Skessuhorn - 05.02.2014, Side 27
27MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Ný vinnustofa skapandi greina
verður bráðlega opnuð í kjall-
ara gamla skólastjórabústaðar-
ins á Hvanneyri í Borgarfirði. Það
var bókasafn Bændaskólans síð-
ast til húsa. Að opnun vinnustof-
unnar standa þær Kristín Jónsdótt-
ir ljósmyndari og Rósa Björk graf-
ískur hönnuður og vöruhönnuður.
Báðar hafa getið sér gott orð í sínu
fagi á undanförnum árum og unn-
ið að mörgum verkefnum fyrir fólk
og fyrirtæki sem finna má víða um
land og heim. Blaðamaður Skessu-
horns heimsótti Kristínu og Rósu
Björk í nýju aðstöðuna á Hvanneyri
sem þær kalla Bókasafnið og ræddi
við þær um vinnustofuna, mögu-
leika hennar og skapandi greinar í
heimabyggð.
Hittust fyrst í desember
Báðar eru heimamenn og ung-
ar að árum, Rósa Björk 32 ára og
Kristín 27 ára. Rósa Björk er upp-
alinn Hvanneyringur sem eft-
ir útskrift úr menntaskóla lærði
grafíska hönnun og vöruhönn-
un í háskóla í borginni Bolz-
ano á Ítalíu. Eftir að námi lauk
sinnti hún störfum sem graf-
ískur hönnuður á Ítalíu og á Ír-
landi bæði á markaðs- og hönn-
unarstofum og sjálfstætt starf-
andi. Síðustu ár hefur hún starf-
að á hönnunarstofu í Reykja-
vík. Í lok síðasta árs flutti Rósa
Björk heim á Hvanneyri ásamt
unnusta sínum og rúmlega árs
gömlu barni þeirra. Kristín er
aftur á móti borinn og barnfædd-
ur Borgnesingur. Hún byrjaði
að fást við ljósmyndun árið 2006
sem endaði með því að hún skráði
sig í ljósmyndanám í Tækniskól-
anum í Reykjavík. Því námi lauk
hún 2011. Myndir hennar hafa
vakið töluverða athygli bæði hér
heima og erlendis og hefur banda-
ríska tímaritið National Geograp-
hic sem dæmi falast eftir mynd frá
henni til birtingar tvisvar. Að auki
hefur Kristín haldið ljósmynda-
sýningar heima í héraði, fjölmargir
panta hjá henni myndatökur vegna
ýmissa tilefna og þá hafa birst
myndir eftir hana í Skessuhorni.
Kristín býr nú að Hálsum í Skorra-
dal ásamt unnusta sínum Tryggva
Sæmundssyni og tveimur sonum
þeirra.
,,Við hittumst fyrst í desem ber,”
segja þær nánast samstundis og
hlægja um leið eftir að blaðamað-
ur spyr hvort hugmyndin að Bóka-
safninu eigi sér langan aðdraganda.
,,Við hittumst í boði hér á Hvann-
eyri í desember og vorum þar
kynntar hvor fyrir annarri,” heldur
Rósa Björk áfram. ,,Ég vissi reynd-
ar hver Kristín var og hafði séð af
og til flottu ljósmyndirnar hennar
á Facebook. Ég var þá nýflutt aft-
ur heim á Hvanneyri. Ég og unn-
usti minn ákváðum eiginlega að
kýla á það að flytja aftur heim eftir
að við eignuðumst son okkar. Við
vorum búin að gæla við að flytja í
nokkurn tíma og ákváðum bara að
stökkva á tækifærið og prófa að búa
annars staðar en í borg. Hvanneyri
er hentugur staður á marga hátt, til
dæmis fyrir barnafólk þar sem leik-
skóli og grunnskóli er á staðnum.
