Skessuhorn - 05.02.2014, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Ástþór Vilmar Jóhannsson
Það er bara heiðarleikinn.
Hafþór Daði Halldórsson
Jákvæðni.
Ágúst Heiðar Ólafsson
Að hafa trú á sjálfum sér.
Ásthildur Einarsdóttir
Heiðarleiki, svona í stuttu máli.
Ari Grétar Björnsson
Heiðarleiki.
(Spurt á Akranesi)
Klaus Hilbert sem þjálfaði Akra-
nesliðið keppnistímabilið 1979 er
látinn eftir stutt en snörp veikindi,
rétt nýlega orðinn 70 ára. Klaus
kom á Akranes í byrjun árs 1979
og tók við Akraneslið-
inu í framhaldi af mögn-
uðum sigurárum 1974 –
1978, þá undir stjórn Ge-
orge Kirby. Þrátt fyrir
breytingar á leikmanna-
hópnum byggði Klaus
upp gott lið og þó ekki
hafi unnist titlar þetta ár
var árangurinn góður. ÍA
mönnum finnst 1979 eft-
irminnilegt ár fyrir margra hluta
sakir. Fyrst má nefna þátttöku í al-
þjóðlegu móti í Indónesíu þar sem
liðið lék til úrslita gegn landsliði
Burma og tapaði eftir vítaspyrnu-
keppni. Þá lék liðið tvo leiki gegn
hollenska stórliðinu Feyenoord
sem kom til Íslands í æfingaferð,
en Pétur Pétursson hafði þá ný-
lega gengið til liðs við það. Í þriðja
lagi var leikið gegn spænska stór-
liðinu Barcelona í Evrópukeppn-
inni þetta ár. Liðið endaði síðan í
2 sæti deildarkeppninnar og komst
í 4.liða úrslit bikar-
keppninnar.
Í frétt á heimasíðu
ÍA segir að Klaus Hil-
bert hafi þjálfað lið í
neðri deildum þýsku
knattspyrnunnar frá
1975, en lengst af var
hann framkvæmda-
stjóri þýska úrvals-
deildarliðsins Boch-
um. Hans er minnst sem góðs og
glaðlegs félaga. Hann var góður
þjálfari, metnaðarfullur og hafði
góðan aga á sínum leikmannahóp.
Hann kom nokkrum sinnum til Ís-
lands hin síðari ár og hafði á orði
að honum hafi fundist tími sinn
á Akranesi hafa verið með sínum
bestu árum. þá
Haraldur Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Knattspyrnufélags ÍA, segir
að samanburður á verðskrám knatt-
spyrnufélaga vegna æfingagjalda,
sem viðhafður er í nýbirtri könn-
un ASÍ, gefi kolranga mynd af því
hvað foreldrar á Akranesi þurfi að
greiða vegna iðkunar barna sinna.
Af æfingagjöldum allra yngri flokka
hjá ÍA sé veittur 20 þúsund króna
afsláttur frá verðskrá taki foreldrar
þátt í framkvæmd Norðurálsmóts-
ins í knattspyrnu sem er aðal fjár-
öflun félagsins. Um 95% foreldra
nýti sér það og því eru einungis
5% foreldar að borga æfingagjöld
samkvæmt verðskrá. Haraldur seg-
ir að fyrirkomulaginu með þetta af-
sláttarkerfi hafi verið komið á fyrir
þremur árum þegar erfitt var orð-
ið að manna vaktir vegna Norður-
álsmótsins. Þá er í verðkönnun ASÍ
ekki tekið tillit til 12 þúsund króna
lækkunar æfingagjalda taki foreldr-
ar barna að sér að selja salernis-
pappír þrisvar á ári. Ekki er held-
ur tekið tillit til tómstundaframlags
Akraneskaupstaðar sem er 25.000
krónur á ári. Könnun ASÍ er því í
besta falli röng.
Í gær var birt niðurstaða könn-
unar á æfingagjöldum 16 knatt-
spyrnufélaga sem verðlagseftir-
lit ASÍ tók saman og birt var í ein-
hverjum fjölmiðlum. Skoðuð var
gjaldskrá hjá 4. og 6. flokki íþrótta-
félaganna. Til að verðlagseftirlitið
gæti borið gjaldskrá félaganna sam-
an var fundið út mánaðargjald fyr-
ir vorönn, þar sem félögin hafa ekki
samræmda uppsetningu á gjaldskrá
fyrir eitt ár í senn, sum eru með ár-
gjald, önnur annargjöld og jafn-
vel er búið að setja sölu á varningi
eða vinnu við mót inn í gjaldskrána.
