Skessuhorn - 10.12.2014, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Árlega tilnefnir Fræðslumið-
stöð atvinnulífsins ,,fyrirmynd í
námi fullorðinna,“ en það er ein-
staklingur sem þykir hafa skarað
fram úr. Að þessu sinn hlýtur við-
urkenninguna Borgnesingurinn
Sigurður Oddsson sem er verð-
ugur fulltrúi þeirra sem stundað
hafa nám við Símenntunarmið-
stöðina á Vesturlandi. Sigurður er
fæddur og alinn upp á Ísafirði þar
sem hann lauk grunnskóla með
því að falla í öllu nema stærðfræði.
Hann reyndi oft að fara í nám en
gekk illa. Í ljós kom síðar að hann
er les- og skrifblindur með hljóð-
kerfisvillu. Fyrir nokkrum árum
kom hann í náms- og starfsráð-
gjöf til Símenntunarmiðstöðvar-
innar á Vesturlandi og fór í kjöl-
farið í nám sem kallast ,,Skref til
sjálfshjálpar” og er ætlað þeim sem
eru með lestrarörðugleika. Í fram-
haldinu fór Sigurður að vinna hjá
Norðuráli þar sem hann stund-
aði nám í Stóriðjuskólanum. Það
leiddi ennfremur til þess að nú er
hann að læra vélvirkjun í helgar-
námi hjá FVA og stefnir á að ljúka
framhaldsnámi í Stóriðjuskólan-
um. Sigurður er gott dæmi um
þrautseigju og dugnað, hann hefur
sýnt það að ekki þarf að gefast upp
þótt á móti blási. Hann veitti við-
urkenningunni viðtöku á ársfundi
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
sem haldinn var fimmtudaginn 4.
desember í Reykjavík.
mm/fréttatilk.
„Það hefur selst upp á allar sýn-
ingar hjá okkur og við höfum orð-
ið að bæta við aukasýningum á
Rocky Horror. Verða t.d. viðbótar-
sýningar á fimmtudaginn í þessari
viku klukkan 20:00 og mánudaginn
15. desember og þriðjudaginn 16.
desember kl. 20:00,“ segir Rún-
ar Gíslason formaður leikfélagsins
SV1 í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Sýningin var frumsýnd 28. nóvem-
ber og hefur hlotið góða dóma. Þá
fékk sýningin mikla umfjöllun fjöl-
miðla, ekki síst vegna hrekks leik-
félaga sem gáfu fjölmiðli í Reykja-
vík upplýsingar um meintan föður
eins leikarans. Átti höfundur verks-
ins um Rocky Horror að hafa ver-
ið faðir eins leikarans, sem reynd-
ist uppspuni frá rótum. „Sýningin
hefur kannski fyrir bragðið feng-
ið meiri umfjöllun en gengur og
gerist. Allavega erum við glöð og
hlökkum til að takast á við sýning-
arhald á meðan aðsókn leyfir,“ seg-
ir Rúnar í samtali við Skessuhorn.
mm
Nú í lok nóvembermánaðar brugðu
nemendur í Varmalandsdeild
Grunnskóla Borgafjarðar undir sig
betri fætinum og gróðursettu ár-
gangatré víðsvegar um skólalóðina.
Þannig var að starfsmaður skólans
kom með hugmynd um að gaman
væri að hver árgangur ætti sitt eig-
ið tré til þess að annast og fylgjast
með. Annar starfsmaður greip hug-
myndina og úr varð frábært sam-
starf við ungmennafélag sveitar-
innar. Niðurstaðan var síðan sú að
Ungmennafélag Stafholtstungna
fjármagnaði kaupin á einu tré fyr-
ir hvern árgang í skólanum. Ákveð-
ið var að skoða hvers konar lauftré
væru í boði á Gróðrarstöðinni á
Þorgautsstöðum í Hvítársíðu og
komu því trén öll úr heimahéraði.
Eftir það völdu bekkirnir þá tegund
sem þeim fannst efnilegust með því
að skoða hvernig trén yrðu þegar
þau stækka. Nokkrar tegundir urðu
fyrir valinu og munu prýða og auka
fjölbreytni í skóginum á Varma-
landi. Meðal annars voru gróður-
sett fjallagullregn, blóðheggur, grá-
ölur og askur sem verða vonandi
staðarprýði þegar fram í sækir.
