Skessuhorn - 05.02.2014, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Ákveðið hefur verið að áfram verði
ein innkeyrsla að hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi.
Lítil breyting verður á núverandi
innkeyrslu þegar á næstunni verður
lagður vegur norðan dvalarheimil-
is niður á Sólmundarhöfða að ný-
byggðu fjölbýlishúsi. Við nánari
skoðun á tillögu að nýrri veglagn-
ingu við Höfða varð niðurstaða
bæjaryfirvalda að ólíklegt væri að
umferðarmagn yrði það mikið að
ein tenging inn á Innnesveg væri
ekki nægjanleg. Þar með hefur ver-
ið hætt við breytingar á deiliskipu-
lagi sem auglýst var í haust um tvær
innkeyrslur að Höfða, en auk þess
sem færa átti núverandi innkeyrslu
örlítið til norðurs var fyrirhug-
uð ný innkeyrsla sem næst suður-
hlið hjúkrunar- og dvalarheimilis-
ins. Þar var áætlað að hún greind-
ist í tvær áttir, á bílastæði dvalar-
heimilisins og inn á Höfðagrund.
Athugasemdir komu við tillöguna
sem tekið var tillit til. Ókostur þótti
að hafa tvær innkeyrslur á Höfða,
enda stutt á milli þeirra. Þá er met-
ið að umferð niður á Sólmundar-
höfða verði ekki nema að hámarki
160-200 bílar á sólarhring og dreif-
ist sú umferð mikið í tíma þannig
að ein innkeyrsla ætti að vera nægj-
anleg. þá
Ístöltmót fór fram á engjunum á
Hvanneyri síðastliðinn sunnudag.
Góð þátttaka var á mótinu en á
fimmta tug knapa mætti til keppni.
Keppt var í fjórum flokkum; flokki
barna 13 ára og yngri, unglinga-
flokki 14-17 ára, flokki minna
keppnisvanra og loks flokki meira
keppnisvanra. Þátttakendur riðu
tvær ferðir fram og tilbaka, hægt
tölt og fegurðartölt. Mörg góð til-
þrif sáust og þykir ljóst að margir
hestar eru komnir í gott form nú í
byrjun árs. Dómari mótsins var Vil-
hjálmur Þorgrímsson en honum til
aðstoðar var Viðar Pálmarsson.
Efstir í flokkum mótsins voru
eftirfarandi:
Börn 13 ára og yngri:
1. Arna Hrönn Ámundadóttir á
Bíld frá Dalsmynni.
2. Aníta Björk Björgvinsdóttir á
Pjakki frá Skjólbrekku.
Unglingar 14-17 ára
1. Þorgeir Ólafsson á Myrru frá
Leirulæk.
2. Guðbjörg Halldórsdóttir á
Glampa frá Svarfhóli.
3. Ísólfur Ólafsson á Goða frá
Leirulæk.
4. Hlynur Jónsson á Safír.
5. Gyða Helgadóttir á Æsu frá Ár-
gerði.
Minna vanir
1. Birgir Andrésson á Gylmi frá
Enni.
2. Belinda Ottósdóttir á Hlyni frá
Einhamri.
3. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir á
Næk frá Miklagarði.
4. Seraina De Marzo á Sleipni frá
Söðulsholti.
5. Edda Þórarinsdóttir á Flóka frá
Giljahlíð.
Meira vanir
1. Benedikt Kristjánsson á Króki
frá Kirkjuskógi.
2. Ámundi Sigurðsson á Hrafni frá
Smáratúni.
3. Björg María Þórsdóttir á Blæ frá
Hesti.
4. Haukur Bjarnason á Listfinni frá
Skáney
5. Ómar Pétursson á Glanna frá
Ytri Hofdölum.
iss
Tíu kennarar úr Fjölbrautaskóla
Snæfellinga fóru nýverið til Lund-
úna að skoða BETT-sýninguna,
sem er stærsta tölvu- og upplýs-
ingatæknisýning í Evrópu. Sýning-
in er árleg og hefur verið vel sótt
af hópum og einstaklingum frá Ís-
landi undanfarin ár. Þátttakendur
eru almennt sammála um að hún
sé ein sú besta til að kynnast nýj-
ungum í tækni og hugbúnaði fyr-
ir skólastarf. „Við höfum verið
að innleiða spjaldtölvur í kennslu
ásamt spegluðum kennsluháttum.
Í FSN er upplýsingatæknin nýtt á
fjölbreyttan hátt og fléttast inn í
flesta þætti skólastarfsins. Við vilj-
um því fylgjast með í upplýsinga-
tækni í skólastarfi og kynnast því
nýjasta í tölvuheiminum sem teng-
ist kennslu og þessi ferð var lið-
ur í því,“ segir Hrafnhildur Hall-
varðsdóttir aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í sam-
tali við Skessuhorn. BETT sýn-
ingin er viðamikil og er ætluð fyrir
alla fagaðila í skólastarfi, hvort sem
það eru kennarar, stjórnendur eða
tölvufólk.
Erum á réttri leið
Á sýningunni er á ári hverju fjöldi
fyrirlestra um allt sem viðkem-
ur skólastarfi en á sjöunda hundr-
að aðila sýna þar það nýjasta sem
er að gerast í upplýsingatæknimál-
um og kennslu í heiminum í dag.
