Skessuhorn - 05.02.2014, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Hið fræga bandaríska tímarit Natio-
nal Geographic hyggst nota norð-
urljósamynd frá Kristínu Jónsdóttur
ljósmyndara á Hálsum í Skorradal á
forsíðu bókar sem tímaritið gefur út
á næstunni. Bókin heitir Stunning
Photographs og verður þar að finna
fjölbreyttar og áhrifaríkar myndir frá
öllum heimshornum. Þetta er í annað
skipti sem National Geographic birt-
ir myndina frá Kristínu. Áður birt-
ist hún í sérblaði tímaritsins sem gef-
ið var út á síðasta ári og bar titilinn
The best of National Geographic –
Yearbook 2013. Myndin er tekin af
næturhimninum yfir Skorradal og
tók Kristín myndina meðan svokall-
aður sólarstormur átti sér stað vetur-
inn 2012. „Þá voru norðurljós úti um
allt og var þetta eitt fallegasta augna-
blik í náttúrunni sem ég hef upplif-
að,“ segir Kristín sem segir ljóst að
þessi náttúruundur eigi orðið hug og
hjörtu fólks í útlöndum. Sjálf er hún
mikill norðurljósaunnandi og hefur
tekið ótal fallegra mynda af ljósunum
frá því að hún byrjaði að leggja stund
á ljósmyndun árið 2006. Hún sinnir
nú ljósmyndun í fullu starfi og er að
opna vinnustofu á Hvanneyri eins og
fram kemur á öðrum stað í blaðinu.
„Ég er himinlifandi yfir því að
tímaritið vilji fá að birta mynd frá mér
aftur. Þetta er mikill heiður fyrir mig
enda er National Geographic eitt
þekktasta ljósmyndatímarit heims.
Forsvarsmenn þess tóku eftir mynd-
inni á myndasíðu minni á Your Shot
sem er undirsíða heimasíðu National
Geographic. Þar geta allir ljósmynd-
arar stofnað sitt svæði og sett inn
myndir. Mín mynd var valin ásamt
mörgum öðrum myndum af Your
Shot af ritstjórn í forvali. Ritstjórnin
valdi síðan hvaða myndir færu í bók-
ina og var mín mynd ein af þeim.“
Sjá einnig spjall við Kristínu
á bls. 27. hlh
„Mér finnst líklegra en hitt að ég
gefi kost á mér áfram í fyrsta sæti
L-listans. Annars vona ég bara að
margir geri slíkt hið sama,“ seg-
ir Lárus Ástmar Hannesson for-
seti bæjarstjórnar í Stykkishólmi.
Hann segist þó væntanlega aðeins
munu gefa kost á sér til að leiða
listann sem efsti maður hans. „Ég
hef leitt listann í tvö kjörtímabil.
Ef fólk vill skipta þá er það bara
þannig en ég býð að öllum líkind-
um fram krafta mína áfram. Sú
aðferð sem við höfum unnið eftir
er mjög lýðræðisleg og miðast við
að koma til móts við þá réttmætu
kröfu að kosið sé fólk. Allir geta
komið með tilnefningu, allir ver-
ið í framboði og allir kosið. Þessi
aðferð hefur gefist vel og er rétta
aðferðin til að velja fólk til starfa
í litlum samfélögum. Það er ekki
lítill hópur sem vélar með upp-
stillinguna.
Við í L-listanum erum sátt við
okkar verk á liðnu kjörtímabili.
Það er margt sem hefur gengið
prýðilega. Við höfum lagt mikla
áherslu á fjármálin og að lækka
skuldir. Það hefur tekist. Árið 2012
voru skuldir bæjarins komnar nið-
ur fyrir 150% af tekjum. Þegar við
tókum við 2010 var þetta hlutfall
milli 180 og 190%.“ Lárus segir
að fjármálin verði áfram í brenni-
depli á næsta kjörtímabili auk at-
vinnu- og öldrunarmála.
Skólamálin fyrstu skref
til sameiningar?
Lárus nefnir einnig að búast megi
við breytingum í skólamálum. „Ég
er nokkuð viss um að sveitarfélög
á Snæfellsnesi muni í einhverri
mynd sameinast á kjörtímabilinu.
Það er þó ljóst að meirihluti Snæ-
fellsbæjar hefur ekki áhuga á slíku
en spurningin hvort Stykkishólm-
ur, Grundarfjörður, Helgafells-
sveit og Eyja- og Miklaholts-
hreppur láti ekki verða af sam-
einingu. Við höfum samþykkt að
hefja slíkt ferli fyrir okkar leyti
hér í Stykkishólmi,“ segir Lárus
Ástmar Hannesson.
