Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Mörgum finnst gott að fara burtu og
skoða heiminn og koma svo heim aft-
ur. Sigurður Páll Harðarson fædd-
ist og ólst upp á Skaganum en fór að
heiman og var burtu alllengi. Hann
fór þó ekki langt út í heim en hefur
safnað þekkingu og reynslu á þessum
tíma, sem eflaust nýtist honum vel í
starfi í sínum gamla heimabæ. Sig-
urður Páll valdi verkfræðina í háskóla
og í júlí síðastliðnum tók hann við
starfi framkvæmdastjóra umhverfis-
og framkvæmdasviðs hjá Akranes-
kaupstað. Sigurður Páll hefur mikla
reynslu á þessum vettvangi eftir að
hafa um árabil verið í álíka störfum
bæði í Borgarnesi og Hafnarfirði.
Þegar blaðamaður Skessuhorns átti
spjall við Sigurð Pál á dögunum og
spurði hann hvort ekki væri mikil
viðbrigði að koma aftur á Skagann frá
því hann vann hér á verkfræðistofu
sem ungur maður, segir hann að þau
séu í rauninni ekki svo mikil. Yfir-
leitt séu viðfangsefnin mjög svipuð
frá einu sveitarfélagi til annars. Hins
vegar sýnist honum mjög spennandi
tímar framundan á Akranesi.
Úr blokkinni í
Kardimommubæinn
Spurður um uppvöxtinn á Akranesi
segir Sigurður Páll að það hafi ver-
ið frábært að alast þar upp. „Fram-
an af minni bernsku bjó fjölskyldan
í nýju blokkinni við Höfðabraut, þar
sem íbúarnir átti einmitt skemmti-
lega endurfundi síðastliðið haust.
Þá voru bara tvær blokkir í bæn-
um, gamla blokkin innst við Jaðar-
sbrautina og þessi nýja. Í nýju blokk-
inni voru margar ungar fjölskyldur
og mörg börn. Leikfélagana skorti
því ekki og í minningunni vorum við
alltaf að leika okkur í hinum ýmsu
leikjum. Byggja kofa, bera í brennur,
leikir á Langasandi, á íþróttavellinum
og síðan á veturna renndum við okk-
ur af hólnum niður að grjótvörninni
við sandinn. Þegar ég var í fótbolta-
Gunnlaugur Ingimundarson
ólst upp í húsinu Skálatanga í
Innri Akraneshrepp, en það er
hús sem byggt var á árunum fyr-
ir 1940. Á geymslulofti í húsinu
var þegar húsið var selt talsvert
af mannamyndum. Gunnlaug-
ur kveðst ekki þekkja fólkið á
myndunum og óskar eftir upp-
lýsingum ef fólk býr yfir þeim.
Margfalt fleiri myndir frá svip-
uðum tíma séu auk þess í fórum
hans. Síminn hjá Gunnlaugi er
899-7381.
mm
Lýsir eftir
upplýsingum
um myndir
„Ljúft að koma aftur heim á Skagann“
segir Sigurður Páll Harðarson framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
num hlupum við upp og niður þenn-
an hól. Þá var hann kallaður Hill-
ið,“ segir Sigurður Páll. Þegar hann
var níu ára gamall flutti svo fjölskyld-
an í einbýlishús, það fyrsta sem reis
í Grundahverfinu, nánar tiltekið við
Bjarkargrund 22. „Þar sem pabbi er
bakari fannst gárungunum kjörið að
kalla húsið Kardimommubæinn. Það
virtist smellpassa, því svo var byggt
við götuna hús fyrir bæjarfógetann og
ekki leið á löngu þar til slökkviliðs-
stjórinn byggði sér þarna hús líka.
