Þjóðlíf - 01.11.1986, Page 14

Þjóðlíf - 01.11.1986, Page 14
Myndlistarmaður Sigurður Þórir Sigurðsson Sigurður Þórir Sigurðsson opnar einkasýningu á verkum sínum þann 8. nóvember í nýju galleríi við Óðinstorg. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga áður, þá síðustu sl. vor, og tekið þátt í fjölda samsýn- inga hér heima og erlendis. Sigurður Þórir er fæddur árið 1948 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann 1968-70 og hóf síðan nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn 1974 og var þar við nám í fjögur ár. Sigurður Þórir mun sýna myndir málaðar með olíulitum á striga. Viðfangsefni hans er ætíð manneskjan. „Mér finnst ég nú vera að túlka innri veruleika mannsins og áhrif umhverfisins á hann,“ segir Sigurður Þórir um myndefni sitt. „Áður var ég meira að fást við gráan veruleika mannsins. Nútímasamfélagið er viðfangsefni mitt og hvernig manninum gengur að lifa í því samfélagi með alla þessa geðveiki í kringum sig.“ Konur hafa alla tíð verið sterkar í myndum Sigurðar Þóris, - sterkari en þeir karlmenn sem koma við sögu í myndum hans. „Konur eru tvímælalaust sterkari en maðurinn í augnablikinu," segir Sigurður Þórir. „Þeir sem eru að brjótast út úr viðjum vanans eru ætíð sterkari. En kannski finnst mér þetta bara af því að ég er svo veikur sjálfur! Ég furða mig hins vegar alltaf á því hvað konur eru sterkar; þær eru miklu ábyrgðarfyllri en maðurinn gagnvart lífinu, svo dæmi sé tekið. Svo hefur konan geysilega sterk áhrif á mann sem karlmann.“ Sú breyting hefur orðið á viðfangsefni Sigurðar Þóris frá síðustu sýningu hans að nú eru karlmaður og kona yfirleitt ekki saman á myndum. „Nei, ég er ekki að boða aðskilnað kynjanna," segir hann, „en ég er kannski búinn með það myndefni sem ég var að fást við. Kannski er bara nóg að glíma við annað kynið í einu.“ Ljósmynd: Sigurður Bragason 14 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.