Síðan get ég betur sinnt áhugamál-
um mínum eins og hestamennsk-
unni. Einnig hafði áhrif á ákvörð-
unina að ég vissi af fólki sem er
að vinna á svipuðu sviði og ég og
Kristín sem hafði flutt ,,aftur heim”
og er að gera eitthvað skemmti-
legt á svæðinu,” segir Rósa Björk
og nefnir sem dæmi fólkið í Hinu
blómlega búi í Árdal í Andakíl og
Sigurstein Sigurðsson arkitekt í
Borgarnesi. Sjálf hefur hún einmitt
hannað fyrir Hið blómlega bú.
Það var útlit DVD mynddisks sem
Hið blómlega bú gaf út fyrir síð-
ustu jól. ,,Verkefnin fara alls ekki
frá manni þó maður flytji úr höf-
uðborginni, heldur þvert á móti.
Vinnu minni er hægt að sinna hvar
sem er í heiminum, bara svo lengi
sem maður hefur aðgang að góðri
tölvu með góðri nettengingu og
góðu húsnæði.”
Nálægð við Lbhí
skiptir máli
Kristín kveðst hafa gengið með
þann draum að opna ljósmynda-
stofu og vinnustofu í nokkurn
tíma. Verkefnum hafi fjölgað statt
og stöðugt síðustu misseri og hafi
hún viljað aðskilja vinnu og heim-
ili. ,,Kosturinn er sá að það er mik-
ið um laust atvinnuhúsnæði bæði á
Hvanneyri og í Borgarnesi. Mað-
ur hefur rennt hýru auga til nokk-
urra húsa, sérstaklega á Hvanneyri.
Því var það nokkuð skemmtilegt að
kynnast Rósu Björk í desember sem
var í sömu pælingum. Við ákváðum
því að snúa bökum saman og sam-
einast í leit að húsnæði fyrir okk-
ur báðar. Fögin okkar eru tengd á
ýmsan hátt og við sáum að við gæt-
um haft hag af því að vera undir
einu þaki og unnið saman að ein-
hverjum verkefnum. Síðan er líka
gaman að hafa einhvern félagsskap
í vinnunni,” segir Kristín.
,,Báðar vorum við sammála um
að draumahúsnæðið væri efri hæð-
in í Halldórsfjósi sem nú er verið
að gera upp. Þar er frábært útsýni
og hentugt rými fyrir það sem við
erum að gera. Eftir að við höfðum
ráðfært okkur við Bjarna Guð-
mundsson í Landbúnaðarsafn-
inu og Ágúst Sigurðsson rekt-
or Landbúnaðarháskóla Íslands
þá varð úr að við fengum bóka-
safnið til afnota í nokkra mánuði.
Við fengum lyklana fyrir nokkr-
um dögum síðan og erum nú
langt komnar með að innrétta
staðinn.” Við þetta bætir Rósa
Björk að þær sjái jafnvel fyrir sér
að fólk í tengdri starfsemi komi
í Bókasafnið með tímanum.
,,Hér er allavega nægt pláss fyrir
fleiri. Gott er að vita af Landbún-
aðarháskólanum hér á Hvanneyri
og vonumst við til að skólinn haldi
áfram að vera hér starfandi. Það
skiptir máli að skólinn með öllu
sínu starfsfólki og nemendum starfi
hér áfram enda mikil þekking sem
þar býr. Margir nemendur gætu til
dæmis spreytt sig hérna með okkur
og komið í framkvæmd einhverjum
skemmtilegum hugmyndum.”
Fjölbreyttar hugmyndir
Báðar telja þær stöllur að fjölmörg
tækifæri leynist í Borgarfirði og á
Vesturlandi öllu fyrir fólk í skap-
andi greinum og kvíða þær ekki
verkefnastöðu í framtíðinni. ,,Það
er allavega meira en nóg að gera
hjá mér. Eitt af markmiðum mín-
um með því að flytja á Hvanneyri
var einmitt að reyna að fókusa á
önnur verkefni, eins og að sinna
vöruhönnun meira. Ég hef ekki
sinnt henni nægjanlega mikið upp
á síðkastið og hlakka því til að geta
sinnt henni í Bókasafninu á næst-
unni. Síðan horfir maður til þess
að geta veitt fyrirtækjum á svæðinu
ýmsa hönnunarþjónustu, til dæmis
bændum og öðrum heimavinnslu-
aðilum sem eru að framleiða ým-
islegt áhugavert og hafa hug á að
markaðssetja vörur. Hér mætti
nefna hópinn á bakvið Ljómalind,”
segir Rósa Björk.
