Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2011, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 19.05.2011, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 19. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 7 BRJÁLUÐ TILBOÐ í Húsasmiðjunni 39.900,- 15% AFSLÁTTUR af öllum rafma gns- og bensín- hekkklippum 24.995 34.995 þÚ SPARAR 10.000,- 12.900 16.900 þÚ SPARAR 4.000,- Gasgrill Sunset Tasman 200. Grillflötur 500x358mm Hlíf yfir brennara. 3000391 Reiðhjól Unica 26” • 18" stell úr álblöndu 6061 • 21 gíra Shimano Revoshift • Dempari að framan 3899978 Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana. Rafmagnssláttuvél GR3800 B&D, 1600W, 38 cm sláttubreidd. 5 hæðarstillingar, 45 ltr. safnari. 5085135 SNÆ DRÍFA 1.190kr 1.5 49 LÓBELÍA 899kr 1.149 Í dag fór í loftið nýr og endur-bættur vefur Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is, sem er nú alfarið kominn í heimabyggð. Að endurbótunum koma fjögur fyrirtæki sem öll eru af Suður- nesjum en þau eru Kosmos & Kaos, Netsamskipti, Dacoda og Ýmir Mobile. Samstarfið hefur tekist ein- staklega vel og eru vonir bundnar við að efla það enn frekar á þessum vettvangi. Nýtt útlit vefsins miðar að því að gera hann notendavænni og auð- velda aðgang að upplýsingum auk þess sem magn og fjölbreytni upp- lýsinga hefur verið aukið. Má þar nefna betri tengingu við samfélags- miðla, upplýsingar um þjónustu á korti og ítarlegra viðburðadagatal. Að auki er áhersla lögð á að sam- ræma betur kostnað við rekstur vefsetra Reykjanesbæjar og ná fram hagræðingu í hýsingu þeirra og þjónustu. Kosmos & Kaos – markaðssetning á netinu, þróun og viðhald vefja með áherslu á framúrskarandi hönnun og samfélagsmiðla Kosmos & Kaos hafa tekið að sér framtíðarþróun vefsins en þeir eru ungt fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðssetningu á netinu, þróun og viðhaldi vefja sem og ráðgjöf með sérstaka áherslu á framúrskar- andi hönnun og samfélagsmiðla. Meðal nýlegra verkefna Kosmos & Kaos má nefna stjornlagarad. is, vodafone.is og gitargrip.is sem hlaut Íslensku vefverðlaunin 2010 í flokki afþreyingarvefja. Að auki hefur Kosmos & Kaos unnið með Keili að markaðssetningu náms- brauta og hafa umsjón með þróun á vef Ásbrúar. Vinna Kosmos & Kaos hefur hlotið verðskuldaða athygli ›› Fjögur fyrirtæki af Suðurnesjum taka höndum saman: Vefur Reykjanesbæjar kominn í heimabyggð í erlendum fagtímaritum fyrir ný- stárlega nálgun í vefhönnun sem hefur laðað að fyrirtæki allt frá Sví- þjóð, Lúxemborg og San Francisco svo eitthvað sé nefnt. „Við höfum haft að leiðarljósi í allri hönnun að virkja íbúa til þátttöku. Upplýsingflæði í dag á ekki að vera einstefna frá bæjarfélagi til íbúa. Við reynum að stuðla að þátttöku íbúa og gera fólki auðvelt að deila upplýsingum og viðburðum. Við viljum læra af íbúum, lofa þeim að taka þátt og móta vefinn með okkur. Umfangsmikill vefur fyrir bæjarfélag verður í raun aldrei tilbúinn. Núverandi útgáfa af vef Reykjanesbæjar er byrjun á ferða- lagi sem við hlökkum til að fara í með bæjarbúum og því frábæra starfsfólki sem vinnur hjá Reykja- nesbæ,“ segir Guðmundur Bjarni Sigurðsson annar eigenda Kosmos & Kaos. Dacoda – nýtt vefumsjónarkerfi Vefur Reykjanesbæjar er sá fyrsti sem fer í nýtt vefumsjónarkerfi hu g bú na ð ar- o g r á ð g j a f ar- fyrirækisins Dacoda sem hefur sérþekkingu á upplýsingatækni og þróun veflausna fyrir innlendan og erlendan markað. Hjá Dacoda starfar fagfólk á öllum sviðum hug- búnaðargerðar, ráðgjafar og upp- lýsingatækni. Starfsfólkið býr yfir haldgóðri þekkingu á vefumhverf- inu, hvort sem um ræðir forritun, þarfagreiningu, útlitshönnun eða upplýsingaöflun. Netsamskipti – hagræðing í hýsingu á einum stað Vefurinn verður hýstur hjá Net- samskiptum sem er eitt elsta inter- netþjónustufyrirtæki landsins sem á rætur að rekja til 1994. Netsam- skipti fagna 10 ára afmæli á þessu ári og hafa vaxið mikið síðustu misseri eftir að þeir fóru að bjóða hýsingar og internettengingar á mjög hagstæðum verðum bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga um land allt. Vonir standa til að ná fram frekari hagræðingu í hýsingu á vefsetrum Reykjanesbæjar t.a.m. hjá leik- og grunnskólum með því að sameina hana á einni hendi hjá fyrirtækinu. Ýmir Mobile – kortalausn fyrir vef og farsíma Að auki nýtir vefurinn hug- búnaðarlausn frá öðru ungu fyrir- tæki frá Suðurnesjum, Ými Mobile, sem sérhæfir sig í hugbúnaði fyrir farsíma. Fyrirtækið hefur meðal annars birt dagskrá bæjarhátíða s.s. Ljósanætur og Menningarnætur í Reykjavík í farsíma og á vef. Ýmir Mobile leggur til kortalausn fyrir vefinn sem býður upp á fjölbreytta möguleika í miðlun upplýsinga fyrir íbúa og gesti. Reykjanesbær hyggst nýta sér þessa þjónustu enn frekar við miðlun á upplýsingum til ferðamanna. „Þessi samvinna hefur verið ein- staklega ánægjuleg og jákvætt að vinna með fyrirtækjum í heima- byggð sem virðast blómstra í þessu árferði. Þessi fyrirtæki eru að skapa störf og bera þess merki að tækni og skapandi greinar eru í sókn í Reykjanesbæ,“ segir Dagný Gísla- dóttir verkefnastjóri.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.