Verðlagseftirlitið bar saman gjald-
skrá fyrir 4. flokk, eða 12 og 13 ára
börn. Samkvæmt samanburðinum
taldi ASÍ dýrast að æfa knattspyrnu
hjá ÍA en þar kostar mánuðurinn
7.333 kr. eða 36.667 kr. fyrir fimm
mánuði á vorönn. Ódýrast er að æfa
hjá KA en þar kostar mánuðurinn
4.667 kr. eða 23.333 kr. vorönnin.
Verðmunurinn er 57% eða 13.333
kr. Verðlagseftirlitið bar einnig
saman gjaldskrá fyrir 6. flokk eða
8 og 9 ára börn. Dýrast er að æfa
hjá ÍA en þar kostar mánuðurinn
6.667 kr. eða 33.333 kr. fyrir fimm
mánuði á vorönn. Ódýrast er að æfa
hjá KA en þar kostar mánuðurinn
3.778 kr. eða 18.889 kr. vorönnin.
Verðmunurinn er 76% eða 14.444
kr. Í skýringu með könnuninni seg-
ir verðlagseftirlit ASÍ taki ekki til-
lit til fjáraflana sem íþróttafélögin
standi fyrir og/eða styrkja frá sveit-
arfélögunum, hvorki æfingagall-
ar, né keppnisgjöld séu með í gjald-
inu sem borið er saman. Þá hefur
nú komið í ljós að ASÍ tók held-
ur ekki tillit til vinnuframlags for-
eldra barna í ÍA, líkt og fram kemur
í upphafi fréttarinnar.
þá
Karlalið Snæfells átti sinn besta leik
í talsverðan tíma í Dominosdeild-
inni þegar það tók á móti Hauk-
um í Hólminum á fimmtudaginn.
Karlarnir áttu ekki í neinum telj-
andi vandræðum með Hafnfirð-
ingana og unnu sannfærandi 96:82
sigur. Það var eins gott fyrir Hólm-
arana að landa sigri í þessum leik
því önnur lið eru farin að sauma að
þeim í 8. sæti deildarinnar, svo sem
ÍR. Snæfellingar voru strax komn-
ir með góða stöðu eftir fyrsta leik-
hluta, ellefu stiga forskot 29:18.
Hólmarar bættu svo heldur við
áður en blásið var til hálfleiks en þá
var staðan 56:40.
Heimamenn juku enn við for-
ustuna og áður en lokakaflinn
hófst var munurinn orðinn 20 stig,
79:59. Gestirnir náðu síðan að-
eins að klóra í bakkann í lokafjórð-
ungnum en úrslit leiksins þá í raun
löngu ráðin. Hjá Snæfelli var Trav-
is Cohn III atkvæðamestur með
27 stig, 4 fráköst, 7 stoðsendingar
og 5 stolna bolta. Sigurður Á Þor-
valdsson skoraði 25 stig, Jón Ólaf-
ur Jónsson 11, tók 10 fráköst og átti
6 stoðsendingar, Finnur Atli Magn-
ússon 10 stig og 9 fráköst, Stefán K.
Torfason 8 stig, Sveinn Arnar Dav-
íðsson 6, Kristján Pétur Andrés-
son 5 og Þorbergur Sæþórsson 4.
Hjá Haukum skoraði Haukur Ósk-
arsson mest, 18 stig. Í næstu um-
ferð fer Snæfell til Grindavíkur nk.
föstudagskvöld. þá
Snæfellskonur juku enn forskot
sitt á toppi Dominosdeildarinn-
ar í körfubolta þegar heil umferð
fór fram á fimmtudagskvöldið síð-
asta. Haukar sem eru í öðru sætinu
voru þá í heimsókn í Hólminum og
töpuðu 64:79. Á sama tíma töpuðu
Keflavíkurstúlkur fyrir KR í Vestur-
bænum og eru þær og Haukastúlk-
ur nú komnar átta stigum á eftir
Snæfelli sem er með 34 stig. Leik-
urinn var hnífjafn til að byrja með
og Haukar voru einu stigi yfir eftir
fyrsta leikhluta 16:15. Snæfellskon-
um tókst síðan að slíta sig aðeins frá
gestunum undir lok fyrri hálfleiks.