„Við vorum fyrst og fremst glöð að
sjá hvað við erum vel stödd hvað
tækni og þekkingu varðar. Við
skiptum liði og fórum á mismun-
andi fyrirlestra og kynningar. Þeg-
ar við bárum svo saman bækur okk-
ar kom í ljós að við erum greinilega
á réttri leið í þessum málum og get-
um haldið áfram á sömu braut. Það
gladdi okkur að sjá að við erum að
gera góða hluti og við fórum með
það heim í farteskinu að við getum
þróað okkur áfram á sömu braut
með góðum árangri.“
grþ
Minjastofnun Íslands hefur í sam-
ráði við forsætisráðuneytið ákveð-
ið að ráðast í átaksverkefni sem fel-
ur í sér atvinnuskapandi friðunar-
verkefni um land allt. Heildarum-
fang átaksins er 205 milljónir króna
á þessu ári og koma 15 milljónir af
upphæðinni á Vesturland til tveggja
verkefna. Fimm milljónum króna
er varið í að gera við kútter Sig-
urfara sem er geymdur í Byggða-
safninu í Görðum, en styrkveiting-
ar vegna þess verkefnis hefur verið
getið í Skessuhorni, meðal annars
á bls. 8 í blaðinu í dag. Þá verður
tíu milljónum króna varið í flutning
Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyhri
en sem kunnugt er hefur LbhÍ um-
sjón með safninu. Þessar vikurnar
er einmitt verið að búa Halldórsfjós
á Hvanneyri undir flutning Land-
búnaðarsafnsins þangað.
Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
er rekið sem sjálfseignarstofnun.
Hlutverk þess er að gera skil sögu
og þróun íslensks landbúnaðar með
því að varðveita gögn, gripi og aðr-
ar minjar um hana, sem og ann-
ast rannsóknir og fræðslu um við-
fangsefnið. Bjarni Guðmundsson
verkefnisstjóri Landbúnaðarsafns-
ins sagðist í samtali við Skessuhorn
vera þakklátur bæði Minjastofnun
og forsætisráðuneytinu fyrir stuðn-
inginn. Hann væri að vonast til að
þessi styrkur sem og stuðningur
ýmissa aðila innan héraðs og utan
dygði til að færa safnið milli húsa.
Bjarni sagði að safnið hafi verið
rekið um tíðina með aflafé án þess
að stofna til skulda. Þar hefði til að
mynda reynst drjúg ritlaun sem út-
gáfa þriggja bóka hefði gefið um
búnaðar- og verkháttasögu á 20.
öldinni. „Þá hefur Bændaskólinn
og síðan Landbúnaðarháskólinn
verið safninu ómetanlegur bakhjarl
í 74 ára sögu þess,“ sagði Bjarni.
Mörg áhugaverð
verkefni
Minjastofnun Íslands er stjórnsýslu-
stofnun sem annast framkvæmd
minjavörslu í samræmi við ákvæði
laga. Hlutverk stofnunarinnar er
meðal annars að ákveða ráðstöfun
fjár úr fornminjasjóði og húsafrið-
unarsjóði í samráði við húsafriðun-
arnefnd og fornminjanefnd. ,,Það
er sérlega ánægjulegt að geta ráð-
ist í átaksverkefni sem þetta. Það
er von mín að þetta geti orðið til
þess að ýta undir vitundarvakningu
meðal almennings og áhuga á frið-
un og verndun gamalla húsa auk
þess sem það nýtist til atvinnusköp-
unar. Við sjáum mörg og áhugaverð
verkefni á Vesturlandi og ánægju-
legt að geta hrint verkefninu af stað
þar með jafn afgerandi hætti,“ seg-
ir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra. Með lögum um
menningarminjar var komið á nýju
skipulagi í stjórnsýslu menningar-
minja. Hin nýja stofnun sem varð
til 1. janúar 2013 tók við hlutverki
stofnanana Forleifaverndar ríkisins
og Húsafriðunarnefndar sem voru
frá sama tíma lagðar niður. Minja-
stofnun Íslands tók við hlutverki
þessara stofnana og hefur yfirum-
sjón með heildarstefnu um vernd-
un og varðveislu menningarminja
ásamt umsýslu tveggja sjóða; form-
injasjóðs og húsafriðunarsjóðs. þá
Svipmynd af sýningunni sem er stærsta tölvu- og upplýsingatæknisýning í Evrópu.
Ljósm. hh.
Kennarar FSN á sýningu í London
Frá BETT tölvusýningunni sem kennarar úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga fóru á. Á
myndinni eru Hólmfríður Friðjónsdóttir, Freydís Bjarnadóttir og Una Ýr Jörunds-
dóttir. Ljósm. hh.
Ístöltmót á Hvanneyrarengjum
Benedikt Kristjánsson á Króki frá Kirkjuskógi.
Verðlaunahafar í flokki meira vanra.
Ákveðið að fjölga ekki
innkeyrslum við Höfða
Tíu milljónir frá Minjastofnun
í flutning Landbúnaðarsafnsins
Halldórsfjós á Hvanneyri.