Þjóðlíf - 01.12.1988, Blaðsíða 52
MENNING
Nafn rósarinnar. Leikmunir úr kvikmyndinni voru tii sýnis og vöktu mikta athygli.
ítölsk menningarveisla
Eftirmáli við
alþjóðlegan
bókamarkað í
Frankfurt
Það var sannkölluð veisla fyrir andann að
reika um sali alþjóðlegu bókakaupstefnunn-
ar, sem haldin var í Frankfurt í byrjun októ-
ber. Þarna voru kynntar hátt á fjórða hundr-
að þúsund bækur, þar af rúmlega hundrað
þúsund, sem gengu á þrykk á þessu ári. Bók-
vitringar, rithöfundar og útgefendur voru á
sífelldu sveimi milli sýningarbása og hýreyg-
ar meyjar buðu gestum að þefa af þessum
andlegu kræsingum með því að stinga nefinu
rnilli síðna. Allir helstu höfundar þýskrar
tungu tefldu fram nýsmíðuðunt ritlistarverk-
um á markaðnum. Giinther Grass sýndi í sér
tunguna í samnefndri bók „Zunge zeigen“,
sem er einskonar uppgjör skáldsins við
drjúglanga dvöl þess með fátæklingum og
heilögum kúm í Kalkútta á Indlandi.
Marteinn Walser tjaldaði nýrri skáldsögu
á kaupstefnunni og Christa Wolf kynnti les-
endurn viðhorf sín til bókmennta og ýmissa
málefna líðandi stundar í nýútkomnu greina-
safni. Ljóðskáldið og rithöfundurinn
Enzensberger átti þarna sömuleiðis nýja
bók, þar sem hann tekur landa sína á beinið í
lævísum ádeilugreinum einsog honum einum
er lagið. En það voru ekki þeir þýsku sem
vöktu mesta athygli á markaðnum að þessu
sinni. Þyngdarpunktur sýningarinnar var
kynning á ritlist og öðrum menningarafurð-
um ítala. Það hefur verið fremur hljótt um
þann andlega gróður sem vaxið hefur og
dafnað undir ítalskri sól á síðustu árum. Mér
er til efs, að bókfróðir menn í öðrum
Evrópulöndum hafi til skamms tíma almennt
verið með það á hreinu hversu mörgum önd-
vegishöfundum ítalir hafa á að skipa.
Að vísu þekkja bókaormar allra landa
þann ítalska „gúrú“ Umbetro Eco, enda hef-
ur hinn dulúðarfulli klausturreyfari Ecos
„Nafn rósarinnar" haldið vöku fyrir hungr-
uðum lestrarhestum um allan heim. Af öðr-
um ítölskum höfundum sem nú eru á dögum
og lesnir hafa verið í öðrum löndum má
nefna nóbelsskáldið Alberto Moravia, en
skáldsögur Moravias hafa borið hróður
þessa ágæta höfundar víða. Ennfremur
mætti nefna ítalska ljóðskáldið Pasolini, sem
hefur ekki einungis getið sér orð fyrir snjall-
52