Skessuhorn - 23.11.2011, Blaðsíða 53
G L E Ð J U M M E Ð G Æ Ð U M • V E R S L U N I N M O D E L · A K R A N E S I
Fjölmargir viðskiptavinir verslunarinnar Models
á Akranesi, eru þeirrar skoðunar að hún sé ein
glæsilegasta verslun sinnar tegundar á landinu.
Stofnendur og aðaleigendur Módels frá upphafi eru
hjónin Guðni Tryggvason og Hlín Sigurðardóttir.
Verslunin var lengi vel við Stillholtið en í byrjun
kreppunnar margumræddu í nóvember 2008
flutti hún í nýtt og glæsilegt 800 fermetra húsnæði
að Þjóðbraut 1. Í aðdraganda þess hafði aðalsam-
starfsaðilinn frá upphafi Bræðurnir Ormsson gerst
meðeigendi í fyrirtækinu.
Guðni segir að það sé kannski táknrænt fyrir það
orðspor sem fer af Módel að þegar erlendir við-
skiptaaðilar komi í heimsókn til birgja verslunarinn-
ar, þá komi þeir gjarnan í heimsókn á Akranes í
Model. „Við erum stolt af því og drögum ekkert úr
því að við séum flottust,“ segir Guðni í Model.
Margar nýjungar
Módel er ekki aðeins í smásölu, heldur einnig í
innflutningi og heildsölu. Verslunin er nú að hefja
innflutning á gjafavöru og búsáhöldum. „Markmiðið
er að það komi fram í vöruverði að við flytjum sjálf
þessa vöru inn og viðskiptavinurinn geri hagkvæm
kaup,“ segir Guðni. Hann nefnir líka meðal nýjunga
sápur og húðkrem sem Módel flytur inn og dreifir í
öll helstu apótek og lyfjaverslanir landsins.
Einn stærsti þáttur í vöruframboði Models eru
stór og smá heimilistæki frá Ormsson og flatskjáir frá
hinu þekkta vörumerki Samsung, sem í dag er stærsti
raftækjaframleiðandi heims.
Þá hefur Model verið öflugur seljandi eldhús-
innréttinga frá hinum vinsælu og vönduðu dönsku
framleiðendum HTH.
„Svo má ekki gleyma blómunum. Við erum með
lærðan blómaskreyti og garðyrkjufræðing,“ segir
Guðni enda leynir ilmurinn sér ekki þegar komið er
inn í verslunina.
Módel er stærsti umboðaaðili Vodafone á Íslandi.
Einnig fást verðlaunagripir í úrvali fyrir allar íþrótta-
greinar og Módel áletrar á þá, enda með mjög
fullkomnar áletrunarvélar.
„Einkunnarorðin okkar hafa verið Gleðjum með
gæðum“ segir Guðni. Það sem einkennir hina stóru
verslun Models er gríðarlega fjölbreytt vöruúrval.
Einhver athugull viðskipavinur benti á að þar fengist
allt frá salernispappír upp í demantshring. En
framboð á skartgripum í Model, er eitt af því sem
eigendurnir eru hvað stoltust af.
Gjafavöru-, skartgripa-, og
heimilistækjaverslun í fremstu röð
„Við erum stolt af því og drögum
ekkert úr því að við séum flottust“
– segir Guðni í Model.