Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 17
17MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Sprotafyrirtækið Gullsteinn á
Reykhólum varð í þriðja sæti í Ný-
sköpunarkeppni Vestfjarða og hlaut
þriggja milljóna króna styrk. Úr-
slit í keppninni og styrkveitingar
voru kynntar við hátíðlega athöfn í
Safnahúsinu á Ísafirði sl. föstudag.
Fjórðungssamband Vestfirðinga og
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða,
Atvest, efndu til þessarar frum-
kvöðlakeppni. Gullsteinn hefur
framleitt þaratöflur og harðfisktöfl-
ur auk þess að pakka öðrum vörum.
Frá upphafi hefur verið unnið að
því að bjóða neytendum hreina, líf-
ræna, íslenska vöru. Eigendur fyr-
irtækisins, feðgarnir Jón Árni Sig-
urðsson og Hlynur Stefánsson hafa
síðustu árin unnið að því að koma
upp húsi fyrir framleiðsluna. „Þetta
gerbreytir stöðu okkar á allan hátt.
Núna getum við farið að klára hús-
ið og jafnframt að fá meiri rann-
sóknavinnu hjá sérfræðingum varð-
andi nýja blöndu með fleiri tegund-
um af þörungum en við höfum ver-
ið með,“ segir Jón Árni Sigurðs-
son hjá Gullsteini sf. á Reykhól-
um. „Þetta er mikil og ánægjuleg
viðurkenning og verður einfaldlega
til þess að við getum haldið áfram
okkar starfi,“ er haft eftir Hlyn í til-
efni verðlaunanna á vef Reykhóla.
Ný afurð á markað
Jón Árni og Hlynur segja að í fram-
haldi af nýlegum rannsóknum sé
stefnt að því að koma á markað
vörunni Ice-Kelp, sem er blanda af
þara og þangi. Rannsóknir hafi sýnt
fram á að efni eru í þara og þangi
sem gagnast mannfólki vel gegn
ýmsum kvillum. Gullsteinn stefnir
að því að sérhæfa sig í þurrkun líf-
rænna efna sem flokka má sem hrá-
fæði. „Hráefnið sem er í boði úr
Breiðafirðinum er hágæðavara og
með réttri meðhöndlun má skapa
úr því mikil verðmæti,“ segja þeir
feðgar Jón Árni og Hlynur. Þeir
segja ljóst að áhugi er fyrir Ice-Kelp
erlendis og þess vegna sóknartæki-
færi í útflutningi fullunninnar vöru.
Vinna þurfi að markaðssetningu
fyrirtækisins sem frumkvöðuls í
vinnslu lífrænna sjávarafurða.
Alls úthlutað
14 milljónum
Alls var verðlaunaféð í umræddri
nýsköpunarkeppni 14 milljónir
króna. Fimm milljónir komu í hlut
verkefnisins í fyrsta sætinu, en síð-
an lækkaði styrkurinn um milljón
fyrir hvert sæti. Verkefnin í fjórum
efstu sætunum eru þessi: 1. Víur -
ræktunarfélag fóðurskordýra, sem
stefnir á framleiðslu skordýrapró-
teins. 2. Icelandic Fish Export í
Bolungarvík, sem er að hanna rekj-
anleikalausnir fyrir sjávarútvegs-
fyrirtæki. 3. Gullsteinn á Reykhól-
um, sem er að þróa vörulínu af líf-
rænum þara í formi fæðubótarefn-
is. 4. Bíldalía á Bíldudal, margmiðl-
unarverkefni, sem samanstendur af
hönnun og kynningu á ævintýra-
landinu Bíldalíu á veraldarvefnum.
þá
„Samtök meðlagsgreiðenda vilja
koma því á framfæri við fjölmiðla
að samtökin hvetja einstæða um-
gengnisforeldra til borgaralegrar
óhlíðni við útfyllingu skattaskýrsl-
unnar fyrir árið 2013, með því að
auðkenna sig sem einstæða foreldra
við skráningu upplýsinga. Í skatta-
skýrslunni stendur skattborgurum
til boða að auðkenna sig sem ein-
stæða foreldra, vegna hvers kyns
ívilnana sem einstæðir foreldrar
þiggja frá ríki og sveitafélögum,“
segir í tilkynningu frá samtökun-
um.