Uppbyggingartími í
Borgarnesi
Sigurður Páll segir að sín skólaganga
hafi í raun byrjað í tímakennslu hjá
Kristínu á Geirsstöðum sem allir
eldri Skagamenn kannist við. „Það
var frábær tími og svo fór ég þessa
venjulegu leið, fyrst í barnaskólann
sem núna er Brekkubæjarskóli og
svo veturinn fyrir fermingu byrjaði
ég í gagnfræðaskólanum. Svo lá leið-
in í fjölbrautaskólann og strax eftir
hann hóf ég mitt háskólanám í verk-
fræði. Um tíma vann ég á VT teikni-
stofunni hér á Akranesi með góðum
mönnum áður en ég hélt til Dan-
merkur í meistaranám í burðarþols-
fræði. Það var í DTU í háskólabæn-
um Lyngby í útjaðri Kaupmanna-
hafnar. Þar var gott að vera. Um það
bil sem ég er að ljúka þar námi rakst
móðir mín á auglýsingu. Þá var ver-
ið að auglýsa starf bæjarverkfræð-
ings í Borgarnesi. Ég sótti um starf-
ið og fékk það. Þetta var árið 1993 og
þeim lá svo mikið á að fá mig til starfa
að ég slapp við að verja lokaverkefn-
ið. Tíminn í Borgarnesi var mjög
skemmtilegur og gefandi. Eitt fyrsta
verkefnið var að vinna að byggingu
sex hæða húss með þjónustuíbúð-
um fyrir aldraðra, sem reist var bak-
við dvalarheimilið. Framundan var
svo landsmót ungmennafélaganna
sem haldið var í Borgarnesi 1997. Þá
var byggður upp frjálsíþróttavöllur-
inn, útisundlaugin og allt sem henni
fylgir. Það var því unnið að mörgum
skemmtilegum verkefnum þennan
tíma sem ég starfaði og við bjuggum í
Borgarnesi. Allt var svo á fleygiferð í
uppbyggingu þegar við fórum þaðan
2007, eftir 14 ár dvöl.“
Gott að ala upp börn í
Borganesi
Sigurður Páll segist hafa eign-
ast marga góða vini í Borgarnesi og
kynnst einnig góðu fólki í sveitunum
í héraðinu. „Borgarnes er ekki síst
mér kær fyrir það að þar ólust börnin
mín upp við mjög góð skilyrði,“ segir
hann. Kona Sigurðar Páls er Áslaug
Árnadóttir og saman eiga þau þrjú
börn, stúlku fædda 1986 og tvo stráka
fædda ´93 og ´94.
Meðan Sigurður Páll starfaði í
Borgarnesi var hann í MBA námi við
Háskóla Íslands. Þegar hann hætti
störfum í Borgarnesi 2007 fór hann
að starfa hjá KPMG á fyrirtækja-
sviði í verðmati á fyrirtækjum og
viðskiptaáætlunum. „Í þeirri vinnu
kom inn á mitt borð aðstoð við fyr-
irtæki sem þá var illa statt, Bygging-
arfélag námsmanna, og starfaði ég
þar sem framkvæmdastjóri um skeið.
Um þetta leyti var auglýst starf sviðs-
stjóra Framkvæmdasviðs hjá Hafn-
arfjarðarbæ sem ég sótti um og fékk.
Ég kunni vel við mig í Hafnarfirði en
hugurinn leitaði samt heim. Þegar
svipað starf var auglýst hérna á Akra-
nesi ákveð ég að sækja um. Það var
ljúft að koma hingað heim aftur og ég
vona að reynsla mín eigi eftir að nýt-
ast mér vel í starfinu,“ segir Sigurð-
ur Páll.
Skipulag í hjarta
bæjarins
Sigurður Páll segir að mörg spenn-
andi verkefni séu framundan á Akra-
nesi. „Það sem stendur uppúr finnst
mér yfirtaka bæjarins á Sementsverk-
smiðjureitnum. Þar bíður stórt skipu-
lagsverkefni. Þetta svæði er hjarta
bæjarins og snýr á móti suðri. Ég
tel að það sé gríðarlega mikill feng-
ur fyrir okkur að fá yfirráð yfir þessu
svæði.“ Sigurður Páll segir að í skipu-
lagsmálunum sé einnig verið að huga
að Breiðinni, jafnframt því sem aðal-
skipulag er í endurskoðun. Þá sé ver-
ið að setja af stað vinnu við heildar-
skipulag á grænum svæðum, til að
bæta ásýnd umhverfis og möguleika
til útivistar. „Við vinnum líka að út-
tekt á umferðaröryggismálum í bæn-
um en samhliða henni er metin við-
haldsþörf á götum og stéttum. Í þeirri
vinnu verður ekki aðeins hugsað til
gangandi og akandi umferðar held-
ur einnig hjólandi sem er að aukast í
bænum. Þeim fer fjölgandi sem nýta
sér hjólið til að komast á milli. Hvað
framkvæmdir varðar er verið að und-
irbúa útboð á gatnagerð á Sólmund-
arhöfða, yfirlagnir á eldri götur, end-
urnýjun gangstétta auk annarra verk-
efna sem eru í farvatninu. Reiknað er
með að vinnu við breytingar á Akra-
torgi ljúki núna um mitt þetta ár.“
Aðspurður hvort hann væri bjartsýnn
á að byggingastarfsemi fari af stað á
fullt aftur og tilbúnar lóðir svo sem
í Skógarhverfi muni rjúka út, sagði
Sigurður Páll: „Ég man varla til þess
að byggingalóðir fari út jafnt og þétt.
Yfirleitt gerist þetta í skorpum og
vonandi kemur ein slík áður en langt
um líður.“ Til gamans má geta þess
að lokum að Sigurður Páll keypti
húsið af foreldrum sínum við Bjark-
argrundina og er því aftur kominn
heim í Kardimommubæinn þar sem
hann unir hag sínum vel. þá
Sigurður Páll er kominn heim á Akranes eftir að hafa verið í burtu alllengi.