Fjarðarpósturinn - 18.09.2014, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9 Fimmtudagur 18. september 2014
Bræðrafélagið
Bræðrafélag kirkjunnar styð
ur dyggilega við söfnuð inn og
starfið með ýmsum verklegum
framkvæmdum og fyrir dyrum
stendur að fylla milli hellna við
safnaðar heimilið, kirkjuvarsla
og fleiri verkefni.
Bræðrafélagar munu hittast
þann 27. september kl. 10 í safn
aðarheimilinu. Allir vel komn ir.
Margir Fríkirkjugestir í Hafn
ar firði þekkja Hörð kirkjuvörð
Guðmundsson sem staðið hefur
vaktina í kirkjunni undanfarna
áratugi, eða frá 1993. Fram að
því hafði hann unnið ýmis við
vik og viðhaldsverkefni fyrir
söfn uðinn og það sama gilti þá
og nú, aldrei vill Hörður taka
neitt fyrir vinnu sína. Nema, jú,
hann fær greitt fyrir kirkjuvörslu
í jarðarförum en lætur það renna
beint inn á reikning safnaðarins!
Hörður varð 85 ára á þessu ári
og er aðeins farinn að rifa seglin
í starfinu. Hann sést þó enn við
ýmsar athafnir og er enn hinn
formlegi kirkjuvörður Fríkirkj
unnar í Hafnarfirði. Hörður er
lærður húsgagnasmiður og þeg
ar þessar línur eru skráðar situr
hann úti í skúrnum sínum við
Holtsgötuna og smíðar dúkku
vagna handa vinum og ættingj
um. Þetta eru fallega rauðir
vagnar og vandað handbragðið
leynir sér ekki.
Hann hefur starfað með fimm
prest um við kirkjuna: Guð
mundi Óskari Ólafssyni, Magn
úsi Guðjónssyni, Bernharði
Guð mundssyni, Einari Eyjólfs
syni og Sigríði Kristínu Helga
dóttur. Hörður var skírður og
fermdur af Jóni Auðuns en
Krist inn Stefánsson gaf þau Jó
hönnu, eiginkonu Harðar, sam
an. Má því segja að fríkirkjublóð
renni um æðar Harðar en for
eldrar hans, þau Guðmundur
Guð munds son og Guðrún Sig
ur bergsdóttir voru í söfn uðinum
alla tíð frá því þau fluttu til
Hafnarfjarðar.
Þau bjuggu að Selvogsgötu
22 og áttu hesthús hinum megin
við vegginn, við Holtsgötuna.
Hörður sótti því um þá lóð fyrir
íbúðarhús sitt þar sem þau
Jóhanna hafa búið alla sína hjú
skapartíð en hesthúsin voru flutt
að Kaldárselsvegi.
Gerði uppreisn
Hörður man vel eftir ferm
ingunni sinni og Óla (löggu)
bróður síns en þeir fermdust
saman þótt þeir væru hvor á
sínu ári til að spara þannig að
að eins þyrfti að halda eina
veislu. „Já, ég gerði uppreisn
þá! Mamma hafði keypt hatta á
okkur bræðurna og það stóð
fuglsfjöður upp úr þeim. Hún
var auðvitað að gera voða flott
og gott fyrir okkur en þessa
hatta vildum við alls ekki bera.
Og ég hafði mitt fram í þessu
eins og öðru,“ segir Hörður og
hlær við.
Hann segir fermingarveisluna
hafa verið glæsilega og gefur
ekki mikið fyrir tal um að
slíkum veisluhöldum hafi vaxið
ásmegin undanfarin ár. Það var
fjölmenni og meira að segja
fengnar konur til að sjá um allt
tilstandið.
Prestarnir, sem fyrr voru
nefndir, eru Herði minnisstæðir
allir en hann segir að honum
hafi komið einna best saman við
Guðmund Óskar Ólafsson. „Já,
ég segi stundum við Einar að
hann sé hér um bil að ná Guð
mundi. Það er auðvitað í gríni,
Einar er löngu búinn að ná
honum,“ segir Hörður og kímir
við.
Allt Jóhönnu að þakka
Klaustrið við Ölduslóð er
Herði og Jóhönnu sérstaklega
hugleikið en hann er einn af
örfáum karlmönnum sem hafa
fengið að stíga þar inn fyrir dyr.
„Ég hef smíðað mikið fyrir þær
og við höfum ræktað þetta sam
band mjög vel við Jóa en hún á
í rauninni allan heiður af því
hvernig til hefur tekist. Eins og
með annað. Jóa hefur alltaf stutt
dyggilega við mig í öllu þessu
starfi þótt engir peningar hafi
fengist fyrir það. Hún hefur
eiginlega frekar hvatt mig en
latt í því.“
Hörður segist ekki „ofsa
trúaður“ maður en hann segist
þó hafa beðið til Guðs í vand
ræðum sínum. „Mér finnst starf
ið allt í kirkjunni okkar hafa
þróast á góðan veg, það er mun
stærra og meira en áður var. Ég
nefni sérstaklega barnastarfið,
prestana og tónlistarfólkið. Mér
finnst til dæmis Krílasálmarnir
eitthvað það hátíðlegasta sem
ég hef upplifað í kirkjunni og
með því fallegra sem gert er.“
Hann er þó ekki viss um
himna ríkið. „Ég býst svo sem
ekki við neinu þegar það
slokkn ar á mér. Engar grænar
grundir. Þannig að það mun þá
bara koma mér þægilega á
óvart. En mér finnst gott að vera
með öllu þessu góða fólki og
það er eitt af því sem er gott við
að verða gamall: Það eru allir
svo góðir við mann,“ segir öðl
ingurinn Hörður Guðmundsson
og brosir með öllu andlitinu.
Hugfanginn af barnastarfinu
Hörður kirkjuvörður 85 ára
Hörður unir sér vel á smíðaverkstæðinu.
Jóhanna og Hörður við safnaðarheimili Fríkirkjunnar.
Feðginin Örn og Kristjana Margrét taka létta æfingu fyrir
kirkjukórsæfingu.
Sigga undirbýr fermingarfræðslu. Einar og Hörður. Björn Andri í fangi afa síns.
Erna og Thelma Hrönn sjá um Krúttakórinn.
Nokkrar myndir af Facebooksíðunni okkar
Kórinn
Fríkirkjukórinn er skemmtilegur félagsskapur
fólks sem syngur í kirkjunni við ýmsar athafnir.
Æfingar eru á miðvikudagskvöldum.
Nánari upplýsingar veitir Örn tónlistarstjóri,
orn@frikirkja.is og 565 3430.
Fréttabréf Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
Ábyrgðarmaður: Jóhann Guðni Reynisson