Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 92
Nóg til frammi
Hljómsveitin Eva
Konur hafa
orðið
Hljómsveitin Eva er
hugarfóstur þeirra
Völu Höskuldsdóttur og
Sigríðar Eirar Zop-
honíasardóttur. Þær
syngja frumsamin lög og
texta við undirleik eins
kassagítars, fyrir utan í
einu lagi þar sem önnur
hljóðfæri koma við sögu.
Þetta eru krúttleg lög og
margir textar plötunnar
eru stórskemmtilegir.
Það er skemmtilegur
húmor í textunum,
athyglisverð kvenrétt-
indabarátta og skopleg
sýn söngkvennanna á
hinum ýmsu málum. Mér
finnst þó hljóðheimurinn
full einhliða á plötunni.
Þær Vala og Sigríður
eru fínar söngkonur og
raddirnar þeirra parast
vel saman. Ég er þó á
því að það hefði mátt
krydda lögin með aðeins
meiri hljóðfæraleik, þó
það væri bara til þess að
brjóta þetta upp.
Bestu lögin eru Nefið,
Ömmulagið og Hver er
kallinn.
Containing the dark
Geislar
Dökkt, fallegt og
dularfullt
Geislar er hugarfóstur
tónlistar- og kvikmynda-
gerðarmannsins Styrmis
Sigurðssonar. Með honum
í Geislum eru margir af
færustu hljóðfæraleikurum
landsins og er vandað mjög
til verka í öllu á þessari
plötu. Tónlist Styrmis er
bæði dökk, falleg og dular-
full í senn. Textarnir líka,
með fallegum undirtóni.
Laglínur laganna daðra
mjög við djass og má segja
að þetta sé einhvers-
konar hlið á milli djass
og popps. Lögin mynda
mjög synematískan heim
og stundum fannst mér
ég vera að hlusta á tónlist
úr kvikmynd, franskri
jafnvel. Þetta er áhuga-
verð plata og vonandi liður
ekki á löngu þar til Styrmir
sendir frá sér meira efni.
Allur hljóðfæraleikur og
framkvæmd er til mikillar
fyrirmyndar en sérstaklega
ber að nefna strengjaút-
setningarnar sem eru
fullkomnar.
Bestu lögin eru Boundary
of Hope, Goodbye, Stone
Cold Stone og Resolution in
Revolution.
Aría
Gissur Páll
Frábær söngvari
Tenórinn Gissur Páll Gissurar-
son sendir hér frá sér sína aðra
sólóplötu. Á Aríu syngur Gissur
allar stærstu óperuaríurnar
frá hinum sígildu óperuhöf-
undum ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands undir stjórn
Petri Sakari. Platan byrjar á
hinu undurfallega Una furtiva
lagrima úr Ástardrykknum
eftir Donizetti og fer með
mann í ferðalag um lendur
og strendur meistaranna og
endar svo á Nessun dorma úr
Turandot eftir Puccini. Ég er á
því að styrkur Gissurar sé meiri
í kröftugu aríunum, frekar
en hinum angurværu og við-
kvæmu. Hann á mjög auðvelt
með lög eins La donna é mo-
bile, Lunga da lei úr La Traviata
og Tombe degli avi miei.
Hins vegar finnst mér vanta
einhverja þykkingu í aríum
eins og Una furtiva lagrima
og E lucevan le stelle. Nessun
dorma er þó glæsilega sungið.
Taka skal þó fram að ég er með
ósanngjarnan samanburð við
gömlu meistarana sem áttu
sín bestu ár þegar þeir voru
komnir á fimmtugsaldurinn.
Gissur er ungur söngvari þegar
óperusöngur er annarsvegar,
þó hann sé reynslumikill. Ég
hlakka til að fylgjast með
honum áfram og heyra röddina
þróast. Platan er öll hin glæsi-
legasta og umgjörð eins og
best verður á kosið.
Bestu aríurnar eru Nessun
dorma, Lunga da lei, La donna
é mobile og Tombe degli avi
miei.
