Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 87
Við hvetjum allt
fólk sem hefur
áhuga á leik-
húsi og ekki síður
sannleikanum til
að koma á sýn-
inguna.
Góðar uppskriftir ganga kynslóð fram af kynslóð.
Minningin um uppáhaldskökuna sem amma bakaði
fylgir okkur alla tíð. Bragðið, lyktin úr ofninum ...
Kökurnar verða ljómandi með Ljóma.
Ljóma smjörlíki er eingöngu
framleitt úr jurtaolíum og án
transfitu.
Ljóminn á skilið
það lof sem hann fær
Taktu þátt í Ljómaleiknum á Facebook – Facebook.com/ljomasmjorliki
Glæsileg Kenwood hrærivél í verðlaun.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
36
0
Frumsýning nýtt íslenskt leikverk
hópsins, Tiny Guy. „Í því verki
átti ég að vera heilaskaddaður
og Friðgeiri fannst derhúfan
bara passa svo vel við þann
karakter. Það virkaði mjög vel.
Þetta var frekar lítið hlutverk
en ég er með stærra hlutverk í
þessari sýningu.“
Sláandi niðurstöður
Síðbúin rannsókn fjallar mann
sem er að gera heimildamynd
um sakamál Jóns Hreggviðs-
sonar úr Íslandsklukkunni
en auk Árna leika Friðgeir
Einarsson og Ragnar Ísleifur
Bragason í sýningunni. „Það er
svona verið að fara í saumana
á því hvort Jón hafi ekki bara
verið saklaus og minn karakter
er að gera tónlist við myndina.
Rannsóknin á málinu mið-
ast við að fá raunverulegar og
vísindalegar niðurstöður og
það á ýmislegt eftir að koma
á óvart, jafnvel vera sláandi,“
segir Árni. Hann segir meðlimi
hópsins, sem allir séu mjög
uppteknir menn og þurfi því að
æfa á nóttunni, verða tilbúna
með glæsilega sýningu um
helgina, þrátt fyrir annríki og
þreytu. „Við hvetjum allt fólk
sem hefur áhuga á leikhúsi og
ekki síður sannleikanum til að
koma á sýninguna.“
Síðbúin rannsókn er sýnd í
Bíó Paradís.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Árni Vilhjálmsson, tón-
listarmaður og meðlimur í FM-
Belfast, leikur tónlistarmann í
nýjustu hugarsmíð leikhópsins
Kriðpleirs, Síðbúinni rannsókn.
Hann hvetur alla til að koma
og sjá verkið í Bíó Paradís,
því þar verði kynntar nýjar og
sláandi niðurstöður er varða
sakamál Jóns Hreggviðssonar
úr Íslandsklukkunni.
J ólaþorpið er risið í 12 sinn í miðbæ Hafnarfjarðar. Í litlu jólahúsunum verður handverk og hönnun, fiskur og
fegurð, sultur og saft, gleði og glögg, kakó og
kandís og ýmislegt annað góðgæti.
Fjölbreytt skemmtidagskrá verður alla opn-
unardaga og má stóla á jólasveinana á milli
klukkan 14-16. Á laugardögum verða alvöru
úti-jólaböll klukkan 15 og svo er búist við að
Lína langsokkur, Pollapönkarar, Margrét Eir
og Páll Rósinkrans, jólaálfar Hafnarfjarðar,
Rauðhetta og fleiri reki inn nefið. Kynntu þér
heildardagskrá á www.hafnarfjordur.is og
á facebooksíðunni Jólaþorpið í Hafnarfirði.
Jólaþorpið er opið á aðventunni um helgar
frá klukkan 12-18
Jólaþorpið opnar um helgina
menning 87 Helgin 28.-30. nóvember 2014