Hildur Sigurðardóttir fór þar fyrir
sínu liði og staðan var 39:30 fyrir
Snæfell í leikhléinu.
Jafnræði var með liðunum til að
byrja með í seinni hálfleiknum en
Haukastúlkur gáfu aðeins eftir und-
ir lok þriðja hluta og staðan að hon-
um loknum 58:44. Snæfellskonur
voru þar með búnar að leggja grunn
að sigrinum og gestunum tókst ekki
að laga stöðuna í lokafjórðungnum.
Lokatölur eins og áður segir 79:64
fyrir Snæfell. Hjá Snæfelli var
Chynna Brown með 18 stig og 13
fráköst, Hildur Sigurðardóttir með
17 stig, 4 fráköst og 7 stoðsend-
ingar, Eva Margrét Kristjánsdótt-
ir 13 stig, 6 fráköst og 4 stoðsend-
ingar, Hildur Björg Kjartansdóttir
12 stig og 7 fráköst, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 8 stig, Hugrún Eva
Vilhjálmsdóttir 6, Silja Katrín Dav-
íðsdóttir 3 og Helga Hjördís Björg-
vinsdóttir 2 stig. Hjá Haukum var
Lele Hardy atvæðamest þrátt fyr-
ir slaka skotnýtingu með 17 stig og
18 fráköst.
Í næstu umferð, sem spiluð verð-
ur í kvöld, miðvikudag, fara Snæ-
fellskonur til Keflavíkur. þá
Undir lok leiks Skallagríms og
Stjörnunnar í Borgarnesi í Dom-
inos deildinni í körfubolta 23. janú-
ar síðastliðinn fékk Skallagríms-
maðurinn Egill Egilsson harkalegt
olnbogaskot í andlitið frá Matthew
Hairston, leikmanni Stjörnunnar.
Dómari leiksins tók eftir brotinu
og dæmdi ásetningsvillu í kjölfarið
á Hairston. Eftir að hafa séð upp-
töku af leiknum töldu Skallagríms-
menn að brotið hefði verið það
gróft að dómari leiksins hefði átt að
dæma brottrekstravillu á Hairston.
Brottrekstrarvilla er þyngsti dómur
sem hægt er að dæma á körfubolta-
vellinum þar sem leikmanni er um-
svifalaust vikið af velli og í leikbann.
Ákvað stjórn körfuknattleiksdeildar
Skallagríms því að kæra atvikið til
aga- og úrskurðarnefndar Körfu-
knattleikssambands Íslands og fór
fram á að Hairston fengi tilhlýði-
leg viðurlög vegna brotsins gegn
Agli. Um tíma íhugaði stjórnin
jafnvel að kæra atvikið til lögreglu
en ákvað að gera það ekki. Nefndin
kvað loks upp dóm sinn í fyrradag
og ákvað að Hairston fengi tveggja
leikja bann fyrir brot þetta. Í dómn-
um kom m.a. fram sjónarmið dóm-
ara leiksins að ef hann hefði haft
sama sjónarhorn og myndbandið
þá hefði hann dæmt brottrekstrar-
villu á Hairston.
Rétt er að taka fram að Hairston
hafði persónulega samband við Egil
strax daginn eftir leik þar sem hann
bað Egil afsökunar á hegðun sinni
í leiknum. Myndband af atvikinu
hafði þá birst á Internetinu. Einn-
ig hefur Teitur Örlygsson þjálfari
Stjörnunnar harmað atvikið í við-
tölum í fjölmiðlum.
hlh
Samanburður á æfingagjöldum gefur ranga mynd
Grétar Ingi Erlendsson og Orri Jónsson
huga að Agli Egilssyni sem hér liggur
í valnum eftir olnbogaskot Matthew
Hairston í leiknum gegn Stjörnunni í
janúar. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Stjörnumaður fékk tveggja
leikja bann fyrir brot á Agli
Sveinn Davíðsson, sem átti góðan
leik, er hér að brjótast í gegnum vörn
Haukanna. Ljósm. Eyþór Ben.
Snæfell ekki í vandræðum
með Haukana
Klaus Hilbert látinn
Hér er Hildur Sigurðardóttir að spila sig í gegnum vörn Haukastúlkna. Hólmarinn
Gunnhildur Gunnarsdóttir er m.a. til varnar í Haukaliðinu. Ljósm. Eyþór Ben.
Snæfellskonur auka forustuna
Hvað er mikilvægast
í fari einstaklings?