Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 30
Þ
etta var algjör
geðveiki. Mér finnst
eiginlega nærtækast
að líkja þessu við
fæðingu. Þetta var
rosalega erfitt en
afraksturinn er yndislegur og von-
andi gleymi ég fljótt hversu erfitt
þetta var,“ segir Rakel Sölvadóttir,
stofnandi reKode Education, sem
nýverið lauk þátttöku í Kaplan Ed-
Tech viðskiptahraðlinum í Banda-
ríkjunum. Um er að ræða þriggja
mánaða stíft prógramm sem fer
fram á skrifstofu Techstars í New
York, en þar fá þátttakendur skrif-
stofuaðstöðu, aðgengi að mentor-
um og fjárfestum auk aðgengis að
fjármagni. Af þeim 500 teymum
sem sóttu um komust aðeins 11
að en erfiðara er að komast að í
Kaplan Techstars en í Harvard
háskólann eða Yale. „Ég sagði
þeim í hinum teymunum að þetta
prógramm reyndi meira á mig en
þegar ég var á sjó og var mest úti í
58 daga í Smugunni,“ segir Rakel.
Viðskiptahraðlinum lauk 22.
október þegar hvert teymi kynnti
sig fyrir fjárfestum. „Ég var vissu-
lega með smá hnút í maganum
áður en ég steig á svið en mér leið
samt virkilega vel því ég hef svo
mikla trú á því sem við höfum
verið að gera,“ segir Rakel. Ólíkt
því sem hún bjóst við var ferlinu þó
hvergi nærri lokið heldur er hún
enn að ferðast um Bandaríkin og
funda með mögulegum fjárfestum. „Það er algengt að loknum svona
viðskiptahraðli að það taki um 4 til
8 vikur að ljúka þeim fjárfestinga-
fasa.“ Hún vill ekkert gefa upp um
hverja hún er í viðræðum við en
segist afar bjartsýn.
Fyrsta tæknisetur sinnar
tegundar í heiminum
ReKode Education spratt upp úr
hinu íslenska fyrirtæki SKEMA
sem Rakel stofnaði árið 2011 og er
leiðandi í kennslu og ráðgjöf í notk-
un tækni og forritunar á grunn-
og framhaldsskólastigi á Íslandi.
Rakel er með ADHD og rakst illa í
hinu hefðbundna skólakerfi. Þegar
hún sá að sonur hennar, sem nú er
11 ára, átti við svipaða erfiðleika
að stríða fannst henni að eitthvað
þyrfti að breytast í menntakerfinu.
Á þeim tíma var Rakel að læra sál-
fræði og ákvað að samþætta þekk-
ingu sína á sálfræði og forritun á
Laugardagstilboð
– á völdum servéttum og kertum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Opið laugardaga kl. 10-16
Nýir o
g
fallegi
r haus
t- og
vetrar
litir í s
ervétt
um
og ker
tum
®
nýjan hátt. Sú hugmynd þróaðist
út í stofnun SKEMA. „Margir
krakkar sem koma á námskeið hjá
okkur eiga erfitt með að finna sig
í hinu hefðbundna menntakerfi.“
Í heild hefur Skema tekið á móti
ríflega 3500 krökkum á námskeið
á Íslandi og rúmlega 300 kennur-
um og 13. desember mun SKEMA
síðan opna formlega fyrsta tækni-
setur sinnar tegundar í heiminum
á Íslandi.
Fyrir ári ákvað Rakel að söðla
um og hefja uppbyggingu á alþjóð-
legu mennta- og tæknifyrirtæki
og flutti til Bandaríkjanna með
börnunum sínum tveimur, Daníel
Breka 11 ára og Ólínu Helgu 14
ára, tveimur köttum og hundi.
Fjölskyldan er búsett í Redmond,
í Washingtonfylki en þar er fjöldi
stórra tæknifyrirtækja, og býr hún
því nánast í bakgarði Microsoft
og nálægt Amazon og Google.
„Þessi staðsetning lá beinast við
enda hefur Bill Gates verið idol hjá
mér síðan ég var 9 ára og byrjaði
að forrita. Við ákváðum að hefja
starfsemi reKode hér og þegar við
færum út kvíarnar verður næsti
staður væntanlega líka í stóru
tæknisamfélagi.“
Börn Rakelar eru aðstoðar-
kennarar
Hún segir það hafa verið gríðar-
lega gleðifrétt þegar hún komst að
því að teymi reKode komst að í við-
skiptahraðlinum. „Auðvitað finnst
öllum sitt fyrirtæki vera flottast
en þetta var í raun viðurkenning
á því að reKode hefur alla burði
til að vaxa á alþjóðavísu og þykir
vænlegt fyrir fjárfesta. Þetta var
líka viðurkenning á því starfi sem
við erum að vinna.“ ReKode komst
að í viðskiptahraðli sem fór fram
í New York og það var fyrst þegar
fyrirtækið varð fyrir valinu sem
finna þurfti út úr því hvernig ætti
að koma því við að búa í New York
um þriggja mánaða tímabil.
