Víkurfréttir - 19.05.2011, Síða 7
Fimmtudagurinn 19. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 7
BRJÁLUÐ
TILBOÐ
í Húsasmiðjunni
39.900,-
15%
AFSLÁTTUR
af öllum rafma
gns-
og bensín-
hekkklippum
24.995
34.995
þÚ SPARAR
10.000,-
12.900
16.900
þÚ SPARAR
4.000,-
Gasgrill
Sunset Tasman 200.
Grillflötur 500x358mm
Hlíf yfir brennara.
3000391
Reiðhjól Unica 26”
• 18" stell úr álblöndu 6061
• 21 gíra Shimano Revoshift
• Dempari að framan
3899978
Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl.
Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
Rafmagnssláttuvél GR3800
B&D, 1600W, 38 cm sláttubreidd.
5 hæðarstillingar, 45 ltr. safnari.
5085135
SNÆ
DRÍFA
1.190kr
1.5
49
LÓBELÍA
899kr
1.149
Í dag fór í loftið nýr og endur-bættur vefur Reykjanesbæjar,
reykjanesbaer.is, sem er nú alfarið
kominn í heimabyggð.
Að endurbótunum koma fjögur
fyrirtæki sem öll eru af Suður-
nesjum en þau eru Kosmos & Kaos,
Netsamskipti, Dacoda og Ýmir
Mobile. Samstarfið hefur tekist ein-
staklega vel og eru vonir bundnar
við að efla það enn frekar á þessum
vettvangi.
Nýtt útlit vefsins miðar að því að
gera hann notendavænni og auð-
velda aðgang að upplýsingum auk
þess sem magn og fjölbreytni upp-
lýsinga hefur verið aukið. Má þar
nefna betri tengingu við samfélags-
miðla, upplýsingar um þjónustu á
korti og ítarlegra viðburðadagatal.
Að auki er áhersla lögð á að sam-
ræma betur kostnað við rekstur
vefsetra Reykjanesbæjar og ná fram
hagræðingu í hýsingu þeirra og
þjónustu.
Kosmos & Kaos
– markaðssetning á netinu,
þróun og viðhald vefja með
áherslu á framúrskarandi
hönnun og samfélagsmiðla
Kosmos & Kaos hafa tekið að sér
framtíðarþróun vefsins en þeir eru
ungt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
markaðssetningu á netinu, þróun
og viðhaldi vefja sem og ráðgjöf
með sérstaka áherslu á framúrskar-
andi hönnun og samfélagsmiðla.
Meðal nýlegra verkefna Kosmos
& Kaos má nefna stjornlagarad.
is, vodafone.is og gitargrip.is sem
hlaut Íslensku vefverðlaunin 2010
í flokki afþreyingarvefja. Að auki
hefur Kosmos & Kaos unnið með
Keili að markaðssetningu náms-
brauta og hafa umsjón með þróun á
vef Ásbrúar. Vinna Kosmos & Kaos
hefur hlotið verðskuldaða athygli
›› Fjögur fyrirtæki af Suðurnesjum taka höndum saman:
Vefur Reykjanesbæjar kominn í heimabyggð
í erlendum fagtímaritum fyrir ný-
stárlega nálgun í vefhönnun sem
hefur laðað að fyrirtæki allt frá Sví-
þjóð, Lúxemborg og San Francisco
svo eitthvað sé nefnt.
„Við höfum haft að leiðarljósi í allri
hönnun að virkja íbúa til þátttöku.
Upplýsingflæði í dag á ekki að vera
einstefna frá bæjarfélagi til íbúa.
Við reynum að stuðla að þátttöku
íbúa og gera fólki auðvelt að deila
upplýsingum og viðburðum. Við
viljum læra af íbúum, lofa þeim
að taka þátt og móta vefinn með
okkur. Umfangsmikill vefur fyrir
bæjarfélag verður í raun aldrei
tilbúinn. Núverandi útgáfa af vef
Reykjanesbæjar er byrjun á ferða-
lagi sem við hlökkum til að fara í
með bæjarbúum og því frábæra
starfsfólki sem vinnur hjá Reykja-
nesbæ,“ segir Guðmundur Bjarni
Sigurðsson annar eigenda Kosmos
& Kaos.
Dacoda
– nýtt vefumsjónarkerfi
Vefur Reykjanesbæjar er sá fyrsti
sem fer í nýtt vefumsjónarkerfi
hu g bú na ð ar- o g r á ð g j a f ar-
fyrirækisins Dacoda sem hefur
sérþekkingu á upplýsingatækni og
þróun veflausna fyrir innlendan
og erlendan markað. Hjá Dacoda
starfar fagfólk á öllum sviðum hug-
búnaðargerðar, ráðgjafar og upp-
lýsingatækni. Starfsfólkið býr yfir
haldgóðri þekkingu á vefumhverf-
inu, hvort sem um ræðir forritun,
þarfagreiningu, útlitshönnun eða
upplýsingaöflun.
Netsamskipti
– hagræðing í hýsingu
á einum stað
Vefurinn verður hýstur hjá Net-
samskiptum sem er eitt elsta inter-
netþjónustufyrirtæki landsins sem
á rætur að rekja til 1994. Netsam-
skipti fagna 10 ára afmæli á þessu
ári og hafa vaxið mikið síðustu
misseri eftir að þeir fóru að bjóða
hýsingar og internettengingar á
mjög hagstæðum verðum bæði
fyrir fyrirtæki og einstaklinga um
land allt.
Vonir standa til að ná fram frekari
hagræðingu í hýsingu á vefsetrum
Reykjanesbæjar t.a.m. hjá leik- og
grunnskólum með því að sameina
hana á einni hendi hjá fyrirtækinu.
Ýmir Mobile
– kortalausn fyrir
vef og farsíma
Að auki nýtir vefurinn hug-
búnaðarlausn frá öðru ungu fyrir-
tæki frá Suðurnesjum, Ými Mobile,
sem sérhæfir sig í hugbúnaði fyrir
farsíma. Fyrirtækið hefur meðal
annars birt dagskrá bæjarhátíða s.s.
Ljósanætur og Menningarnætur í
Reykjavík í farsíma og á vef. Ýmir
Mobile leggur til kortalausn fyrir
vefinn sem býður upp á fjölbreytta
möguleika í miðlun upplýsinga
fyrir íbúa og gesti. Reykjanesbær
hyggst nýta sér þessa þjónustu enn
frekar við miðlun á upplýsingum til
ferðamanna.
„Þessi samvinna hefur verið ein-
staklega ánægjuleg og jákvætt að
vinna með fyrirtækjum í heima-
byggð sem virðast blómstra í þessu
árferði. Þessi fyrirtæki eru að skapa
störf og bera þess merki að tækni
og skapandi greinar eru í sókn í
Reykjanesbæ,“ segir Dagný Gísla-
dóttir verkefnastjóri.