Víkurfréttir - 19.05.2011, Page 15
Fimmtudagurinn 19. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 15
Bláa Lónið
leitar að framúrskarandi starfsfólki
Bláa Lónið er helsta aðdráttarafl íslenskrar ferðaþjónustu og munu
starfsmenn fyrirtækisins taka á móti 450.000 gestum á þessu ári. Innan
raða fyrirtækisins starfa framúrskarandi starfsmenn sem búa yfir mikilli
hæfni í mannlegum samskiptum, eru agaðir og fágaðir í framkomu
og sinna starfi sínu af mikilli samviskusemi. Bláa Lónið er reyklaus
vinnustaður.
Við leggjum ríka áherslu á upplifun gesta okkar, gæði þjónustunnar
og umhverfisins. Framtíðin er björt og því leitum við að öflugum liðs-
mönnum sem búa yfir eftirtöldum eiginleikum sem einkenna starfsfólkið
okkar:
Hafa brennandi áhuga á starfsemi Bláa Lónsins og ferðaþjónustu
Hafa ríka þjónustulund
Búa yfir góðri enskukunnáttu, önnur tungumál mikill kostur
Eru samviskusamir, stundvísir og sýna frumkvæði
Geta tileinkað sér þá gæða- og öryggisstaðla sem við vinnum eftir
Aðstoðarmóttökustjóri
Um framtíðarstarf er að ræða. Aðstoðarmóttökustjóri eru staðgengill móttökustjóra
og sinnir daglegri stjórnun á baðstað. Um er að ræða vaktavinnu.
Snyrtifræðingar
Mikil ásókn er í Blue Lagoon spa meðferðir og því leitum við að snyrtifræðingum
til að veita meðferðir í Bláa Lóninu og hjá Blue Lagoon Spa í Hreyfingu.
Vinnutími og vaktafyrirkomulag er samkomulagsatriði. Bíll skilyrði.
Matreiðslunemi
Við leitum að metnaðarfullum matreiðslunema til að starfa í hópi landsliðs
matreiðslumanna á veitingastað okkar, Lava.
Næturvörður
Næturverðir sinna almennu viðhaldi og þrifum auk gæslu. Unnið er á vöktum.
Sumarstarfsfólk
Enn á eftir að ráða nokkra sumarstarfsmenn. Miðað er við 19 ára lágmarksaldur.
Nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna Oddsdóttir mannauðs- og
gæðastjóri Bláa Lónsins í síma 420-8800 eða í netfangi
helga@bluelagoon.is.
Umsóknarfrestur er til 29. maí 2011 og eru
umsækjendur beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins;
www.bluelagoon.is/Umfyrirtaekid/Atvinna/Atvinnuumsokn/.
Öllum umsóknum verður svarað.
Föstudaginn 29. apríl síðastliðinn lauk raunfærnimati í skrifstofu-greinum hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Verkefnið var
unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fagráð verslunar-
og þjónustugreina, Mími – símenntun og Menntaskólann í Kópavogi
(MK). Það var 22 manna hópur bæði frá höfuðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum sem fór í gegnum matið. Metið var í samræmi við Skrif-
stofubraut 1 í MK. Þátttakendur fengu að meðaltali 15 einingar af 32
einingum metnar af brautinni, sumir meira og aðrir minna.
Þátttakendur höfðu meðal annars reynslu af skrifstofustörfum, voru jafn-
vel búnir að ljúka einingum úr framhaldsskóla og/eða vinna sjálfstætt í
bókhaldi. Mat á raunfærni byggist á þeirri hugmynd að nám fari ekki ein-
göngu fram innan formlega skólakerfisins heldur við allskonar aðstæður
og í allskonar samhengi.
Með mati á raunfærni fær fullorðið fólk á vinnumarkaði aukna möguleika
á að sækja sér menntun og þjálfun til að auka færni sína. Helsti ávinningur
einstaklinganna er að fá ný tækifæri til að styrkja sig í námi og starfi. Mat
á raunfærni getur verið hvati fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði, í hinum
ýmsu starfsgreinum, til að ljúka formlegu námi.
Niðurstaðan úr þessu verkefni sýndi einmitt fram á það. Níu konur af
Suðurnesjum tóku þátt í matinu og fengu þær 17 einingar metnar að
meðaltali. Þær hafa flestallar skráð sig í fjarnám í haust til að ljúka þeim
einingum sem eftir eru af Skrifstofubraut 1. Þær geta síðan haldið áfram á
Skrifstofubraut 2 í framhaldinu. Margir af nemendum Skrifstofubrautar-
innar hafa í gegnum tíðina fengið aukin atvinnutækifæri í kjölfar námsins.
Þetta er hagnýtt nám sem nýtist beint til starfa.
Miðstöð símenntunar mun í janúar 2012 bjóða aftur upp á raunfærnimat
í skrifstofugreinum og geta áhugasamir einstaklingar með reynslu af skrif-
stofustörfum haft samband við Jónínu Magnúsdóttur, náms- og starfsráð-
gjafa hjá MSS – jonina@mss.is/4125958.
Jónína Magnúsdóttir
Náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri raunfærni-
mats í skrifstofugreinum fyrir hönd MSS.
Guðmunda L. Guðmundsdóttir af Suðurnesjum tekur hér við viðurkenningu. Hún
hafði þetta að segja um verkefnið: Ég hef lengi verið að velta fyrir mér hvaða
menntun ég gæti bætt við mig sem myndi nýtast mér vel á vinnumarkaði, án þess
að fara í háskóla. Ég var svolítið óörugg að fara í raunfærnimatið. En komst að því
að það var óþarfi. Ég fékk góðan stuðning frá þeim sem stóðu að verkefninu. Í haust
ætla ég að fara í MK og klára þau fög sem ég á eftir af Skrifstofubraut 1.
Raunfærnimat
í skrifstofugreinum
– hver er ávinningurinn?
Þátttakendur af Reykjavíkursvæðinu og Suðurnesjum fögnuðu áfanga sínum
við athöfn í Menntaskólanum í Kópavogi 29. apríl sl.
Vélsmiðja Grindavíkur óskar eftir að
ráða bifvélavirkjameistara
Óskar eftir að ráða vélvirkja eða menn vana
smiðjuvinnu sem geta starfað sjálfstætt.
Um framtíðarvinnu er að ræða.
Upplýsingar í síma 8936840.
ATVINNA
GARÐAÚÐUN
SUÐURNESJA
822 3577, 421 4870,
699 5571 og 421 5571
netfang: bvikingur@visir.is
Úðum m.a. gegn roðamaur og kóngulóm!
Björn Víkingur: 822 3577, Elín: 699 5571
Síminn er 421 0000