Þar sem Rakel er einstæð móðir
fluttu foreldrar hennar út til að
hugsa um börnin
og heimilið á
meðan hún var
í burtu. „Þau hafa alltaf stutt mig
í því sem ég tek mér fyrir hendur.
Þau eru um sjötugt og höfðu
einungis komið einu sinni áður til
Bandaríkjanna en engu að síður
komu þau til að hjálpa mér. Ég
lít ekki svo á að þessi tími minn
með börnunum sé glataður því
þau fengu að upplifa gæðastundir
með ömmu sinni og afa sem mér
finnst mjög dýrmætt.“ Daníel
Breki æfir fótbolta og ferðuðust
þau með honum á fótboltamót, en
Ólína Helga er orðin afar sjálf-
stæð, þrátt fyrir ungan aldur, og
er þegar farin að vekja athygli í
tæknigeiranum í Bandaríkjunum
og í Evrópu. Börn Rakelar voru
einskonar tilraunadýr þegar hún
var að þróa kennsluaðferðir sínar
og þrátt fyrir lítinn áhuga Ólínu
Helgu í byrjun er hún nú afar
áhugasöm og þakklát móður sinni
fyrir að hafa kveikt þennan áhuga.
Á síðasta ári var Ólína Helga í öðru
sæti í valinu á Tæknistelpu ársins
í Evrópu (Digital Girl of the Year
Award) og árið þar á undan vann
hún forritunarkeppni á vegum
bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, en hún skráði sig til þátttöku
ásamt hópi nemenda Skema. Hún
og Daníel Breki hafa frá upphafi
verið aðstoðarkennarar á nám-
skeiðum SKEMA og nú reKode.
Alls ekkert lúxuslíf
Á fyrstu fjórum vikunum í Kaplan
Techstars hitti Rakel og teymið
yfir 90 mentora á hraðfundum, en
fundirnir voru allt að sex á dag.
„Það er talað um að það tengslanet
sem fæst í gegnum þetta jafn-
gildi því sem hefðbundin sprota-
fyrirtæki byggja upp á tveimur
árum. Þetta tók á en var vel þess
virði,“ segir Rakel. Hún tekur
fram að það hafi sannarlega ekki
verið neitt lúxuslíf sem hún lifði á
Karlremba verður rauðsokka
Rakel Sölvadóttir er í viðræðum við alþjóðlega fjárfesta sem hafa augastað á fyrirtæki hennar, reKode. Rakel flutti til Banda-
ríkjanna í fyrra og var að ljúka þátttöku í viðskiptahraðlinum Techstars sem er erfiðara að komast inn í en Harvard-háskóla. Hún
lagði nótt við dag í Techstars og þar sem Rakel er einstæð móðir komu foreldrar hennar til Seattle til að sjá um börnin og heimilið
á meðan. Rakel var á sínum tíma samfleytt 58 daga á sjó í Smugunni en segir að Techstars hafi verið erfiðari áskorun. Hún segist
lengi vel hafa verið mikil karlremba en nú er hún reynslunni ríkari og á góðri leið með að verða rauðsokka. Hver er
Rakel Sölvadóttir
Fædd: 22. septem-
ber 1975.
Börn: Daníel Breki
(11 ára) og Ólína
Helga (14 ára).
Foreldrar: Ragn-
heiður Ólafsdóttir
og Sölvi Steinberg
Pálsson.
Menntun: BS í
tölvunarfræði og
tveggja ára sál-
fræðinám.
Áhugamál: Fjall-
göngur, mótorhjól,
samvera með
börnunum og allt
nördadót eins og
tölvur, tækni og
tölvuleikir.
Fyrri störf: Fisk-
vinnsla, háseti á
frystitogara og
hugbúnaðarsér-
fræðingur.
Átrúnaðargoð frá
9 ára aldri: Bill
Gates, stofnandi
Microsoft.
Safnaði sem krakki:
Glansmyndum
(ótrúlegt en satt) og
límmiðum.
Fyrst til útlanda: 19
ára í útskriftarferð
til Portúgal.
?
Rakel Sölvadóttir lauk nýverið
þátttöku í viðskiptahraðlinum
Kaplan Techstars í Bandaríkj-
unum með fyrirtækið sitt reKode
en erfiðara er að komast þar að
en í Harvard háskóla eða Yale.
Bill Gates hefur verið idol
hjá mér síðan ég var 9 ára
og byrjaði að forrita.
Framhald á næstu opnu
30 viðtal Helgin 28.-30. nóvember 2014