hefur það í hendi sér hvort af sölunni verður eða ekki. Olíustöðin var upphaflega sett á laggirnar af bandaríska hern- um í seinni heimsstyrjöld. Hún þjónaði hlutverki sem birgðastöð fyrir NATO og varnaliðið á Íslandi í áratugi eftir stríð. mþh Stjórnsýslukæra hefur verið lögð fram á hendur sveitarstjórnar Hval- fjarðarsveitar. Tilefnið er að ábú- endum Grafardals hefur verið synj- að um að ljósleiðari verði lagður heim að býlinu þar sem enginn átti þar lögheimili 23. apríl 2013. Skil- yrði sveitarstjórnar fyrir því að hús í sveitarfélaginu fengju ókeypis ljós- leiðara var að þar hefði verið búið með lögheimili þennan dag þegar sveitarstjórnin ákvað að ljósleiðar- inn skyldi lagður. Böðvar Jónsson í Grafardal telur á sér brotið og að jafnræðis hafi ekki verið gætt með því að synja lagningu ljósleiðara heim að húsum í dalnum. Hertu á skilyrðum Forsaga málsins er sú að sveit- arstjórn Hvalfjarðarsveitar sam- þykkti á fundi sínum 23. apríl í fyrra að ljósleiðari skyldi lagður í öll lögheimili sveitarinnar, íbúum að kostnaðarlausu. Fjárhagsáætl- un fyrir árið 2013 gerði ráð fyrir allt að 130 miljónum til verkefnis- ins í fyrra. Nú í ár var áætlað að 150 milljónir yrðu settar í þetta verk. Réttum fimm vikum síðar, á fundi sveitarstjórnar 28. maí, vildi meiri- hlutinn síðan fá samþykkt að fastar yrði kveðið á um skilyrði fyrir lagn- ingu ljósleiðarans. Á þeim fundi samþykkti meirihlutinn að ljósleið- arinn skyldi einvörðungu lagður til íbúðarhúsa með fasta búsetu og lögheimili íbúa þann 23. apríl 2013. Meirihlutinn samþykkti einnig að þeir íbúar sem óskuðu eftir ljósleið- aratengingu íbúðarhúsa án fastrar búsetu og lögheimili eftir 23. apríl skyldu þá greiða raunkostnað við framkvæmd tenginga auk mánað- argjalds. Minnihluti sveitarstjórn- arinnar greiddi atkvæði gegn báð- um þessum tillögum. Böðvar Jónsson eigandi og ábú- andi í Grafardal til margra ára hafði flutt lögheimili sitt þaðan en samt haldið eign sinni á jörðinni, búið þar á sumrin og sinnt húsakosti þar með reglulegum heimsóknum um vetur. Í fyrrasumar flutti hann lögheimili sitt að nýju í Grafardal. Skömmu síðar óskaði hann eftir rökstuðningi frá sveitarstjórn Hval- fjarðarsveitar fyrir því að þrengt hefði verið að fyrstu ákvörðun um lagningu ókeypis ljósleiðara í öll lögheimili í sveitarfélaginu með skilyrði um að búið hefði verið fast með lögheimili á hverjum stað 23. apríl 2013. Síðan hefur geng- ið á með bréfaskiptum milli sveit- arstjóra Hvalfjarðarsveitar og lög- fræðings Böðvars Jónssonar. Telur að jafnræðis hafi ekki verið gætt „Ég hafði haft lögheimili ann- ars staðar í ein fjögur ár. Þegar ég færði það aftur í Grafardal vissi ég ekkert af þessari dagsetningu 23. apríl 2013 en stóð í þeirri trú að til stæði að leggja ljósleiðara í öll hús þar sem fólk væri með lögheimili. Þegar ég svo spurðist fyrir um þetta fékk ég synjun frá sveitarfélaginu en var boðið að ég gæti fengið ljósleið- ara ef ég borgaði fyrir hann úr eig- in vasa. Mér þykir þetta mjög und- arlegt og tel að þetta hafi ekki ver- ið sú ákvörðun sem sveitarstjórnin lagði upp með á fundi sínum þar sem lagning ljósleiðarans var upp- haflega samþykkt 23. apríl í fyrra. Synjunin kemur svo enn undarleg- ar fyrir sjónir í ljósi þess að sveit- arfélagið hefur þegar lagt ljósleið- ara að bæ þar sem enginn er með lögheimili. Það er að Kalastaðakoti. Mér skilst að landeigendur þar hafi sett það sem skilyrði fyrir því að heimila ljósleiðara um land þeirra að tenging yrði lögð heim að bæn- um þó enginn ætti þar lögheimili. Á þetta mun hafa verið fallist. Hér tel ég að ekki sé gætt jafnræðis. Hvað Grafardal varðar þá er það mál nú í höndum lögmanns míns og ég veit að hann hefur sent stjórnsýslukæru til innanríkisráðuneytisins vegna þessa. Fyrir utan þetta þá hef- ur sveitarstjórn Hvalfjarðarsveit- ar ekkert haft samband við okk- ur vegna þessa máls,“ segir Böðvar Jónsson í samtali