Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2014, Page 27

Skessuhorn - 05.02.2014, Page 27
27MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Ný vinnustofa skapandi greina verður bráðlega opnuð í kjall- ara gamla skólastjórabústaðar- ins á Hvanneyri í Borgarfirði. Það var bókasafn Bændaskólans síð- ast til húsa. Að opnun vinnustof- unnar standa þær Kristín Jónsdótt- ir ljósmyndari og Rósa Björk graf- ískur hönnuður og vöruhönnuður. Báðar hafa getið sér gott orð í sínu fagi á undanförnum árum og unn- ið að mörgum verkefnum fyrir fólk og fyrirtæki sem finna má víða um land og heim. Blaðamaður Skessu- horns heimsótti Kristínu og Rósu Björk í nýju aðstöðuna á Hvanneyri sem þær kalla Bókasafnið og ræddi við þær um vinnustofuna, mögu- leika hennar og skapandi greinar í heimabyggð. Hittust fyrst í desember Báðar eru heimamenn og ung- ar að árum, Rósa Björk 32 ára og Kristín 27 ára. Rósa Björk er upp- alinn Hvanneyringur sem eft- ir útskrift úr menntaskóla lærði grafíska hönnun og vöruhönn- un í háskóla í borginni Bolz- ano á Ítalíu. Eftir að námi lauk sinnti hún störfum sem graf- ískur hönnuður á Ítalíu og á Ír- landi bæði á markaðs- og hönn- unarstofum og sjálfstætt starf- andi. Síðustu ár hefur hún starf- að á hönnunarstofu í Reykja- vík. Í lok síðasta árs flutti Rósa Björk heim á Hvanneyri ásamt unnusta sínum og rúmlega árs gömlu barni þeirra. Kristín er aftur á móti borinn og barnfædd- ur Borgnesingur. Hún byrjaði að fást við ljósmyndun árið 2006 sem endaði með því að hún skráði sig í ljósmyndanám í Tækniskól- anum í Reykjavík. Því námi lauk hún 2011. Myndir hennar hafa vakið töluverða athygli bæði hér heima og erlendis og hefur banda- ríska tímaritið National Geograp- hic sem dæmi falast eftir mynd frá henni til birtingar tvisvar. Að auki hefur Kristín haldið ljósmynda- sýningar heima í héraði, fjölmargir panta hjá henni myndatökur vegna ýmissa tilefna og þá hafa birst myndir eftir hana í Skessuhorni. Kristín býr nú að Hálsum í Skorra- dal ásamt unnusta sínum Tryggva Sæmundssyni og tveimur sonum þeirra. ,,Við hittumst fyrst í desem ber,” segja þær nánast samstundis og hlægja um leið eftir að blaðamað- ur spyr hvort hugmyndin að Bóka- safninu eigi sér langan aðdraganda. ,,Við hittumst í boði hér á Hvann- eyri í desember og vorum þar kynntar hvor fyrir annarri,” heldur Rósa Björk áfram. ,,Ég vissi reynd- ar hver Kristín var og hafði séð af og til flottu ljósmyndirnar hennar á Facebook. Ég var þá nýflutt aft- ur heim á Hvanneyri. Ég og unn- usti minn ákváðum eiginlega að kýla á það að flytja aftur heim eftir að við eignuðumst son okkar. Við vorum búin að gæla við að flytja í nokkurn tíma og ákváðum bara að stökkva á tækifærið og prófa að búa annars staðar en í borg. Hvanneyri er hentugur staður á marga hátt, til dæmis fyrir barnafólk þar sem leik- skóli og grunnskóli er á staðnum. Síðan get ég betur sinnt áhugamál- um mínum eins og hestamennsk- unni. Einnig hafði áhrif á ákvörð- unina að ég vissi af fólki sem er að vinna á svipuðu sviði og ég og Kristín sem hafði flutt ,,aftur heim” og er að gera eitthvað skemmti- legt á svæðinu,” segir Rósa Björk og nefnir sem dæmi fólkið í Hinu blómlega búi í Árdal í Andakíl og Sigurstein Sigurðsson arkitekt í Borgarnesi. Sjálf hefur hún einmitt hannað fyrir Hið blómlega bú. Það var útlit DVD mynddisks sem Hið blómlega bú gaf út fyrir síð- ustu jól. ,,Verkefnin fara alls ekki frá manni þó maður flytji úr höf- uðborginni, heldur þvert á móti. Vinnu minni er hægt að sinna hvar sem er í heiminum, bara svo lengi sem maður hefur aðgang að góðri tölvu með góðri nettengingu og góðu húsnæði.” Nálægð við Lbhí skiptir máli Kristín kveðst hafa gengið með þann draum að opna ljósmynda- stofu og vinnustofu í nokkurn tíma. Verkefnum hafi fjölgað statt og stöðugt síðustu misseri og hafi hún viljað aðskilja vinnu og heim- ili. ,,Kosturinn er sá að það er mik- ið um laust atvinnuhúsnæði bæði á Hvanneyri og í Borgarnesi. Mað- ur hefur rennt hýru auga til nokk- urra húsa, sérstaklega á Hvanneyri. Því var það nokkuð skemmtilegt að kynnast Rósu Björk í desember sem var í sömu pælingum. Við ákváðum því að snúa bökum saman og sam- einast í leit að húsnæði fyrir okk- ur báðar. Fögin okkar eru tengd á ýmsan hátt og við sáum að við gæt- um haft hag af því að vera undir einu þaki og unnið saman að ein- hverjum verkefnum. Síðan er líka gaman að hafa einhvern félagsskap í vinnunni,” segir Kristín. ,,Báðar vorum við sammála um að draumahúsnæðið væri