„Með þessum aðgerðum mót-
mæla Samtök meðlagsgreiðenda
framgöngu hins opinbera gagn-
vart umgengnisforeldrum og stöðu
þeirra gagnvart velferðarkerfinu.
Með þessu minnum við einnig á
skráningarvandann sem birtist með
þeim hætti að umgengnisforeldrar
eru ekki auðkenndir í bókum hins
opinbera og því ekki rannsóknar-
hæfur þjóðfélagshópur. Að endingu
viljum við með þessum aðgerðum
minna á að einstæðir umgengnis-
foreldrar, eru einstæðir foreldrar,
hvort heldur sem ríkið viðurkenn-
ir það eða ekki.“ mm
Kór Akraneskirkju vinnur um þess-
ar mundir að metnaðarfullu verk-
efni. Æfingar eru hafnar á tónverki
sem ekki hefur verið flutt áður hér á
landi. Það heitir í íslenskri þýðingu
Eilíft ljós, en á enskri tungu Eter-
nal light og er eftir enska tónskáld-
ið Howard Goodall. Verkið er ný-
legt eða frá 2008. „Sálumessur voru
oftast samdar til minningar um hina
látnu en í þessari sálumessu er einn-
ig talað til okkar sem eftir lifum,“
segir Sveinn Arnar Sæmundsson
stjórnandi Kórs Akraneskirkju og
organisti í samtali við Skessuhorn.
Tónverkið sem tekur 40 mínútur í
flutningi verður hluti tónleika sem
fara fram á Akranesi sunnudaginn 2.
mars í lok kirkjuviku og verða síð-
an fluttir í Háteigskirkju í Reykja-
vík 8. mars.
Sveinn Arnar segir að kórinn hafi
sungið hluta verksins á tónleikum í
fyrra en nú verður það flutt í heild
sinni. Eternal light er verðlaunað
verk. Tónskáldið hlaut árið 2009
Britt verðlaunin í Englandi, í klass-
ískum hluta þeirra verðlauna, fyrir
tónverkið. Sveinn Arnar segir höf-
undinn, Howard Goodall, mjög vin-
sælan og þekktan í Bretlandi, ekki
síst í kvikmyndaheiminum. Hann
hafi til að mynda samið tónlistina í
myndirnar um Mr. Bean og upphaf
og endastef samnefndra þátta sem
og tónlist í fleiri breska sjónvarps-
þætti og kvikmyndir. „Maður heyr-
ir þarna áhrif frá kvikmyndatónlist-
inni bakvið og svo blandar hann inn
í verkið þekktum breskum ljóðum.
Ég uppgötvaði þetta tónverk á net-
inu og kórfólkið svaraði því vel þeg-
ar ég kynnti það, enda er tónmál-
ið mjög gott. Þetta er geysilega vin-
sælt verk, grípandi og flott stykki.
Það er flutt í hverjum mánuði um
allan heim,“ segir Sveinn Arnar.
Einsöngvarar í verkinu verða Ein-
ar Clausen og Björg Þórhallsdóttir,
sem syngja með Kór Akraneskirkju,
en kórinn er skipaður 53 félögum.
Tónlistarflutningur verður í hönd-
um þeirra Birgis Þórissonar org-
elleikara, Viðars Guðmundsson-
ar á píanó, Kristínar Sigurjónsdótt-
ir á fiðlu og Sophie Schoonjans sem
annast hörpuleik. þá
Hvetja til borg-
aralegrar óhlíðni
Kór Akraneskirkju flytur
vinsæla nútíma sálumessu
Kór Akraneskirkju ásamt stjórnanda sínum Sveini Arnari Sæmundssyni. Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir.
Gullsteinn hlaut verðlaun í
nýsköpunarkeppni
Jón Árni og Hlynur við afhendingu
verðlaunanna.
Ljósm. Sveinn Ragnarsson.