við Skessuhorn. Mistök gerð við Kalastaðakot „Þarna hafa átt sér stað mistök. Það er ekki þannig að þarna hafi verið lagður ljósleiðari gegn vil- yrði um að hann yrði lagður heim í hús þar sem ekki er lögheimili. Slík vinnubrögð ástundum við ekki hér,“ segir Laufey Jóhanns- dóttir sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn. Guðmundur Daníelsson verk- efnisstjóri við lagningu ljósleiðar- ans staðfestir að ljósleiðari hafi ver- ið lagður að Kalastaðakoti. Hann staðfestir orð sveitarstjóra um að hér hafi orðið mistök. „Málið er að ég er með lista frá verkfræðistofu yfir öll þau um það bil 200 heimili sem eiga að uppfylla skilyrðin fyrir ljósleiðara. Kalastaðakot er á þeim lista. Ég ræddi þar við fulltrúa eig- enda og það var gengið lögform- lega frá sams konar skjölum þar og alls staðar annars staðar. Ljós- leiðari var lagður þar um landið með nákvæmlega sömu skilyrðum og gert var hjá öllum öðrum. Það er einfaldlega rangt að einhverj- ar sérívilnanir hafi verið veittar. Mistökin liggja einfaldlega í því að Kalastaðakot var á listanum yfir þau heimili sem áttu að fá ljósleið- ara og það er búið að leggja hann þangað,“ segir Guðmundur. Kalla eftir upplýsingum Samkvæmt heimildum Skessu- horns mun fregnin um stjórn- sýslukæruna í þessu máli hafa komið minnihluta sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar mjög á óvart. Ekkert hafi verið upplýst um mál- ið í sveitarstjórn né greint frá þeim bréfum sem farið hafa milli sveit- arstjóra og lögfræðings Böðvars Jónssonar vegna málsins. Fulltrúar minnihlutans telja það mjög óeðli- leg vinnubrögð að þau sem kjörn- ir fulltrúar hafi ekki verið upplýst um þetta mál. Minnihlutinn hafi heldur ekki verið upplýstur um að aðilar í Hvalfjarðarsveit sem ekki séu þar með skráð lögheimili hafi fengið eða fái ívilnandi sam- þykki um ókeypis ljósleiðaravæð- ingu á meðan öðrum sé synjað. Af þessum sökum lagði minnihlutinn fram beiðni um aukafund í sveitar- stjórn sem fram átti að fara í gær, síðdegis þriðjudaginn 4. febrú- ar. Þar stóð til að minnihlutinn myndi kalla eftir upplýsingum um þetta mál. Fundurinn stóð enn yfir þegar Skessuhorn fór í prentun. mþh Formenn aðildarfélaga UMSB lýsa yfir furðu sinni á tímasetningu end- urbóta á þreksal Íþróttamiðstöðvar- innar í Borgarnesi. Þetta kom fram í ályktun sem samþykkt var á for- mannafundi sambandsins á Hvann- eyri 28. janúar síðastliðinn og send var til byggðarráðs Borgarbyggðar. Fundurinn fagnar þó engu að síður að verið sé að bæta aðstöðu í þrek- salnum. Vegna framkvæmdanna hefur innilaugin í Borgarnesi ver- ið lokuð frá því í desember. Í álykt- uninni segir: „Innilaugin hefur ver- ið lokuð í u.þ.b 14 vikur á kaldasta tíma ársins og til stendur að loka þreksalnum í a.m.k. 4 vikur yfir hávetur þegar ætla má að aðsókn í hann sé hvað mest. Eðlilegra hefði verið að farið væri í þessar fram- kvæmdir að sumarlagi þegar frekar má nýta útiaðstöðu.“ Taldi fundurinn að framkvæmd- irnar hafi haft slæm áhrif á iðkenda- fjölda í sundi og bendir á að iðk- endum hefur frá því í október fækk- að um rúmlega 50%, mest í yngsta aldurshópnum. „Má klárlega rekja þá fækkun að miklu leyti til skorts á aðstöðu.“ Að sögn Páls S. Brynjarssonar sveitarstjóra Borgarbyggðar fund- uðu verktaki og starfsmenn sveit- arfélagsins um stöðu framkvæmda í íþróttamiðastöðinni í síðustu viku. Þar kom fram að stefnt sé að því að framkvæmdum ljúki um næstu mánaðamót. hlh Titringur vegna ljósleiðaramála í Hvalfjarðarsveit Ljósleiðari lagður í Hvalfjarðarsveit. Innilaugin í Borgarnesi er nú tóm vegna framkvæmdanna. Þessi mynd var tekin fyrir tæpum tveimur vikum þegar verið var að mála botn laugarinnar. Tímasetning fram- kvæmda gagnrýnd Olíustöðin í Hvalfirði er við fjallið Þyril og henni fylgir verulegt land og mikil mannvirki. Sænskir aðilar gætu eignast Olíustöðina í Hvalfirði

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.