Víkurfréttir - 03.11.2011, Side 29
29VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 3. nÓVeMber 2011
Hinn knái verslunarmaður í Sport-
búð Óskars fékk veiðidelluna þegar
hann hætti í fótboltanum en hann
lék í mörg ár með Keflvíkingum og
þótti snjall bakvörður. „Stangveiðin
er geysi skemmtileg, útiveran í ís-
lenskri náttúru, félagsskapurinn
og veiðimennskan,“ segir Óskar
þegar við spyrjum hann út í veiði-
áhugann. Óskar hefur á tuttugu
og fimm árum veitt marga laxa og
sjóbirtinga en hann getur státað af
því að hafa veitt tvo tuttugu pund-
ara í Hallanda en Stangveiðifélag
Keflavíkur var lengi með veiðileyfi
þar. Fyrstu fiskana veiddi Óskar í
Iðu fyrir mörgum árum síðan.
En meira um flottu haustveiðina
hjá Óskari. Hann fór með þremur
félögum sínum, þeim Guðmundi
Hreinssyni, Sigurjóni Héðinssyni
og Guðjóni Ívarssyni, í Grenlæk,
svæði 4 sem nefnist Flóðið, en áin er
á Suðausturlandi eins og margar ár
sem félagið býður upp á. „Í Grenlæk
gerast ævintýrin,“ segir Óskar en
dagana 18.-20 sept. sl. veiddu þeir
félagar 28 bjarta sjóbirtinga, 3-6
punda, grálúsuga fiska. Þeir lentu í
ágætu veðri en þó vel blautu og það
var rigningin sem hjálpaði veru-
lega til í þessari miklu veiði. „Ég
myndi ráðleggja fólki að tryggja sér
veiði í Grenlæknum. Hún kostar
ekki nema 6-13 þús. kr. daginn og
er hverrar krónu virði. Auðvitað
er það mikill bónus þegar maður
lendir í svona miklu fjöri eins og
gerðist hjá okkur núna. Það er veitt
á 4 stangir frá 7. maí til 20. okt. svo
veiðitíminn er langur. Í Grenlæk er
hægt að fá urriða og stórar bleikjur
á sumrin en sjóbirting á haustin.
Aðstæður eru fínar og gott veiðihús
með heitum potti“. Fiskarnir komu
flestir á spún en einnig á flugu hjá
fjórmenningunum.
Hjónatúr í Reykjunni
Helgina á eftir fór Óskar með Ás-
dísi konu sinni í Reykjadalsána
sem þau hafa lokað síðustu tólf
árin. Með þeim var Óskar sonur
þeirra sem hefur erft veiðigenin.
Þau gerðu sér lítið fyrir og fengu
23 laxa á tveimur dögum á maðk
og flugu. Rigning hafði ekki náð
í Reykholtsdalinn allan septem-
ber fyrr en sportfólkið úr Keflavík
mætti á staðinn og það var eins og
við manninn mælt. Þrátt fyrir litað
vatn í rigningunni runnu laxarnir
á færið hjá fjölskyldunni og Óskar
segir að Reykjadalsáin sé ein af
hans uppáhaldsám. Tveggja stanga,
gríðarlega skemmtileg á. Þarna eru
aðstæður fínar, gott veiðihús með
heitum potti en veiðin var misjöfn
fram eftir veiðisumri vegna þurrka
eins og víða annars staðar.
Lokatúrinn hjá Óskar var síðan í
Grenlækinn sem hann fær aldrei
Óskar Færseth, varaFor-
maður stangveiðiFélags
keFlavíkur gerði það
gott í haustveiðinni:
Veiðigyðjan Var með
Varaformanninum
-sem fékk með félögum sínum
yfir 80 fiska í þremur túrum
nóg af enda skemmtilegur staður.
Dagana 14.-16. okt. fór hann með
Óskari yngri og Guðmundi Hreins-
syni og þeir gerðu sér lítið fyrir og
mokuðu upp 31 sjóbirtingi, 3-6
punda eins og í fyrri túrnum. „Það
var mikið af fiski í ánni eftir rign-
ingar. Þarna geta veiðimenn lent
í ævintýrum eins og við gerðum
þarna og þá er auðvitað geysilega
gaman,“ segir Óskar.
Gott veiðiár hjá SVFK
Eftir þrjá hausttúra var aflinn sem
sagt yfir áttatíu fiskar og viðmæl-
andi okkar segist vera í veiði til að
veiða en ekki til að sleppa en vill að
öðru leyti ekki ræða það.
Varaformaðurinn í SVFK segir
að rekstur félagsins hafi gengið
mjög vel á árinu og sala veiðileyfa
verið mjög góð og nánast allt hafi
selst. Framundan hjá félaginu sé
flutningur á veiðihúsum sem voru
við Heiðarvatn en þau verða flutt
norður í land, að Vesturhópsvatni
í Húnavatnssýslunni, rétt hjá Víði-
dalsá. Þar verði stefnt að uppbygg-
ingu nýs skemmtilegs fjölskyldu-
veiðistaðar hjá SVFK.
Í Stangveiðifélagi Keflavíkur eru á
fjórða hundrað félagar sem standa
þétt að baki starfsemi þess. Stefna
SVFK sé að bjóða ódýr en góð
veiðileyfi og það hafi tekist sem sést
best á viðbrögðum félaga.
Auk fyrrnefndra áa og veiðisvæða
býður félagið veiðileyfi í Geirlandsá
(en við sögðum frá vel heppnuðum
túr þangað í haust í síðasta blaði),
Fossálum og Jónskvísl en þessar ár
eru á Suðausturlandi en einnig í
Hrollleifsdalsá í Skagafirði. Hrollan
hefur verið mjög vinsæl en það er
einn af fjölmörgum skemmtilegum
fjölskyldustöðum hjá SVFK. Veiði
hefur verið góð í öllum þessum
ám undanfarin ár og segir varafor-
maðurinn að áfram verði boðið upp
á leyfi í þessum ám á næsta ári.
„það er óhætt að segja að veiðigyðjan hafi verið með mér
í haust,“ sagði Óskar Færseth, varaformaður stangveiði-
félags keflavíkur og veiðimaður í aldarfjórðung. hann
gerði það gott í þremur veiðitúrum en samtals veiddu
hann og félagar hans yfir 80 sjóbirtinga og laxa.
Fallegir birtingar úr Grenlæknum.
Frúin, Ásdís Guðbrandsdóttir
þreytir lax í Reykjadalsá.
Óskar yngri og Guð-
mundur Hreinsson
með væna birtina úr
Grenlæk.
Hjónin með laxa úr Reykjunni
en þar komu þeir nánast upp á
færibandi.
vf.is