Á bæjarstjórnarfundi 30. janú-
ar síðastliðinn lögðu Lárus og
Helga Guðmundsdóttir fram til-
lögu um að sveitarstjórn Eyja-
og Miklaholtshrepps verði boð-
ið til viðræðna varðandi samstarf
í skólamálum. Slíkt gæti skapað
bæði faglegan og rekstrarlegan
ávinning fyrir bæði sveitarfélög.
Bæjarstjórn Stykkishólms sam-
þykkti þessa tillögu. Aukin sam-
vinna Stykkishólmsbæjar og Eyja-
og Miklaholtshrepps gæti þannig
orðið ákveðið skref í átt að sam-
einingu sveitarfélaganna. mþh
Forstöðumenn Akraneskaupstaðar
fóru í óvissuferð síðastliðið mið-
vikudagskvöld sem var undirbú-
in í samstarfi við Björgunarfélag
Akraness. „Það er björgunarfélag-
ið sem á heiðurinn af því að skipu-
leggja svona frábæra ferð fyrir okk-
ur. Þessi sniðuga hugmynd kom
upp í nóvember í fyrra. Að sam-
eina óvissuferð hér á heimaslóðum
og að björgunarfélagið gæti kynnt
störf sín í leiðinni. Óvissuferð-
in var liður í að styrkja samband
og samstarf ólíkra stofnana Akra-
neskaupstaðar,“ segir Sædís Alexía
Sigurmundsdóttir, verkefnastjóri
hjá Akraneskaupstað.
Mannskapurinn var sóttur að
bæjarskrifstofunum seinni part
dags og skipt í tvo hópa. Farið var
með annan hópinn í bátsferð á bát-
um björgunarfélagsins, þar sem
siglt var út að Suðurflös. Á meðan
var hinn hópurinn látinn síga við
skemmtilegar aðstæður í Akrafjalli.
Margir starfsmenn bæjarins fóru
þar út fyrir þægindarammann og
höfðu gaman af. „Þeir hjá björg-
unarfélaginu sögðu okkur svo frá
starfinu og sýndu okkur kerfin sem
þeir nota. Fjarskiptabúnaður skipt-
ir björgunarsveitina miklu máli og
þeir eru með stjórnstöð uppi í húsi.
Þar eru einstaklingar sem skrá nið-
ur allt sem gerist. Þeir voru að því
allan tímann á meðan við vorum í
hópunum og þegar við komum til
baka fengum við að sjá samskipt-
in þeirra á milli. Þeir sýndu okkur
þetta kerfi sem Landsbjörg vinnur
með og það var mjög áhugavert að
sjá skipulagið hjá þeim,“ segir Sæ-
dís. Eftir að allir voru komnir í hús
var fólki boðið í svokallað kassa-
klifur og voru nokkrir hressir ein-
staklingar sem létu vaða og sýndu
hæfileika sína. Að lokum var boð-
ið upp á súpu og brauð, sem var
vel þegið eftir átökin. Þá hélt Þór
Bínó Friðriksson formaður Björg-
unarfélags Akraness smá tölu og
sagði frá því helsta sem verið er
að gera í öllum deildum félagsins.
Ennfremur þakkaði Regína Ás-
valdsdóttir bæjarstjóri björgunar-
sveitinni fyrir gott samstarf og frá-
bært skipulag á ferðinni og en hún
var einmitt ein þeirra sem próf-
aði klettasig í fyrsta sinn. „Þetta
var mjög áhugavert og skemmti-
legt. Það voru allir mjög ánægðir
með ferðina, bæði hjá okkur og hjá
björgunarfélaginu.“
grþ
Lárus gefur líklega
kost á sér áfram
Lárus Ástmar Hannesson forseti
bæjarstjórnar Stykkishólms og odd-
viti L-listans þar í bæ fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar.
Frá Stykkishólmi.
Lærdómsrík óvissuferð á
vegum björgunarfélagsins
Nokkrir einstaklingar prófuðu kassaklifur sem Björgunarfélagið bauð uppá. Hér
má sjá Guðfinnu Rósantsdóttur og Önnu Leif Elídóttur, sem er að klifra upp á
kassastæðu með góðum tilþrifum.
Ánægðir starfsmenn Akraneskaupstaðar ásamt fulltrúum Björgunarfélags Akraness.
Hér má sjá mynd Kristínar sem prýða mun forsíðu bókarinnar Stunning Photographs hjá National Geographic.
Fær aftur birta mynd hjá National Geographic