Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 22
É g fór á feikilega hressandi tilraunasýningu hjá Mið-Ís-landi á dögunum. Hópurinn
hélt þrjár slíkar sýningar til þess að
prufukeyra nýtt efni sem fer á fjal-
irnar eftir áramót. Ég varð að vísu
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá tvær
sýningar þetta sama kvöld. Önnur
samanstóð af parinu í sætaröðinni
fyrir framan mig og hin af grínistun-
um á sviðinu. Sú fyrri var voðalega
sakleysisleg í byrjun. Augngotur
og blíðlegar strokur (á stöðum sem
leyfilegt er að handleika á almanna-
færi). „Æ, ferlega eru þau krúttleg,“
hugsaði ég með mér á meðan ég
tók í sundur Stjörnurúlluna sem ég
smyglaði með inn. Ég bið Þjóðleik-
húskjallarann hér með formlega af-
sökunar á því að hafa stungið lakkr-
ísnum undir sætið mitt, ég borða
bara þetta bleika, sko.
Jæja, eitthvað eru nú leikar að
æsast þarna fyrir framan mig.
Allt í lagi, örlítið eyrnasneplanart
hefur aldrei drepið neinn. Ég er
ekki svona mikil tepra. Áður blíð-
legu strokurnar þykja mér nú samt
orðnar helst til ákafar. Og víðförlar.
Ég lít á klukkuna, gott korter í
sýningu. Í mínum dimmustu hugar-
fylgsnum (og martröðum) hvarflar
að mér að þau gætu í raun lokið sér
af á þeim tíma. Tvisvar. Fyrir framan
mig. Nei, róleg. Söðlaðu hestinn,
Guðrún Veiga, það er enginn að fara
að stunda kynlíf í þriðju sætaröð í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Fimm mínútur í sýningu. Konan
er eiginlega í fanginu á manninum.
Höndin á henni óþarflega langt ofan
í hálsmálinu hjá honum. Hendurnar
á honum – já, þær voru á stað sem
bara á að snerta bak við luktar dyr.
Undir fjögur augu. Eða einn síns liðs
ef því er að skipta. Eitt augnablik
dauðsé ég eftir að hafa ekki boðið
ömmu minni með á sýninguna.
Hún hefði sent þessa saurlífisseggi
til síns heima við fyrsta brot. Loks
slokkna ljósin og ég blessunarlega
blindast á atlotin fyrir framan mig.
Hefst þá seinni sýning kvöldins.
Alveg jafn óviðeigandi og sú fyrri.
En svo miklu miklu betri. Saga
Garðarsdóttir lét mig jafnvel efast
um kynhneigð mína í skamma
stund. Frussandi fyndin og klám-
fengin. Kona að mínu skapi. Já, það
má vel ausa yfir mig klámfengnum
orðum, læf sjóv er allt annar hand-
leggur. Strákarnir voru ekki síðri en
Saga. Ekki mikið allavega. Á tíma-
bili prísaði ég mig sæla að amma
væri eftir allt saman ekki með í för.
Sumir brandararnir voru þannig að
blása hefði þurft ítrekað í hana lífi.
Og losa um eina fjóra blóðtappa.
Virkilega gott grín.
Ljósin kvikna á nýjan leik. Það er
komið hlé. Þegar ég hef lokið við að
þurrka hláturstárin úr augunum átta
ég mig á að þau eru ennþá þarna.
Graða parið. And-
skotinn. Maðurinn
stendur upp og fer
eitthvað. Almátt-
ugur, mér er borg-
ið. Engar gælur
í hléinu. Ekki er
hann nú lengi að
snúa aftur. Sest
hann niður? Nei.
Sest hann klof-
vega yfir konuna?
Já. Hann staldraði
þó aðeins við í
skamma stund á
lendum hennar.
En það tók mig
langan tíma að
átta mig á hverju
ég hefði eiginlega
orðið vitni að. Ég
skil það hrein-
lega ekki ennþá.
Ég þyrfti að vera
lögga. Mig langar
svo oft að hand-
taka fólk. Eða bara
nefbrjóta það.
Ég ætla að leyfa
mér að mæla með
ferð á Mið-Ísland
í janúar. Maður
þarf jú á upplyft-
ingunni að halda,
staurblankur og
spikfeitur eftir
desembermánuð. Og þið þarna. Já
þið – sem eruð almennt óþarflega
kynferðislega æst í hvort annað.
Verið heima hjá ykkur. Alla daga.
Alltaf.
Guðrún Veiga Guð-
mundsdóttir er
mannfræðinemi frá
Eskifirði sem vakið
hefur athygli fyrir
bloggskrif sín. Hún
stjórnaði sjónvarps-
þættinum Nenni ekki
að elda og var að
gefa út samnefnda
bók. Guðrún Veiga
fór á prufusýningu
hjá Mið-Íslandi og
sat fyrir aftan tvo
saurlífisseggi.
Ástaratlot í Þjóðleikhúskjallaranum
Guðrún
Veiga
Guðmundsdóttir
ritstjorn@
frettatiminn.is
Nei, róleg.
Söðlaðu
hestinn,
Guðrún
Veiga, það
er enginn
að fara að
stunda kyn-
líf í þriðju
sætaröð í
Þjóðleikhús-
kjallaranum.
Tvöföld ánægja
með RED jólum
Viðskiptavinir í RED áskrift sem kaupa
snjalltæki á jólatilboði fá tvöfalt
gagnamagn í 12 mánuði.
Kynntu þér málið á Vodafone.is
eða í næstu verslun
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
Vodafone Smart 4 mini
14.990 kr. stgr.
Vodafone Smart tab
39.990 kr. stgr.
Hægt er að greiðsludreifa í
allt að 18 mánuði.
22 pistill Helgin 28.-30. nóvember 2014