Víkurfréttir - 19.05.2011, Blaðsíða 9
Fimmtudagurinn 19. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 9
hár og rósir
Freyja Sigurðardóttir
150 ára afmæli Útskálakirkju fagnað
Teikningarnar sem Margrét
sýnir í Suðsuðvestur
voru dregnar upp á
meðan á vinnusto-
fudvöl hennar stóð
í L au ren z Hau s
Stiftung í Basel í
Sviss veturinn 2010
- 2011. Margrét hefur útbúið sér-
staka umgjörð um teikningarnar
sem eru allar í sömu stærð, eins
konar hulstur, og er hverri teikn-
ingu rennt inn um rifu á kant-
inum á gegnsæjum kassa. Hver
teikning verður þannig að þrí-
víðum hlut sem er ýmist stillt
upp á gólfi eða hengdur á vegg.
Með nafnagiftinni, Slíður, má
lesa framsetninguna sem svo að
Margrét hafi slíðrað verkin um
sinn, að þau séu í hvíld að loknum
átökum.
Teikningarnar vega salt í togstreitu
á milli umhverfisins og sjálfs sín og
eru nú slíðraðar í nokkurs konar
vopnahléi. Þótt Margrét kunni
í heiti sýningarinnar að gefa til
kynna átök listarinnar við að fanga
umhverfi sitt vísar hugtakið slíður
einnig til hvíldar og verndar enda
notað um himnu sem hjúpar ný-
græðing. Teikningarnar eru unnar
af mikilli varfærni og
alúð og veitir ekki af
skjóli í umgjörð sýn-
ingarkassanna.
Margrét H. Blöndal
er fædd árið 1970
í Reykjavík. Hún
lærði í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands
og að auki í Mason Gross School of
Arts í Rutgers háskólanum í New
Jersey í Bandaríkjunum þaðan sem
hún útskrifaðist árið 1997. Hún
hefur undanfarin ár haldið einka-
sýningar í Listasafni Reykjavíkur,
Fort Worth Contemporary Arts í
Texas í Bandaríkjunum, Mother´s
Tankstation í Dublin á Írlandi og
í galleríi Nicolas Krupp í Basel í
Sviss. Margrét átti verk á hinni al-
þjóðlegu stórsýningu Manifasta 7
á Ítalíu árið 2008 og var tilnefnd til
Sjónlistaverðlaunanna sama ár.
Þess má geta að Margrét sýnir
Slíður (the heart is a lonley hunter)
á 6. Momentum tvíæringnum í
Moss í Noregi í sumar.
Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22, í
Reykjanesbæ.
Opið um helgar frá kl. 2-5 og eftir
samkomulagi í síma; 662 8785
www.sudsudvestur.is
›› Menningarlífið á Suðurnesjum:
Ný sýning opnar
í Suðsuðvestur
Slíður (the heart is a lonely hunter)
Margrét H. Blöndal sýnir í Suðsuðvestur
Föstudagurinn 20. maí
18:30 Garðakórinn, kór aldraðra úr Garðabæ, heldur stutta tónleika í Útskálakirkju. Kórinn er á ferðinni um
Suðurnes og heimsækir Útskála í tilefni afmælisins.
Laugardagur 21. maí - Útskáladagurinn
09:30 Rútuferð frá Útskálum að Keflavíkurkirkju og Hvalsneskirkju.
10:00 Gönguferð fré Hvalsneskirju að Útskálakirkju. Leiðsögumaður Reynir Sveinsson.
10:00 Gönguferð fré Hvalsneskirju að Útskálakirkju. Leiðsögumaður Sr. Sigfús B. Ingvason
12:30 - 13:00 Göngumenn koma að Útskálum. Vöfflukaffi í Útskálahúsinu.
12:00 - 17:00 Myndasýning í Útskálahúsinu . Málverk, ljósmyndir og videó af Útskálum frá ólíkum tíma eftir
ýmsa listamenn. Ýmsir munir einnig til sýnis.
Sunnudagur 22. maí - Afmælishátíðin
11:00 Messa í Útskálakirkju. Útvarpað á Rás 1 Félagar úr kórnum Útskála- og Hvalsnessókna syngja. Barnakór
Garðs syngur undir stjórn Vitor Hugo Euginio, trompetleikur Áki Ásgeirsson, organisti og kórstjóri er Steinar
Guðmundsson. Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt Hr. Karli Sigurbjörnssyni
biskubi Íslands. Sr. Gunnar Kristjánsson prófastur les ritningarlestra.
12:00 Veitingar og fjölskylduvæn hátíðardagskrá í Miðgarði, sal Gerðaskóla. Meðal dagskráliða er sýning 4.
bekkinga á söngleiknum Síðustu dagar Jesú í leikstjórn Önnu Elísabetar Gestsdóttur og Erlu Ásmundsdóttur.
Tónlistaratriði verður frá tónlistarskólanum. Barnakór Garðs syngur og sr. Gunnar Kristjánsson og hr. Karl
Sigurbjörnsson flytja ávarp. Kynnir er Jón Hjálmarsson.
10:00 - 11:00 og 14:00 - 17:00 myndasýning opin í Útskálahúsinu.
Útskálakirkja fagnar 150 ára afmæli um þessar mundir og verður tímamótanna minnst um
helgina með dagskrá bæði laugardag og sunnudag.
Biskup Íslands mun þjóna fyrir altari á sunnudag
í Útskálakirkju, auk þess sem boðið verður til
afmælishátíðar í Miðgarði. Á laugardag er hins
vegar Útskáladagurinn og þá verður m.a. boðið
upp á vöfflur að Útskálum. Dagskrá helgarinnar
er hér að neðan. Nánar verður fjallað um afmæli
Útskálakirkju í næsta blaði og birt viðtal við séra
Sigurð Grétar Sigurðsson Útskálaprest.