Ætlar sjálf að aka
og leiðbeina
,,Ég ætla allavega að panta Rósu
Björk fyrst til að hanna aðeins fyr-
ir mig,” bætir Kristín við bros-
andi. ,,Ég hef nú þegar verið að
taka myndir fyrir fyrirtæki, ein-
staklinga og hópa á svæðinu. Ýmis
verkefni eru síðan í pípunum hjá
mér og verður því margt að gera á
næstunni. Nýjungar verða til dæm-
is prófaðar. Fljótlega hyggst ég
byrja að bjóða upp á sérstakar ljós-
myndaferðir fyrir ferðamenn. Sjálf
er ég með meirapróf og get því ekið
með hópa í bíl sem við Tryggvi eig-
um. Markmiðið er að keyra með
fólk um Borgarfjörðinn á útsýnis-
staði þar sem hægt er að taka flott-
ar myndir af borgfirskri náttúru.
Um leið veiti ég fólki ráðgjöf í ljós-
myndun, hvernig best sé að beita
sér, stilla vélina o.s.fv. Ég hlakka til
að spreyta mig á þessu.”
Opna innan skamms
Báðar tilheyra þær nýstofnuðu Fé-
lagi ungs fólks í skapandi grein-
um á Vesturlandi. Rósa Björk er
í stjórn félagsins og segir hún að
framundan séu viðburðir þar sem
félagið verði kynnt nánar. ,,Skap-
andi greinar eiga sér marga sókn-
armöguleika, ekki síst hér á Vest-
urlandi. Markmiðið með félaginu
er að gera þessar greinar og fólk-
ið sem þar starfar meira áberandi
og um leið efla tengsl þeirra sem
starfa í skapandi greinum í lands-
hlutanum. Einnig tilheyrir félaginu
fólk sem er frá Vesturlandi en starf-
ar utan landshlutans. Þetta er mik-
ið til fólk sem hefur jafnvel hug á
að flytja aftur heim. Þetta er frjór
og fjölbreyttur hópur sem vonandi
á eftir að láta að sér kveða á næst-
unni,” segir Rósa Björk.
Bókasafnið hyggjast þær opna
innan skamms og verður opnun
þess kynnt sérstaklega þegar að því
kemur. ,,Það verður gaman að fá að
vinna að verkefnum hér á heima-
velli. Við horfum björtum augum
til framtíðarinnar og sjáum mörg
tækifæri í kortunum. Við hlökkum
því til næstu skrefa,” segja þær Rósa
Björk og Kristín glaðar í bragði að
lokum. hlh
Bókasafnið verður til húsa í gamla skólastjórahúsinu á Hvanneyri. Fremst er
minnismerkið um Gunnar Bjarnason eftir Bjarna Þór Bjarnason, sem afhjúpað var
sumarið 2012.
„Við sjáum mörg tækifæri í kortunum“
-segja þær Kristín Jónsdóttir og Rósa Björk sem senn opna vinnustofu skapandi greina á Hvanneyri
Kristín Jónsdóttir og Rósa Björk fyrir framan gamla skólastjórabústaðinn á Hvanneyri. Vinnustofa þeirra verður í kjallara
hússins þar sem bókasafn Bændaskólans var áður.
Kápa DVD mynddisks Hins blómlega
bús í Árdal sem Rósa Björk hannaði.
Diskurinn var gefinn út fyrir síðustu
jól.
Eitt helsta sérsvið Kristínar er landslagsmyndataka, sérstaklega myndir af
borgfirsku landslagi. Þessa mynd af kvöldkyrrð við Hvítá í Borgarfirði tók Kristín
árið 2012. Myndin prýddi forsíðu aðventublaðs Skessuhorns sama ár.