Skessuhorn - 10.12.2014, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Lýsing fyrir gerð deiliskipulags
„Nýrækt“, Stykkishólmi
Bæjarstjórn hefur samþykkt lýsingu fyrir gerð
deiliskipulags „Nýrækt“ samkvæmt 3.mgr. 40. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag. Svæðið um 35ha og
liggur í jaðri þéttbýlis Stykkishólms, austan við Byrgisborg.
Á svæðinu hefur verið stundað húsdýrahald frá því um
1933-35. Stærsta holtið nefnist Grensás og þar er skógrækt.
Sjá nánar upplýsingar í „Lýsingu“. Markmið deiliskipulags er
að skilgreina lóðir fyrir frístundabúskap og skógrækt.
Lýsingin verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3 á skrifstofutíma frá 10-16
frá 10. desember til 29. desember 2014. Þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér lýsinguna
og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri
skriflega til skipulagsfulltrúa Stykkishólmsbæjar að
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi í síðasta lagi
29. desember 2014.
Sigurbjartur Loftsson
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
Breyting á aðalskipulagi
Stykkishólms 2002-2022, Austurgata 7
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar auglýsir hér með tillögu að
breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar 2002-2022
samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin takmarkast við lóðina Austurgötu 7. Byggingar
Kaþólsku kirkjunnar á lóðinni eru byggðar á árunum
1935-1976 og þar var rekinn spítali og leikskóli árum
saman sem setti mikinn svip á bæinn. Á síðustu árum hefur
starfsemi í byggingum kirkjunnar á lóðinni breyst. Nú er
áformað að breyta gamla leikskólanum og hluta systraheimilis
í fræðslusetur með gistiheimili og veitingaaðstöðu. Markmið
aðalskipulagsbreytingarinnar er að heimilt verður að
starfrækja ráðstefnu-, gisti- og veitingaþjónustu á lóðinni.
Sjá nánari upplýsingar í tillögu.
Tillagan verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3 á skrifstofutíma frá 10-16
frá 10. desember 2014 til 21. janúar 2015. Þeir sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér
tillöguna og koma ábendingum eða athugasemdum á
framfæri skriflega til skipulagsfulltrúa Stykkishólmsbæjar
að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi í síðasta lagi
21. janúar 2015.
Sigurbjartur Loftsson
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
Tillaga að deiliskipulagi „Vatnsás-
ferðaþjónusta“, Stykkishólmi
Bæjarstjórn hefur samþykkt 21.ágúst 2014 að auglýsa tillögu
að deiliskipulagi, Vatnsás-ferðaþjónusta samkvæmt 1.mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýsa breytingu á
aðalskipulagi samhliða samkv. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag. Svæðið um 2410m² að
flatarmáli. Svæðið er við tjaldsvæði og golfvöll Stykkishólms-
bæjar. Á skipulagssvæðinu eru fyrirhugaðar 6-7 litlar
byggingar auk þjónustusvæðis með bílastæðum og aðkomu
frá Vatnsás. Sjá nánari upplýsingar á deiliskipulagstillögu og
aðalskipulagsbreytingu.
Deiliskipulagstillagan og aðalskipulagsbreytingin verða
aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar, www.stykkisholmur.is
og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3
á skrifstofutíma frá 10-16 frá 10. desember 2014 til
21. janúar 2015. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
eru hvattir til að kynna sér gögnin og koma ábendingum eða
athugasemdum á framfæri skriflega til skipulagsfulltrúa
Stykkishólmsbæjar að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi í
síðasta lagi 21. janúar 2015.
Sigurbjartur Loftsson
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur / Sími: 433-8100
StykkishólmsbærNýtt uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS, var sjósett í
Hatsan skipasmíðastöðinni í Istan-
bul í Tyrklandi í síðustu viku. Skip-
ið er annað af tveimur nýjum upp-
sjávarveiðiskipum sem HB Grandi
hefur samið um smíði á við tyrk-
nesku skipasmíðastöðina Celiktr-
ans Deniz Insaat Ltd., en að auki
hefur verið gengið frá samning-
um um að stöðin smíði þrjá nýja ís-
fisktogara fyrir félagið. Samkvæmt
upplýsingum Garðars Svavarsson-
ar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB
Granda, var skipið flutt úr slippn-
um í Hatsan í flotkví og síðan sett
á flot þar. Í framhaldinu var það
dregið yfir í Celiktrans skipasmíða-
stöðina.
,,Þar verður á næstunni unnið
við að fullklára skipið að innan sem
utan. Á meðan verður skrokkurinn
af Víkingi kláraður í Hatsan,“ seg-
ir Garðar Svavarsson. Stefnt er að
því að Venus HF verði tilbúinn til
afhendingar í apríl á næsta ári og
hitt uppsjávarveiðiskipið, Víking-
ur AK, í lok næsta árs. Nýju ísfisk-
togarana á að afhenda samkvæmt
smíðasamningi á árunum 2016 og
2017. mm/ Ljósm. hbgrandi.is
Heimsmarkaðsverð á olíu hef-
ur farið hríðlækkandi að undan-
förnu. Vissulega hefur þetta ekki
farið fram hjá neytendum enda hef-
ur bensín, svo dæmi sé tekið, lækk-
að um rétt rúmar 30 kr. pr. lítra frá
því um miðjan júlímánuð. Fram
hefur komið í fjölmiðlum að olíu-
félögin hafa nýtt sér verðlækkanir
á heimsmarkaði til að auka álagn-
ingu sína í krónum talið og má ætla
að álagning þeirra á bensíni sé um
þremur krónum hærri á lítrann í
október og nóvember borið saman
við álagningu eins og hún var níu
fyrstu mánuði ársins. „Neytenda-
samtökin telja ekki eðlilegt að aðil-
ar notfæri sér lækkun á heimsmark-
aðsverði til að lauma inn hækkun
álagningar og hvetja því olíufélögin
til að draga þessa hækkun til baka.
Það sama á við um díselolíu og má
raunar með sömu rökum kalla eft-
ir fjögurra króna verðlækkun þar,“
segir í tilkynningu frá Jóhannesi
Gunnarssyni formanni Neytenda-
samtakanna.
mm
Flutningaskipið Harengus, sem
er í eigu Samherja, lá á mánudag-
inn við bryggju í Grundarfirði á
meðan verið var að skipa út frosn-
um makríl. Þetta er afli sem Krist-
ina EA-410 landaði 29. ágúst síð-
astliðinn og var þá stærsta löndun
í Grundarfjarðarhöfn frá upphafi,
eða rétt tæp 2.100 tonn. Harengus
er að taka um það bil helminginn
af þeim afla í þessari útskipun eða í
krinum 1.100 tonn.
tfk
Skipa út frosnum makríl
Mótmæla því að olíufélögin
lauma inn hækkun álagningar
Búið að sjósetja nýjan
Venus NS í Tyrklandi