Í tAkt við tÍmANN birgir SteiNN StefáNSSoN
Djús-sjúkur söngfugl
Birgir Steinn Stefánsson er 22 ára gamall Kópavogsbúi. Hann er nemi í tómstunda-
og félagsfræði við Háskóla Íslands. Birgir hefur mikinn áhuga á tónlist og söng
nýverið lag inn á jólaplötu föður síns, Stefáns Hilmarssonar.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Plötuhorn hANNeSAr
Staðalbúnaður
Ég versla frekar mikið þegar ég
er erlendis og reyni yfirleitt að
klára „verslunarkvótann“ þar,
en hérna heima kaupi ég flestar
flíkurnar mínar í Gallerí Sautj-
án, og skó í Kaupfélaginu. Ef
ég á að vera alveg hreinskilinn
þá líður mér nú samt best bara
í einhverjum íþróttafötum, ég
held að ég eigi yfir 40 fótbolta-
boli frá mismunandi liðum. Það
má í rauninni segja að þar fái
ég útrás fyrir söfnunaráráttuna
sem blundar í mér.
Hugbúnaður
Ég hef mikinn áhuga á íþróttum
og að stunda þær, tónlist og
núna nýlega fékk ég loksins al-
mennilegan áhuga á námi. Satt
best að segja finnst mér virki-
lega gaman í skólanum. Ef það
er ekki mikið að gera í skólanum
eða í vinnunni þá þykir mér gott
að nýta frítíma minn t.d. í að
hlusta á eða semja tónlist, fara í
bíó eða út að borða og eyða tíma
með kærustunni, fjölskyldu og
vinum. Ég fylgist vel með fót-
bolta en horfi annars voða sjald-
an á sjónvarp nema þegar það
eru leikir. Ég hlusta á allskonar
tónlist og tel mig vera með mjög
fjölbreyttan tónlistarsmekk en
í uppáhaldi eru hljómsveitir á
borð við Coldplay, Muse, John
Mayer, Bastille og núna nýlega
George Ezra, hann er virkilega
flottur! Einnig hef ég gaman af
ýmsum þáttaseríum, en Break-
ing Bad eru alltaf jafn góðir, svo
var ég að byrja aftur á Lost eftir
að hafa gefist upp á þriðju seríu,
þeir eru góðir.
Vélbúnaður
Ég á átta ára gamla MacBook
Pro tölvu sem hefur aldrei verið
betri! Ég nota hana bæði í skól-
anum, í að semja tónlist og svo
auðvitað bara almenna notkun.
Ég á iPhone 4 sem er því miður
alveg að syngja sitt síðasta, og
ég á nú von á því að ég fari bráð-
lega að kaupa mér nýjan síma.
Ég er ekkert svo mikill app fíkill
eins og margir vinir mínir, ég
nota aðallega þessi helstu eins
og Facebook, Instagram, Snapc-
hat og kannski Twitter. Ég er
reyndar húkt á einum tölvuleik
sem heitir Hay Day, og af sjálf-
sögðu er ég með hann í síman-
um, hann er svona „next level“
Candy Crush, alveg hrikalega
ávanabindandi.
Aukabúnaður
Ég er mikill matmaður og hef
ansi oft fengið spurninguna:
„Hvernig stendur á því að þú
ert ekki 300 kíló?“ Ég held ég
borði bara bókstaflega allt nema
skötu, hákarl og rauðkál. Ég er
alveg djús-sjúkur og drekk óeðli-
lega mikið af appelsínudjús og
fæ mér yfirleitt Fanta Orange
í staðinn fyrir Coke ef gos
er í boði. Ég held að það
sé ekki séns fyrir mig
að segja til um hver er
uppáhalds maturinn
minn, en svona topp
þrír yrði kjúklingur,
grjónagrautur og svo
gerir amma alveg
himneskt heitt slátur.
Ég klikka ekki á
að fá mér pítsu og
hamborgara um
helgar og auðvitað
fæ ég mér nammi
um helgar, annað er
bara algjört rugl. Ég
keyri um á rauðum
Volkswagen Golf sem
ég fékk mér í fyrra
og uppáhaldsstaður
eða borgin mín er New
York. Svo finnst mér mjög
gaman að komast til Spánar
líka, svona annað slagið.
Jóla
verð-
sprengJan
er hafin!
50%
grensásvegi 8 - sími 553 7300
Opið mán-fim 12–18, fös 12–19, lau 12–17
peYsUr, BUXUr, BOlir, leggings,
TOppar, KJólar, sKYrTUr,
TÖsKUr, sKarT Og fleira
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
FATNAÐI
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ, GERÐU
DÚNDUR KAUP FYRIR JóLIN
92 dægurmál Helgin 28.-30. nóvember 2014