efri hæð- in í Halldórsfjósi sem nú er verið að gera upp. Þar er frábært útsýni og hentugt rými fyrir það sem við erum að gera. Eftir að við höfðum ráðfært okkur við Bjarna Guð- mundsson í Landbúnaðarsafn- inu og Ágúst Sigurðsson rekt- or Landbúnaðarháskóla Íslands þá varð úr að við fengum bóka- safnið til afnota í nokkra mánuði. Við fengum lyklana fyrir nokkr- um dögum síðan og erum nú langt komnar með að innrétta staðinn.” Við þetta bætir Rósa Björk að þær sjái jafnvel fyrir sér að fólk í tengdri starfsemi komi í Bókasafnið með tímanum. ,,Hér er allavega nægt pláss fyrir fleiri. Gott er að vita af Landbún- aðarháskólanum hér á Hvanneyri og vonumst við til að skólinn haldi áfram að vera hér starfandi. Það skiptir máli að skólinn með öllu sínu starfsfólki og nemendum starfi hér áfram enda mikil þekking sem þar býr. Margir nemendur gætu til dæmis spreytt sig hérna með okkur og komið í framkvæmd einhverjum skemmtilegum hugmyndum.” Fjölbreyttar hugmyndir Báðar telja þær stöllur að fjölmörg tækifæri leynist í Borgarfirði og á Vesturlandi öllu fyrir fólk í skap- andi greinum og kvíða þær ekki verkefnastöðu í framtíðinni. ,,Það er allavega meira en nóg að gera hjá mér. Eitt af markmiðum mín- um með því að flytja á Hvanneyri var einmitt að reyna að fókusa á önnur verkefni, eins og að sinna vöruhönnun meira. Ég hef ekki sinnt henni nægjanlega mikið upp á síðkastið og hlakka því til að geta sinnt henni í Bókasafninu á næst- unni. Síðan horfir maður til þess að geta veitt fyrirtækjum á svæðinu ýmsa hönnunarþjónustu, til dæmis bændum og öðrum heimavinnslu- aðilum sem eru að framleiða ým- islegt áhugavert og hafa hug á að markaðssetja vörur. Hér mætti nefna hópinn á bakvið Ljómalind,” segir Rósa Björk. Ætlar sjálf að aka og leiðbeina ,,Ég ætla allavega að panta Rósu Björk fyrst til að hanna aðeins fyr- ir mig,” bætir Kristín við bros- andi. ,,Ég hef nú þegar verið að taka myndir fyrir fyrirtæki, ein- staklinga og hópa á svæðinu. Ýmis verkefni eru síðan í pípunum hjá mér og verður því margt að gera á næstunni. Nýjungar verða til dæm- is prófaðar. Fljótlega hyggst ég byrja að bjóða upp á sérstakar ljós- myndaferðir fyrir ferðamenn. Sjálf er ég með meirapróf og get því ekið með hópa í bíl sem við Tryggvi eig- um. Markmiðið er að keyra með fólk um Borgarfjörðinn á útsýnis- staði þar sem hægt er að taka flott- ar myndir af borgfirskri náttúru. Um leið veiti ég fólki ráðgjöf í ljós- myndun, hvernig best sé að beita sér, stilla vélina o.s.fv. Ég hlakka til að spreyta mig á þessu.” Opna innan skamms Báðar tilheyra þær nýstofnuðu Fé- lagi ungs fólks í skapandi grein- um á Vesturlandi. Rósa Björk er í stjórn félagsins og segir hún að framundan séu viðburðir þar sem félagið verði kynnt nánar. ,,Skap- andi greinar eiga sér marga sókn- armöguleika, ekki síst hér á Vest- urlandi. Markmiðið með félaginu er að gera þessar greinar og fólk- ið sem þar starfar meira áberandi og um leið efla tengsl þeirra sem starfa í skapandi greinum í lands- hlutanum. Einnig tilheyrir félaginu fólk sem er frá Vesturlandi en starf- ar utan landshlutans. Þetta er mik- ið til fólk sem hefur jafnvel hug á að flytja aftur heim. Þetta er frjór og fjölbreyttur hópur sem vonandi á eftir að láta að sér kveða á næst- unni,” segir Rósa Björk. Bókasafnið hyggjast þær opna innan skamms og verður opnun þess kynnt sérstaklega þegar að því kemur. ,,Það verður gaman að fá að vinna að verkefnum hér á heima- velli. Við horfum björtum augum til framtíðarinnar og sjáum mörg tækifæri í kortunum. Við hlökkum því til næstu skrefa,” segja þær Rósa Björk og Kristín glaðar í bragði að lokum. hlh Bókasafnið verður til húsa í gamla skólastjórahúsinu á Hvanneyri. Fremst er minnismerkið um Gunnar Bjarnason eftir Bjarna Þór Bjarnason, sem afhjúpað var sumarið 2012. „Við sjáum mörg tækifæri í kortunum“ -segja þær Kristín Jónsdóttir og Rósa Björk sem senn opna vinnustofu skapandi greina á Hvanneyri Kristín Jónsdóttir og Rósa Björk fyrir framan gamla skólastjórabústaðinn á Hvanneyri. Vinnustofa þeirra verður í kjallara hússins þar sem bókasafn Bændaskólans var áður. Kápa DVD mynddisks Hins blómlega bús í Árdal sem Rósa Björk hannaði. Diskurinn var gefinn út fyrir síðustu jól. Eitt helsta sérsvið Kristínar er landslagsmyndataka, sérstaklega myndir af borgfirsku landslagi. Þessa mynd af kvöldkyrrð við Hvítá í Borgarfirði tók Kristín árið 2012. Myndin prýddi forsíðu aðventublaðs Skessuhorns sama ár.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.