Víkurfréttir - 19.05.2011, Page 18
18 Fimmtudagurinn 19. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
Grindavík
Hraustir drengir úr 7. bekk Grunnskóla Grindavíkur
fóru í síðustu viku út á sjó með
kennara sínum. Það var áhöfnin
á Árna í Teigi sem bauð þeim að
koma með í túr og tók hún vel
á móti þeim. Drengirnir fengu
að taka þátt í allri vinnu sem
fram fer um borð. Þessir ungu
herramenn voru mættir niður
á bryggju klukkan sjö tilbúnir
í slaginn. Þeir ætla sér allir að
verða sjómenn í framtíðinni.
Í upphafi ferðar var farið með bæn
aftur á dekki. Drengirnir leiddust í
hring og skipstjórinn kyrjaði bæn
um fiska og fugla. Þetta var að
sjálfsögðu hrekkur og var mikið
hlegið eftir bænastundina. Dreng-
irnir voru hörku duglegir, ældu í
sjóinn, þurrkuðu sér síðan bara
um munninn og héldu áfram að
vinna! Það var stoltur kennari sem
kom í land með þessa dugnaðar-
forka. Þessi vel heppnaða sjóferð
sýnir sannarlega hvað verknám er
mikilvægur partur af skólastarfi í
Grindavík. Þarna kynntust dreng-
irnir aðal atvinnugrein Íslendinga
og draumastarfinu.
Hraustir sjómenn úr
Grunnskóla Grindavíkur
Þann 24. mars sl. voru liðin 80 ár síðan Björgunarsveitin
Þorbjörn bjargaði 38 manna
áhöfn togarans Cap Fagnet
undan Hraunsfjöru. Þá var flug-
línutæki fyrst notað til björgunar
hér á landi. Síðasta laugardag
fóru nokkrir félagar í Þorbirni
ásamt köfurum árla morguns að
Hraunsfjöru að flaki Cap Fagnet
og náðu þar tveimur ankerum sem
þeir komu með að landi. Ankerin
komust því á þurrt land eftir 80
ára volk í sjónum en voru merki-
lega heilleg að sjá. Heimasíða
Grindavíkurbæjar var á staðnum
og skjalfesti atburðinn.
Að sögn björgunarsveitarmanna
gekk ferðin nokkuð vel þótt ekki
hafi tekist að ná einnig upp aðalsk-
rúfu Cap Fagnet eins og til stóð.
Farið var á fjöru með flottank og
ankerin fest í hann. Þegar flæddi
að og sjávarborð tók að hækka
losnuðu ankerin frá botninum og
síðan var flottankurinn dreginn inn
í Grindavíkurhöfn með ankerin í
eftirdragi. Ankerin voru svo hífð
upp á bryggju og gekk allt eins og
í sögu.
Björgunarsveitarmenn halda að
enn sé a.m.k. eitt ankeri í viðbót
í flakinu ásamt aðalskrúfunni.
Ætla þeir að fara í nýjan leiðangur
í sumar til þess að freista þess að
ná aðalskrúfunni í land en talið er
að skrúfan sem náðist úr skipinu
1998 hafi verið varaskrúfan en hún
er til sýnis fyrir utan höfuðstöðvar
Þorbjarnar.
Aðfaranótt 24. mars 1931 strandaði
franski síðutogarinn Cap Fagnet á
Hraunsfjörum austan Grindavíkur.
Um borð var 38 manna áhöfn.
Slæmt veður var þegar togarinn
strandaði og ljóst að ekki væri unnt
að yfirgefa skipið á björgunarbátum
togarans.
Slysavarnadeildin Þorbjörn í
Grindavík, sem stofnuð hafði verið
tæpum fimm mánuðum áður,
brást skjótt við og tókst að bjarga
allri áhöfn togarans með hinum
nýja björgunarbúnaði. Björgunin
markaði ákveðin tímamót og færði
mönnum heim sannindi þess
hversu öflug björgunartæki flug-
línutækin voru og flýtti mjög fyrir
útbreiðslu þeirra. Alls eiga vel á
þriðja þúsund íslenskir og erlendir
sjómenn fluglínutækjunum og
björgunarsveitum á Íslandi líf sitt
að launa.
Á land eftir 80 ára
legu í sænum
›› Drengir úr 7. bekk Grunnskóla Grindavíkur fóru á sjóinn:
TE
XT
I &
M
YN
D
IR
ÞO
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
SS
O
N
TE
XT
I &
M
YN
D
IR
G
RU
N
N
SK
Ó
LI
G
RI
N
DA
VÍ
KU
R