Nemendur munu síðan nýta sér
þessi árgangatré til þess að fylgj-
ast með vexti þeirra og framvindu
á meðan á skólagöngu þeirra stend-
ur og munu næstu árgangar einn-
ig fá sitt árgangatré þegar þeir hefja
nám við skólann. Einnig horfa
starfsmenn til framtíðar og von-
ast til þess að börnin muni hugsa
til trjánna sinna þegar þau eiga leið
um Borgafjörðinn á fullorðinsárum
og kíkja við hjá trénu sínu.
Meðfylgjandi myndir eru af 10.
bekk, 7. bekk, 2. bekk, 1. bekk.
Ása Erlingsdóttir, grunnskólakenn-
ari Varmalandsdeild GBF
Líkt og margir lesendur Skessu-
horns muna hafði fyrrverandi
oddviti Reykhólahrepps, Andrea
Björnsdóttir, þann sið að færa ný-
burum í hreppnum og foreldrum
þeirra sængurgjafir. Hún var kjör-
in í sveitarstjórn hreppsins 2010
og var oddviti frá 2011 - 2014. Á
þeim tíma prjónaði hún, á sinn eig-
in kostnað, ungbarnapeysu, húfu
og sokka á öll börnin sem fæddust í
hreppnum. Börnin urðu ellefu tals-
ins og prjónaði Andrea gjöf handa
þeim öllum. Í sumar ákvað svo
nýkjörin sveitarstjórn Reykhóla-
hrepps að halda í siðinn og færa
nýfæddum íbúum hreppsins áfram
sængurgjafir.
Treysti sér ekki í
prjónaskapinn
Sveitarstjórnin treysti sér þó ekki
í að feta alveg í fótspor Andreu og
prjóna og ákvað því að gera ann-
að í staðinn. „Andrea prjónaði allt
kjörtímabilið og börnin komu öll
á þriðja og fjórða árinu. Okkur
fannst ekki spurning um að halda
þessu áfram,“ segir Ingibjörg Birna
Erlings dóttir sveitarstjóri. Hún
segir þetta sé bæði grín og gam-
an en þó líka alvara sem fylgir.
„Karl Kristjánsson núverandi odd-
viti er bóndi og treysti sér alls ekki
í prjónaskapinn,“ bætir hún við og
hlær. Það varð því úr að tvær konur
úr sveitarstjórninni tóku verkefnið
að sér og niðurstaðan varð að þær
munu færa nýbökuðum foreldrum
svokallaðan „startpakka“.
Fyrsta barnið fætt
Startpakkinn er að finnskri fyrir-
mynd, en þar í landi hefur sá sið-
ur tíðkast um áratugaskeið að færa
foreldrum nýfæddra finnskra barna
pakka með ýmsum nauðsynjavör-
um og fatnaði á ungbörn. Fyrsta
barn kjörtímabilsins fæddist nú í
lok nóvember og var því fyrsti start-
pakkinn settur saman. „Það eru Ás-
laug B. Guttormsdóttir kennari og
Sandra Rún Björnsdóttir iðjuþjálfi
sem tóku þetta að sér. Svo er von
á öðru barni eftir áramótin og það
verður líka útbúinn startpakki þeg-
ar það barn fæðist.“ Í startpakka
Reykhólahrepps má meðal ann-
ars finna ungbarnaföt, baðhand-
klæði og þvottastykki ásamt ung-
barnakremi fyrir litla bleiubossa. Á
vef Reykhólahrepps kemur fram að
startpakkinn sé gjöf frá öllum íbú-
um sveitarfélagsins og þeirra leið
til að samgleðjast þegar nýtt líf lítur
dagsins ljós. grþ
Veglegar sængurgjafir í Reykhólahreppi
Sveitarstjórnarkonurnar Sandra Rún og Áslaug. Á borðinu má sjá innihald fyrsta
startpakka kjörtímabilsins. Ljósm. Reykhólavefurinn.
Frábær aðsókn að Rocky Horror
menntskælinga í Borgarnesi
Gróðursettu árgangatré á Varmalandi
Sigurður ásamt Sigurgeiri Sveinssyni deildarstjóra bygginga- og málmtækni-
greina FVA og Hafdísi Fjólu Ásgeirsdóttur skólameistara FVA.
Er fyrirmynd annarra
í námi fullorðinna
Sigurður Oddsson verðlaunahafi ásamt Helgu Björk verkefnisstjóra Símenntunar-
miðstöðvarinnar, Guðrúnu Lárusdóttur formanni stjórnar Símenntunarmið-
stöðvarinnar og Signýju Jóhannesdóttur formanni Stéttarfélags Vesturlands og
stjórnarmanni í Símenntunarmiðstöðinni.