Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 54 54 300 SMIÐJUVEGUR 7 KÓPAVOGUR Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu RENNIHURÐIR Á KYNNINGARVERÐI Sparar pláss Öruggt og traust Einfalt í uppsetningu Eigum tilbúnar til afgreiðslu strax vegghengdar agila 50 rennihurðabrautir með hertu 8mm sýruþveignu gleri og ngurgróp á hreint frábæru verði 99.500 kr Íþróttahúsið í Borgarnesi Dominosdeild karla Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 19.15 Skallagrímur - Njarðvík Allir á pallana! S K E S S U H O R N 2 01 4 Nýverið var gefin út á Akranesi bók- in Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna. Bókin er gefin út af vinnuhópi sem stofn- aður var í kringum þetta tiltekna verkefni. Í honum eru Ásthildur Bj. Snorradóttir og Bergrós Ólafs- dóttir talmeinafræðingar, Margrét Þóra Jónsdóttir og Anney Ágústs- dóttir leikskólastjórar auk Sigurð- ar Sigurjónssonar sérkennslustjóra á leikskólanum Akraseli. Bjarni Þór Bjarnason myndlistarmaður mynd- skreytti bókina. „Ég starfaði sem sérkennslustjóri á leikskólanum Akraseli eftir að skól- inn opnaði árið 2008. Þar störfuðu ég og Ásthildur Bj. Snorradóttur tal- meinafræðingur saman og eftir skila- fundi og ráðgjöf varðandi tveggja og hálfs árs gamalt barn með alvarleg málþroskafrávik vaknaði hugmynd sem varð kveikjan að þessu þróun- arverkefni sem nefnist Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna,“ segir Margrét Þóra í samtali við Skessuhorn. Í framhald- inu var stofnaður vinnuhópur sem vann að gerð bókarinnar. Megin- áhersla við gerð hennar er að hjálpa ungum börnum með málþroskafrá- vik með því að byrja nógu snemma með markvissri íhlutun og draga þannig úr þeim afleiðingum sem al- varleg málþroskafrávik geta haft á hegðun, líðan og nám barnsins. „Í bókinni eru gátlistar og svokall- aðar bjargir, sem hægt er að nota til að vinna út frá getu barnsins. Það hefur verið viðloðandi allt of lengi að bíða og sjá til. Ef það er til dæm- is saga um lesblindu í fjölskyldunni eða ef barnið hefur verið með eyrna- bólgur þá á ekki að bíða. Tveggja ára börn eiga að vera farin að tala hell- ing. Það er rosalega erfitt fyrir barn að vera orðið fimm ára og geta ekki talað. Við höfum bara ekki haft tæki til að skoða þetta nægilega vel hing- að til en núna höfum við þetta allt í einni bók. Það er viss forvörn að byrja strax,“ útskýrir Margrét Þóra. Bókin er ætluð þeim sem starfa með börnum á þessum aldri, fyr- ir bæði leikskólakennara og aðra. „Markmiðið er að selja öllum leik- skólum í landinu og fagfólki sem vinnur með þennan aldur bókina. Við vonum að með tilkomu bókar- innar sé hægt að hjálpa fleiri börn- um en áður. Öll börn eiga að hafa sömu tækifæri til þess að fá kennslu og íhlutun við hæfi.“ grþ/ Ljósm. Kolla Ingvars. Miriam Arna Daníelsdóttir lék á þverflautu fyrir gestina í útgáfuteitinu í Kirkjuhvoli. Í bakgrunni má sjá að einnig var sýning á verkum Bjarna Þórs en hann sá um að myndskreyta bókina. Bók um málörvun barna gefin út á Akranesi Höfundar bókarinnar Snemmtæk íhlutun í málörvun tveggja til þriggja ára barna samankomnir í útgáfuteiti sem haldið var síðastliðinn föstudag í Kirkjuhvoli. Frumsýning föstudaginn 7. febrúar kl. 18:30 2. sýning þriðjudaginn 11. febrúar kl. 20:00 3. sýning fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20:00 Leikfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar sýnir söngleikinn Miðapantanir og nánari upplýsingar: Ingibjörg Jóhanna s: 846-7685, Alexandra Rut s: 843-6818 og á leikhopur@menntaborg.is Verð: Fullorðnir: 2.500.- 7-12 ára: 1.500.- 6 ára og yngri: Frítt inn 4. sýning mánudaginn 17. febrúar kl. 20:00 5. sýning fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00 SK ES SU H O R N 2 01 4

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.