Vísbending


Vísbending - 23.12.2013, Side 26

Vísbending - 23.12.2013, Side 26
26 Umræðan varð hins vegar ekki til eftir bankahrunið 2008. Í ritstjórnargrein Íslensks iðnaðar árið 2005 var sama mál reifað: „Spurningin sem við Íslendingar þurfum að spyrja okkur er þessi: Hvernig ætlum við að standa að því að auka hér verk- og tæknimenntun, efla rannsóknir og nýsköpunar- og þróunarstarf, tryggja aðgang okkar að erlendum mörkuðum til frambúðar og síðast en ekki síst að tryggja stöðugleika í verðlagi og gengisskráningu og eðlilegt vaxtastig? Þetta gerist ekki af sjálfu sér, en gerist það ekki, fara fyrirtækin annað. Því miður fara þau bestu fyrst. Þau eru mörg þegar með starfsemi erlendis og eiga auðveldast með að fara. Þá breytist útrásin í flótta.“ Sprotafyrirtæki til sölu Umræðan að undanförnu hefur snúist að miklu leyti um ný og ört vaxandi nýsköpunarfyrirtæki, sem oft eru kölluð sprotafyrirtæki á Íslandi. Sömu áhyggjur hafa þó einnig komið fram í sambandi við fyrrum sprotafyrirtæki eins og Össur, Marel og Actavis. Þessi fyrirtæki eru komin langan veg í vaxtarferlinu og eru orðin stórfyrirtæki með alþjóðlega starfsemi, á meðan sprotafyrirtæki eiga mest af leiðinni enn fyrir höndum. Nokkur af þessum sprotafyrirtækjum hafa verið seld til erlendra fjárfesta undanfarin misseri, eins og Hafmynd (Gavia), Marorka, Betware og Clara. Fleiri F yrir nokkrum árum bauð ég stærsta fjárfestingarsjóði Evrópu í heimsókn til Íslands í tengslum við ráðstefnu fyrir sprotafyrirtæki. Skipulögð var dagskrá fyrir framkvæmdastjórann, m.a. fundað með lykilaðilum í fjármálaráðuneytinu. Fundurinn í ráðuneytinu fór fljótlega að snúast um vandamálið við að íslenskt fyrirtæki væru keypt af erlendum aðilum. Þetta var að sjálfsögðu mjög undarleg umræða fyrir framkvæmdastjóra evrópska fjárfestingarsjóðsins. Ef hann hafði einhvern áhuga á Íslandi tókst að draga mikið úr honum á þessum fundi. Hins vegar er ekki svo að þetta áhyggjuefni einskorðist við fjármálaráðuneytið. Svipaðar áhyggjur hafa verið viðraðar víða á fundum, jafnvel á fundum Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs. Spurning er hversu alvarlegt mál „flótti“ íslenskra fyrirtækja er. Flóttinn Umræðan um flótta íslenskra sprotafyrirtækja hefur skotið upp kollinum nokkrum sinnum á þessu ári og iðnaðar- og við- skiptaráðherra sagði á ráðstefnu Sprotaþings Íslands í október: „Mér finnst sárt að sjá á eftir svona fyrirtækjum til útlanda.“ Áður hafði formaður Samtaka iðnaðarins fjallað um þetta: „Þessari þróun þarf að snúa við - við höfum þegar tapað allt of mörgum fyrirtækjum og allt of mörgum dýrmætum einstaklingum úr landi.“ FLÓTTI Eða SIguR? umræðan um „flótta“ fyrirtækja frá Íslandi, hvort sem er fyrir bankahrunið eða eftir það, hefur að mestu leyti snúist um aðstæður. það má til sanns vegar færa að það eru ekki kjöraðstæður fyrir uppvöxt nýrra fyrirtækja á Íslandi og margt sem betur mætti fara: gjaldeyrismál (gjaldeyrishöft), efnahagsmál (stöðugleiki), fjármál (fjármögnun), menntamál (þekkingarstarfsmenn), markaðsmál (markaðsaðgengi) eru fáein dæmi um atriði sem tengjast bættum aðstæðum fyrir íslensk fyrirtæki. Spurningin er samt hvort umræðan einkennist af þröngsýni? EYþÓR ÍVaR JÓNSSON VIðSKIPTaFRæðINguR Íslensk sprotafyrirtæki til sölu

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.